Fréttablaðið - 30.01.2007, Page 13

Fréttablaðið - 30.01.2007, Page 13
Pólski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Ryszard Kapuscinski lést í Varsjá fyrir réttri viku, 75 ára að aldri, eftir að hafa gengist undir hjartaað- gerð. Hann hefur oft verið nefnd- ur til sögunnar á síðustu árum sem líklegur viðtakandi Nóbels- verðlaunanna. Kapuscinski er ekki mikið þekktur hér á landi en nýtur mik- illa vinsælda í mörgum Evrópu- löndum. Hann skrifaði á þriðja tug bóka á ferli sínum sem hófst á seinni hluta sjötta áratugarins þegar hann var fréttaritari pólsku fréttastofunnar PAP í Afríku. Þekktasta verk hans fjallaði um fall stjórnar Haile Selassies í Eþíópíu og kom út árið 1978. Árið 1998 gaf hann út greina- safn um Afríku þar sem lesand- inn fær óvenjulega innsýn inn í samfélög margra landa álfunnar. Hann segir meðal annars sögu af því þegar hann kom í þorp eitt í Afríku þar sem lítil börn þyrptust að honum. Kapuscinski taldi að börnin væru að biðja hann um peninga eða mat. Svo var ekki því þau vildu biðja hann um rit- föng svo þau þyrftu ekki að skrifa með fingrunum í sandinn. Slíkar lýsingar lituðu skrif hans afar innilegum blæ og urðu til þess að einn þekktasti heimspek- ingur Spánar, Fernando Savater, kallaði hann „mikinn mannvin“. Kapuscinski varð vitni að 27 stjórnarbyltingum á ferli sínum sem blaðamaður, var við víglín- una í tólf stríðum og var fjórum sinnum dæmdur til dauða. Vitni að 27 stjórnarbyltingum Hagnaður tölvuleikja- fyrirtækisins Nintendo hefur stóraukist, og er góð sala á leikjatölvunni Nintendo Wii sögð helsta ástæðan. Leikjatölvan, sem kom út í lok seinasta árs, hefur selst í rúmlega þremur milljónum eintaka um allan heim. Hagnaður fyrirtækisins seinustu níu mánuði ársins 2006 var tæplega helmingi meiri en á sama tíma á seinasta ári. Wii hefur notið þess orðspors að vera „skemmtileg“ leikjatölva, en leikjum hennar er stjórnað með stýripinna sem skynjar hreyf- ingu. Spilarar sveifla honum um eins og veiðistöng, hafnabolta- kylfu, sverði eða tennisspaða allt eftir því sem við á. Vinsældir Wii auka hagnað Tveir grímuklæddir menn óku á fleygiferð inn um aðalinngang stórverslunarinnar Illum í Kaupmannahöfn, stefndu þar rakleiðis að skartgripadeildinni og gerðu tvær tilraunir til að aka þar á öryggisgrind en óku síðan, þegar það mistókst, beina leið út úr versluninni hinum megin í húsinu. Engu var stolið en skemmdir urðu töluverðar. Þetta gerðist á sunnudags- kvöldið. Skömmu síðar fann lögreglan skemmdan bíl í nokkurra kílómetra fjarlægð, en mennirnir tveir voru ófundnir í gær. Óku bifreið inn í verslunina Efnt verður til þinghalds á vegum sprotafyrirtækja á föstudag þar sem fulltrúar allra þingflokka, bæði þingmenn og ráðherrar, ræða framtíð íslenskra sprota- og hátæknifyrirtækja. Á þinginu verður fjallað um stöðu og starfsskilyrði sprota- og hátæknifyrirtækja. Sprotaþing 2007 markar upphaf Sprotavett- vangs sem hefur störf í kjölfarið. Á þinginu verður fylgt verklagi Alþingis, tillögur kynntar, ræddar í þingnefndum sem skipaðar verða fulltrúum þingflokka til nánari umfjöllunar eða afgreiðslu. Þing- nefndirnar skila svo endanlegum tillögum í formi lagafrumvarps, þingsályktunar eða reglugerðar- breytinga áður en þingheimur greiðir um þær atkvæði. Þinghald eins og á Alþingi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.