Fréttablaðið - 14.01.2007, Blaðsíða 82
Eigendur bandaríska
knattspyrnuliðsins LA Galaxy
vörðu í gær þá ákvörðun sína að
kaupa David Beckham til félags-
ins. Tvennum sögum fer af verð-
mæti samningsins sem er þó að
minnsta kosti 9 milljarða króna
virði.
„Beckham kemur til þess að
spila fótbolta. Hann er ekki að
koma til að verða kóngur í skemmt-
anabransanum,“ sagði Tim Lei-
weke, forseti AEG, sem á LA
Galaxy.
„Beckham mun draga áhorf-
endur á völlinn og eignast fjölda
aðdáenda og svo mun verða meiri
áhugi á deildinni en nokkurn tíma
áður. Hans fyrsta skylda er þó að
gera liðið betra. Við gerðum samn-
ing við hann því hann er frábær
leikmaður og þar að auki á besta
aldri.“
Beckham hefur harðneitað því
að hann sé að koma til Bandaríkj-
anna út af peningum þótt hann játi
að upphæðin sem hann fær sé
svakalega há.
Beckham kemur til
þess að spila fótbolta
Hnefaleikakappinn Mike
Tyson hefur verið kærður fyrir
að aka undir áhrifum fíkniefna
sem og að hafa fíkniefni í fórum
sínum. Lögreglan fann kókaín á
Tyson og í bíl hans. Ef Tyson
verður fundinn sekur á hann yfir
höfði sér sjö ára fangelsi.
Samkvæmt dómsskjölum var
Tyson handtekinn er bíll hans
keyrði næstum á lögreglubíl.
Lögreglumaðurinn sem handtók
Tyson segir hnefaleikakappann
hafa játað að vera undir áhrifum
kókaíns og að vera háður efninu.
Árið 1992 var Tyson sakfelldur
í nauðgunarmálum og mátti dúsa
í fangelsi í þrjú ár fyrir vikið.
Gæti fengið sjö
ára dóm
David Beckham játaði í
viðtali í Bandaríkjunum í gær að
hann hefði ráðfært sig við
leikarann Tom Cruise áður en
hann tók ákvörðun um að taka
tilboði LA Galaxy.
„Ég talaði við Tom í um
klukkutíma í símann tvö kvöld í
röð. Að sjálfsögðu var ég að leita
ráða hjá honum enda er Tom vel
gefinn maður og góður vinur
minn. Það hjálpar mikið að eiga
vini í LA þegar við flytjum
þangað,“ sagði Beckham.
Beckham-hjónin eru vinafólk
Cruise-hjónanna og skemmst er
að minnast fjaðrafoksins er
Beckham fór í veislu til Cruise-
hjónanna kvöldið fyrir giftingu
þeirra en þá var talið að hann
hefði stungið af frá Real Madrid.
Ráðfærði sig
við Tom Cruise
Sundsamband Íslands og
SÁÁ hafa gert með sér tímamóta-
samning sem kveður á um að SÁÁ
fari með sérstaka forvarnar-
fræðslu inn í öll sundfélög á
landinu.
Fræðslan er ætluð þjálfurum,
starfsfólki og forsvarsfólki
félaganna og fjallar um fyrir-
myndarhlutverk þessa fólks
gagnvart þeim börnum og
unglingum sem verið er að vinna
fyrir. Þá er fræðslunni einnig
beint að foreldrum sundfólks og
sundfólkið fær einnig sjálft
fræðslu þegar það verður eldra
en 13 ára.
Samningur um
forvarnir
Engin íþrótt býr yfir jafn miklum
töframætti og knattspyrnan. Ég
fékk endanlega staðfestingu á
því í Tanger í Marokkó í síðustu
viku. Víða á kaffi- og veitinga-
húsum þar í borg má sjá fána F.C.
Barcelona eða Real Madrid
hanga fyrir neðan myndina af
Mohamed VI konungi. Tennis,
Dakar-rallíið eða úlfaldahlaupið í
Sádi-Arabíu komast hins vegar
ekki upp á vegg.
Á göngu minni um markaðinn
í gamla borgarhlutanum barst
Eiður Smári venjulega í tal eftir
að kaupmenn og aðrir höfðu spurt
mig hvaðan ég væri og hvort ekki
mætti bjóða mér eitt og annað á
verði sem í raun var aðeins fyrir
útlendinga og ríka vitleysinga.
Björk og Sigur Rós tilheyra
hinsvegar menningu sem ekki á
upp á pallborðið í Tanger en töfra-
máttur knattspyrnunnar virðir
engin menningarleg takmörk.
En spænska deildin er þó ekki í
sínum fallegasta fasa um þessar
mundir. Nú er nefnilega vetrar-
markaðurinn í algleymingi og
sitja sumir undir tilboðaregni
meðan aðrir sitja við símann og
bíða eftir því að Eggert Magnús-
son eða einhver álíka slái á þráð-
inn.
Sviptingar geta orðið svo hrað-
ar og miklar milli liða að það
minnir jafnvel á íslenska fjöl-
miðlamarkaðinn.
Til dæmis vissi Javier Saviola
varla með hvoru liðinu hann átti
að keppa þegar Espanyol og Bar-
celona öttu kappi í gær.
Kanínan, eins og hann er oftast
kallaður, er vissulega á samningi
hjá Barcelona en tilboðið frá
Espanoyl sem hann fékk rétt fyrir
leik var með fullt af gulrótum.
Svo eru bæði lið frá Börsunga-
borg svo hann þarf ekki að pakka
saman hvernig sem fer.
Beckham er nú loks búinn að telja
núllin á tilboðinu frá Los Angeles
Galaxy svo kappinn fer með frú
og familíu til Kaliforníu í sumar.
Ronaldo er hins vegar enn að velta
vöngum yfir tilboðinu frá sádi-
arabíska liðinu Al Ittihad.
Cassano hefur að undanförnu
verið í einskonar skammarkrók
hjá landa sínum Capello þjálfara
fyrir að segja hann vera ósvífinn
svo nú vill hann komast burt og
jafnvel Raúl Bravo gæti verið á
förum.
Í staðinn fyrir þessi stóru nöfn
eru komnir þrír ungir menn frá
Suður-Ameríku; þeir Marceló,
Higuaín og Gagó. Meira að segja
mamma þeirra man varla hvað
þeir heita! (Svo ég grípi nú til
þessa gríska máltækis.)
En talandi um knattspyrnumenn á
markaðnum. Ég kom við í fata-
hreinsun Rami Mohamed á mark-
aðnum í gamla borgarhlutanum í
Tanger.
Ég var ekki að fara með kuflinn
minn í hreinsun heldur hékk þar
uppi mynd sem dró athygli mína.
Innan um myndir af Zidane, Buff-
on, Figo og fleiri stjörnum hékk
mynd af okkar manni: Eiði
Smára.
Rami Mohamned kannaðist
hins vegar ekkert við Guðjón Val
sem þó var valinn íþróttamaður
ársins. Slíkur er töframáttur
knattspyrnunnar!
Af hverju þekkir Rami Mohamed ekki Guðjón Val?
Stjarnan vann sex
marka sigur á Haukum, 21-15, í
DHL-deild kvenna og er nú eitt
þriggja liða á toppnum í deildinni
með jafnmörg stig og Grótta og
Valur. Stjörnuliðið hafði ágæt tök
á leiknum allan tímann, var þrem-
ur mörkum yfir í hálfleik, 11-8, og
komst sjö mörkum yfir í upphafi
seinni hálfleiks en slæmur kafli
hleypti Haukaliðinu aftur inn í
leikinn. Stjarnan vann hins vegar
síðustu 15 mínútur leiksins 5-1 og
tryggði sér mikilvægan sigur.
„Við höfum verið að ná hinum
liðunum eftir síðustu leiki og við
erum ánægð með að við séum
farin að sjá aðeins raunhæfari
stöðu í deildinni. Þetta er hörku-
barátta milli okkar og Vals,“ segir
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari
Stjörnunnar. „Við skulum vona að
ryðið sé farið af okkur eftir von-
brigði í fyrsta leiknum eftir pásu
sem var á móti Val. Stelpurnar eru
farnar að sýna stöðugari leik og
eru búnar að spila frábæra 3:2:1
vörn í tveimur leikjum í röð,“
sagði Aðalsteinn en hann var
ánægður með vörnina. „Vörnin
var ótrúleg í þessum leik,“ segir
Aðalsteinn sem vildi hrósa tveim-
ur leikmönnum sérstaklega. „Að
mínu mati var Ásdís Sigurðardótt-
ir ásamt Florentinu langbestu
menn vallarins. Ásdís hefur ákveð-
ið andlegt forskot á Ramune og
hefur alltaf gengið mjög vel að
spila á móti henni. Ég er ofboðs-
lega heppinn að hafa slíkan varn-
armann í mínu liði,“ sagði Aðal-
steinn um Ásdísi Sigurðardóttur
en Ramune Pekarskyte skoraði
aðeins tvö mörk úr uppsettri sókn
þrátt fyrir að vera nánast ekkert
tekin úr umferð.
„Það er gaman að vera með
svona stóran hóp og í dag gekk
þetta betur upp hjá öðrum leik-
mönnum en vanalega. Alina kom
sterk inn eftir að hafa verið í vand-
ræðum og við fengum fullt af
mörkum frá henni,“ sagði Aðal-
steinn og hrósaði einnig Jónu Mar-
gréti Ragnarsdóttur. „Jóna ætlar
að vera okkar örlagavaldur og hún
kom með mjög mörg mikilvæg
mörk fyrir okkur,“ sagði Aðal-
steinn en Jóna bjó til dýrmæt mörk
fyrir Stjörnuliðið.
Haukaliðið átti í vandræðum í
sókninni og stórskytturnar
Ramune Pekarskyte og Sandra
Stojkovic skoruðu aðeins saman 4
mörk utan af velli. Erna Þráins-
dóttir var best ásamt Helgu Torfa-
dóttur sem átti ágæta spretti í
markinu.
„Við vorum alltaf að elta þær og
svo þegar við vorum að ná þessu
vantaði bara herslumuninn að við
kæmust aftur almennilega inn í
leikinn. Florentina varði vel á mik-
ilvægum augnablikum og það er
gríðarlega gott fyrir þær að hafa
hana fyrir aftan sig. Þetta verður
erfitt hjá okkur því þetta var mik-
ilvægur leikur en þetta er ekki
búið og hin liðin geta öll misstigið
sig líka,“ sagði Harpa Melsted,
fyrirliði Hauka.
Stjarnan, Valur og Grótta eru efst og jöfn í DHL-deild kvenna. Stjarnan vann
góðan sigur á Haukum og hélt markahæsta liði deildarinnar í 15 mörkum.
DHL-deild kvenna