Fréttablaðið - 14.01.2007, Blaðsíða 11
Sala Símans var ein heimskulegasta einka-
væðing ríkisstjórnar
Framsóknarflokksins og
Sjálfstæðisflokksins.
Bitnar sú aðgerð hart á
íbúum landsins, sérstak-
lega á landsbyggðinni. Þar upplifa
nú flestir verri þjónustu og hærra
verð enda bera símafyrirtækin
engar samfélagsskyldur. Eina
skylda þeirra er að tryggja eig-
endum sínum sem hæstan arð af
fjármagninu.
Eitt mesta keppikefli ríkis-
stjórnarinnar á haustþingi var að
fá „háeffun“ Ríkisútvarpsins sam-
þykkta. Það furðulegasta var að
forysta Framsóknar-
flokksins, með nýjan for-
mann í broddi fylkingar,
gekk þar harðast fram.
Sótti Framsókn það mjög
fast að ljúka einkavæð-
ingu RÚV fyrir jól. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur
verið sjálfum sér sam-
kvæmur í að RÚV verði
einkavætt og selt. Með
einarðri baráttu þingmanna
Vinstri grænna og annarra stjórn-
arandstæðinga tókst að fresta
lokaumræðu um hlutafélagavæð-
ingu Ríkisútvarpsins fram í jan-
úar, þrátt fyrir hörð mótmæli
þingmanna Framsóknarflokksins.
Ákafi Framsóknar í að „háeffa“
Ríkisútvarpið er afar furðulegur í
ljósi þess að flokkssamþykktir
þeirra á undanförnum árum ganga
út á hið gagnstæða, að það verði
ekki gert. En það er hinn nýi for-
maður Framsóknarflokksins, sem
nú rekur hvað harðast á eftir
einkavæðingunni.
Enn er þó hægt að koma í veg
fyrir að Ríkisútvarpinu verði fórn-
að á vagn markaðshyggjunnar, því
að lokaumræðunni á Alþingi var
frestað þar til í janúar.
Ég held að fólk, ekki síst á
landsbyggðinni, hafi fengið sig
fullsatt af einkavæðingu Landsím-
ans. „Háeffun“ flugleiðsagnar og
flugvalla landsins nú um áramótin
var algjört klúður. „Háeffun“ mat-
vælarannsókna, uppsagnir og
skerðing á kjörum starfsmanna
setur alla þá starfsemi í uppnám.
Nái áform ríkisstjórnarinnar fram
að ganga verður Ríkisútvarpið og
starfsmenn þess næst leidd út á
einkavæðingarvagninn.
Ég vona einlæglega að Fram-
sóknarflokkurinn sem forðum átti
bakgrunn í samvinnuhugsjóninni og
ungmennafélagsandanum snúi frá
villu síns vegar. Hin harða peninga-
hyggja forystu Framsóknar bitnar
nú harðast á þeim þjóðfélagshópum
og landsvæðum sem í gegnum 90
ára sögu flokksins stóðu lengst af
hvað þéttast að baki honum.
Öflugt ríkisútvarp er nú sem
fyrr aflvaki sjálfstæðs menning-
arsamfélags, hornsteinn þess lýð-
ræðis sem þjóðin hefur barist
fyrir. Við fundum það vel er við
nutum dagskrár sjónvarps og
útvarps nú um jól og áramót hvers
virði þjóðarútvarpið er okkur í
raun. Íhugum þá jafnframt hvern-
ig væri umhorfs, ef Ríkisútvarpið
okkar væri horfið að fullu á altari
markaðarins og peningahyggjunn-
ar eins og ríkisstjórnin stefnir að.
Það verður að koma í veg fyrir
öll áform um að fórna Ríkisút-
varpinu.
Höfundur er alþingismaður
Vinstri grænna í
Norðvesturkjördæmi.
Látum ekki Ríkisútvarpið fara sömu leið og Landssímann!
Hin harða peningahyggja
forystu Framsóknar bitnar
nú harðast á þeim þjóðfélags-
hópum og landsvæðum sem í
gegnum 90 ára sögu flokksins
stóðu lengst af hvað þéttast að
baki honum.
Almennt verð-lag hækkaði
um sjö prósent á
síðasta ári. Það
er því eðlilegt að
spyrja hvers
vegna mjólkur-
vörur hækka
ekki í takt við annað verðlag, því
kostnaður við mjólkurframleiðslu
og vinnslu hlýtur að hafa hækkað.
Skýringin á þessu er þátttaka kúa-
bænda og mjólkuriðnaðar í því átaki
sem nú er í gangi til að lækka mat-
vælaverð á Íslandi.
Síðasta ár hefur verið mikil og
oft á tíðum ósanngjörn umræða um
matvælaverðið. Um það er þó ekki
ágreiningur hvað mjólk og mjólkur-
vörur varðar, að framleiðslukostn-
aður á Íslandi er hár í samanburði
við margar aðrar þjóðir, enda verð-
lag á Íslandi almennt hátt. Mjólkur-
iðnaðurinn er nú að sameinast að
mestu í eitt fyrirtæki. Þannig er
hægt að auka verkaskiptingu og
sérhæfingu í vinnslu mjólkur, og
má fullyrða að þessi sameining er
ein meginforsenda þess að mjólkur-
vörur lækka í verði að raungildi.
Það er mat Landssambands kúa-
bænda að meðalkúabúið tapi um
þrjú hundruð þúsund krónum á því
að fá ekki hækkun á mjólkurverði
eins og þörf hefði verið á. Á móti
kemur að tollar á mjólkurvörum
verða óbreyttir.
Nú skiptir mestu máli að horfa
fram á veginn og velta fyrir sér
hvernig hægt er að lækka fram-
leiðslukostnað mjólkur því hún
verður því aðeins framleidd á
Íslandi ef sú starfsemi skilar laun-
um sem bændur sætta sig við. Ef
mjólkurverðið lækkar hraðar er en
framleiðslukostnaðurinn, þá hryn-
ur atvinnugreinin.
En þótt umræðan sé á köflum
ósanngjörn og villandi, þá viljum
við vonandi öll að Íslendingar fram-
tíðarinnar hafi aðgang að íslensk-
um mjólkurvörum og þá þarf að
hafa mjólkurframleiðslu í landinu.
Hvað skiptir þá mestu máli næstu
árin?
Annars vegar eru það almenn
rekstrarleg atriði á borð við það að
kúabúin geti haldið áfram að
stækka, flutt verði inn nýtt kúakyn
sem skilar meiri afurðum og sparar
vinnu og kostnaður við fóðuröflun
lækkaður. Þá er það mikið hags-
munamál að ríkið leggi af skatt-
heimtu á innfluttar kjarnfóður-
blöndur. Ekki má heldur gleyma því
að vextir á Íslandi eru mjög háir og
það kemur þungt niður á atvinnu-
grein eins og mjólkurframleiðslu
vegna mikilla fjárfestinga. Hins
vegar að greinin njóti áfram þeirra
verndartolla sem hún gerir nú, enda
er sú tollvernd sambærileg við þá
vernd sem íslenskt verkafólk býr
við hvað varðar erlent fólk sem
kemur inn á íslenskan vinnumark-
að. Því verkafólki er óheimilt að
vinna á lægri töxtum en hér gilda
Að lokum skal minnt á nauðsyn þess
að aðgerðir til lækkunar matvæla-
verðs skili sér til neytenda en hverfi
ekki í verðhækkanir.
Höfundur er formaður Landssam-
bands kúabænda.
Mjólkurvörur
lækka í verði
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
–
S
T
ÍN
A
M
.
/
F
ÍT
Eldavél, HL 423200S
Keramíkhelluborð, fjórar hraðsuðu-
hellur, þar af ein stækkanleg, fjórfalt
eftirhitagaumljós. Fjölvirkur stór ofn
(58 lítrar), létthreinsikerfi, ecoClean.
Stangarhandfang. Orkuflokkur A.
Falleg og gæðaleg eldavél.
Verð: 79.800 kr. stgr.
Uppþvottavél, SE 55E550EU
Klæðanleg uppþvottavél sem á
heima í eldhúsinu þínu.
Stjórnborð úr stáli.
Fimm þvottakerfi, 4 hitastig.
Orkuflokkur, þvottahæfni,
þurrkhæfni: A/A/A. Mjög hljóðlát.
Verð: 79.800 kr. stgr.
Þessa vikuna eru kjarakaupa-
dagar hjá okkur. Láttu sjá þig
og gerðu góð kaup, hvort sem
þig vantar smekklega lampa,
þráðlausan síma, sísogandi
ryksugu, smátæki sem hitna
eða snúast eða stóru tækin í
eldhúsið og þvottaherbergið.
Þá er ekkert annað eftir en að
flýta sér hingað til okkar, því að
engum flýgur sofanda steikt
gæs í munn, eins og sagt er.
Umboðsmenn um land allt.
Kæliskápur, KG 36VV70SD
Fallegur kæli- og frystiskápur.
Framhlið úr ryðfríu stáli. Efri hurð nær
alveg upp í topp. 228 l kælir, 87 l
frystir. Orkuflokkur A. Hillur úr
öryggisgleri, losanlegir hillubakkar.
Frystikerfi á þremur hæðum.
H x b x d = 185 x 60 x 60 sm.
Verð: 89.800 kr. stgr.
Þvottavél, WM 14E460DN
Bjóðum nú þessa glæsilegu þvottavél
með íslensku stjórnborði á frábæru
verði. Þetta er vélin handa þér!
Verð: 76.800 kr. stgr.
• 6 kg.
• Íslenskar merkingar.
• 1400 sn./mín.
• Fjölmörg þvottakerfi.
• 15 mínútna kerfi.
• Snertihnappar.
• Góður stafaskjár.
• Orkuflokkur A plús.
Fínn afsláttur og mörg
sértilboð í gildi nú í vikunni.
15 mí
n.
kerfi