Fréttablaðið - 14.01.2007, Blaðsíða 4
Einingahús • Legsteinar • Garðstyttur • Gólfflísar
Líba ehf, Iðngarðar 21, 250 Garði,
S. 422 7922, 893 5422, liba@liba.is
G-684
3.843 kr m2
G-603
2.128 kr m2
Blue Pearl
9,357 kr m2
Kashmir White
8,078 kr m2
Auknar fjárveitingar
eyrnamerktar rannsóknum innan
Háskóla Íslands (HÍ) ganga gegn
stefnu Sjálfstæðisflokksins, segir
Björn Þór Jónsson, dósent við
Háskólann í Reykjavík (HR), sem
gagnrýnir að fénu sé veitt til HÍ
en ekki í samkeppnissjóði sem
allir vísindamenn geti sótt í.
Björn bendir á klausu í stefnu
Sjálfstæðisflokksins þar sem segir
meðal annars: „Samkeppni um
opinbert fjármagn til rannsókna
og tækniþróunar hvetur til skil-
virkni og skilgreinir takmark og
tilgang þeirra betur en fastar fjár-
veitingar til opinberra stofnana.“
Þar segir enn fremur: „Lands-
fundur telur mikilvægt að auka
verulega hlut samkeppnisfjár í
opinberum rannsóknarfjárveit-
ingum þannig að keppt sé um
rannsóknarfjárveitingar sam-
kvæmt mati á gæðum rannsóknar-
verkefna og væntingum um árang-
ur og bestu verkefnin hverju sinni
hljóti styrk.“
Fjárveitingin gangi einnig gegn
stefnu Vísinda- og tækniráðs, en í
stefnu ráðsins fyrir árin 2006-2009
segir meðal annars að lögð sé höf-
uðáhersla á að „efla opinbera sam-
keppnissjóði“, og hvatt til þess að
„hækkun beinna fjárveitinga til
rannsókna renni að stærstum
hluta til samkeppnissjóða og áætl-
ana sem úthluta fé á grundvelli
umsókna og faglegs mats“.
Stefnan samkeppni um styrki
Samtökin Sól á Suður-
nesjum krefjast þess að íbúar
allra sveitarfélaga á Suðurnesj-
um fái að kjósa um byggingu fyr-
irhugaðs álvers Norðuráls í
Helguvík. Þau krefjast þess að
fallið verði frá áformum um
byggingu álversins og virkjanir á
Reykjanesskaganum þar til vilji
íbúanna hefur verið kannaður.
Stofnfundur samtakanna var
haldinn á föstudag og mættu um
80 manns á hann að sögn Elvars
Geirs Sævarssonar, eins tals-
manna samtakanna.
Sveitarfélögin Reykjanesbær
og Garður samþykktu samkomu-
lag um legu lóðar fyrirhugaðs
álvers í Helguvík í liðinni viku.
Samkvæmt því verða ker- og
steypuskálar álversins innan
sveitarfélagsins Garðs en súráls-
geymar og fleiri mannvirki í landi
Reykjanesbæjar. Háspennulínur
munu fara um landsvæði sveitar-
félaganna Grindavíkur, Voga og
Hafnarfjarðar og um Stafnes og
Ósabotna í landi Sandgerðis. Áætl-
að er að álverið geti tekið til starfa
árið 2010.
Elvar segir íbúa sveitarfélag-
anna á Suðurnesjum illa upplýsta
um byggingu álversins og þess
umhverfisrasks sem það hefur í
för með sér, því framkvæmdin
hafi verið lítið kynnt meðal íbú-
anna. „Í ljósi þess hversu fólk veit
lítið um byggingu þessa álvers
teljum við það skýlausan lýðræð-
islegan rétt íbúanna að fá að kjósa
um framkvæmdina líkt og Hafn-
firðingar munu gera um stækkun
álversins í Straumsvík,“ segir
Elvar.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ, segist ekki gera
ráð fyrir því að sérstök kosning
verði um byggingu álvers í
Helguvík þrátt fyrir kröfu sam-
takanna. Bæjarstjórinn segir að
tvær kannanir sem gerðar hafi
verið meðal íbúa Reykjanesbæj-
ar hafi sýnt fram á að yfirgnæf-
andi meirihluti þeirra séu hlynnt-
ir byggingu álversins. Hann
segir að í samþykktum Reykja-
nesbæjar séu engin sérstök
ákvæði um hvað þurfi að koma
til svo kosningar um ákveðin
verkefni séu haldnar meðal íbú-
anna.
Gunnar Eydal, hæstarréttar-
lögmaður og höfundur bókar um
sveitarstjórnarrétt, segir að í
sveitarstjórnarlögum séu engin
bindandi ákvæði um íbúakosning-
ar um tiltekin mál. Í lögunum
segir: „Sveitarstjórn getur efnt til
almennrar atkvæðagreiðslu í
sveitarfélagi eða hluta þess til að
kanna vilja kosningabærra manna.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar
er ekki bindandi.“
Ákvörðunarréttur um hvort
íbúarnir á Suðurnesjum kjósi
verði um álver í Helguvík er því
alfarið í höndum hverrar sveitar-
stjórnar á Suðurnesjum fyrir sig,
segir Gunnar.
Krefjast kosningar
um álver í Helguvík
Samtökin Sól á Suðurnesjum vilja íbúakosningu um byggingu álvers í Helgu-
vík. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar gerir ekki ráð fyrir íbúakosningu um álverið. Í
lögum segir að ákvörðun um íbúakosningar sé í höndum sveitarstjórna.
Lyfjafyrirtæki í
Bandaríkjunum
hefur farið í
mál við
popparann
Michael
Jackson vegna
vangoldinna
reikninga.
Fyrirtækið
fullyrðir að
Jackson skuldi yfir sjö milljónir
íslenskra króna fyrir lyfseðils-
skyld lyf sem fyrirtækið hefur
útvegað honum síðustu tvö ár.
Fyrirtækið segist hafa gert
munnlegt samkomulag við
Jackson um að hann greiddi fyrir
lyfin og hafi sent honum reikn-
inga mánaðarlega. Síðasta
greiðsla hafi borist um mitt ár
2005. Talskona Jacksons neitaði
að tjá sig um málið við Associated
Press-fréttastofuna.
Skuldar yfir sjö
milljónir vegna
kaupa á lyfjum
Rannsókna- og háskóla-
net Íslands, eða RHnet, sem
annast netsamband Háskóla
Íslands, Háskólans í Reykjavík,
Landspítalans og fleiri stofnana,
hefur samið við fjarskiptafyrir-
tækin Símann og Vodafone um
varasamband um FARICE-
sæstrenginn meðan viðgerð á
CANTAT-strengnum stendur yfir.
Í Fréttablaðinu í gær var sagt
frá samkomulagi RHnet við
Vodafone um varasamband. Nú
hefur einnig náðst samkomulag
við Símann. Því lítur út fyrir að
starfsemi þeirra stofnana sem
tengdar eru í gegnum RHnet
raskist lítið á meðan gert er við
CANTAT.
RHnet semja um
varanetsamband
Þrír voru fluttir á slysadeild
eftir harðan þriggja bíla árekstur
á Vesturlandsvegi í gær. Slysið
varð nærri suðurenda Hvalfjarð-
arganganna við bæinn Bakka um
sexleytið.
Tildrög slyssins eru ekki að
fullu kunn en svo virðist sem einn
ökumannanna hafi ekið út af
veginum til að forða árekstri.
Ökumenn tveggja bíla og farþegi
annars þeirra slösuðust en meiðsl
þeirra eru ekki talin alvarleg.
Aðrir sluppu ómeiddir.
Að minnsta kosti tveir bílanna
skemmdust nokkuð og eru
óökufærir.
Þrír á slysadeild
eftir árekstur
Ítalinn Maurizio Seracini
hefur fengið leyfi frá yfirvöldum
í Flórensborg til að skanna veggi
Veccio-hallarinnar. Höllin er í dag
ráðhús Flórensborgar.
Fyrir 30 árum fann Maurizio
Seracini vísbendingu þess efnis
að málverk eftir Leonardo da
Vinci væri falið í leynihólfi í
einum af veggjum Veccio-
hallarinnar. Vísbendinguna fann
hann falda á málverki sem hangir
í aðalsal hallarinnar.
Málverkið sem leitað er að er
af orrustunni í Chianadal og var á
sínum tíma talið eitt fallegasta
verk da Vincis.
Leitar að mál-
verki da Vincis
Að sögn Gunnars
Svavarssonar, forseta bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar, mun álfyr-
irtækið Alcan, sem rekur álverið í
Straumsvík, kannski taka þátt í
kostnaði með ríkinu við færslu
Reykjanesbrautarinnar. Það liggi
þó ekkert fyrir um það að hálfu
samgönguráðuneytisins.
Hann telur mikilvægt að ríkið
og Alcan hafi komist að niðurstöðu
þegar íbúar Hafnarfjarðar kjósa
um stækkun álversins.
Hafnarfjarðarbær mun ekki
taka þátt í kostnaðinum sem er um
milljarður, segir Gunnar. Ekki er
ljóst hvenær kosningin fer fram.
-
Taka kannski
þátt í kostnaði