Fréttablaðið - 30.01.2007, Side 16

Fréttablaðið - 30.01.2007, Side 16
nær og fjær „ORÐRÉTT“ Á móti stelpum? Skynjar líðan páfa- gauka Tónlistin aftur orðin að áhugamáli Höldum óhreinindum á mottunni R V 62 17 A Rekstrarvörur 1982–200725ára Sigþóra Gunnarsdóttir Sölumaður í verslun RV …fjarlægir óhreinindi og vætu af skóm …hindrar að gólfið innandyra verði hált …heldur anddyrinu hreinu og snyrtilegu gólfmottukerfið Úti- og innimottur fyrir íslenskar aðstæður Margt býr í Margréti Það má búast við spennandi leik í dag þegar íslenska landsliðið í handknattleik mætir því danska í átta liða úrslitum á HM í Þýska- landi. Danir búsettir hér á landi halda með sínum mönnum og úti í Danmörku undirbúa Íslendingafélögin sig fyrir leikinn. Danir og Íslendingar hafa löngum eldað grátt silfur saman þótt vissu- lega sé stutt í vinskapinn. Gremja í garð Dana eftir áralanga einokun virðist seint ætla að eldast af Íslendingum og að sama skapi eiga Danir erfitt með að horfa upp á umsvif íslenskra kaupsýslu- manna innan helgustu véa Dana. Í dag verður spennan í hámarki milli þjóðanna sem þó þykjast vera vinir inn við beinið. Ernst Hemmingsen ræðismaður Dana á Íslandi var heldur betur kominn í keppnisskap fyrir leik- inn þegar blaðamaður sló á þráð- inn í danska sendiráðið. „Ég er nú búinn að búa á Íslandi í rúm 30 ár en að sjálfsögðu held ég með mínum mönnum í leiknum,“ segir Ernst og bætir því við að hann verði ekkert voðalega tapsár þótt Íslendingarnir vinni. „Íslenska liðið leikur vel svo það er enginn skömm fyrir Dani þótt þeir tapi. Þetta eru í rauninni lík lið og ég á von á að leikurinn verði spenn- andi. Þessi lið spila hraðan og skemmtilegan handbolta og það er erfitt að gera upp á milli þeirra þótt ég haldi að sjálfsögðu með Dönunum.“ Ernst segir að ekki sé mikill samgangur milli Dana búsettra á Íslandi og á því ekki von á að þeir hópi sig saman til að fylgjast með leiknum. „Danir eru svo góðir vinir Íslendinga að þeir horfa bara á leikinn með þeim. Ég hef ekki orðið var við að það sé mikill rígur milli þjóðanna. Ég hugsa að sam- bandið sé bara gott enda erum við frekar lík,“ segir Ernst sem sjálf- ur ætlar að horfa á leikinn heima í stofu. „Konan mín er íslensk og börnin halda með Íslandi en samt á ég ekki von á neinum slagsmál- um fyrir framan sjónvarpið,“ segir Ernst og hlær. Ernst spáir því að Danir vinni leikinn naumlega. „Ætli þetta fari ekki 28-29 eða 30-31 fyrir mínum mönnum,“ segir hann bjartsýnn og bætir því við að Danir séu með betri taugar og nái líklega að vinna Íslendingana á því. Fjölmargir Íslendingar eru búsett- ir í Danmörku og búast má við því að hrópin „Áfram Ísland“ heyrist víða um landið. Dagmar María Hrólfsdóttir, formaður Íslend- ingafélagsins í Sönderborg, á von á skemmtilegri stemningu þar á bæ enda ætla Íslendingarnir á svæðinu að hittast og horfa á leik- inn saman. „Við erum með hús- næði hérna og ætlum að hittast þar og fylgjast með leiknum,“ segir Dagmar. „Það er mikil stemning fyrir þessum leik og þegar okkur varð ljóst að við myndum mæta Dönum datt okkur auðvitað fyrst í hug að skella okkur bara í hópferð á leikinn í Þýskalandi enda örstutt að skreppa þangað. Svo kom í ljós að það var uppselt svo við ákváðum að að rífa upp smá stemningu hérna heima,“ segir Dagmar og bætir því við að einnig sé mikill áhugi fyrir leikn- um meðal Dana. „Mér hefur verið strítt svolítið í vinnunni í dag og Danirnir þykjast vera búnir að vinna þetta fyrirfram. Annars er rígurinn ekki mikill og þetta er allt í góðu,“ segir Dagmar sem er bjartsýn á að Íslendingar vinni leikinn. „Ég held þetta verði spennandi leikur og það á örugg- lega eftir að vera mjótt á munun- um. Ætli við vinnum þetta ekki bara með einu eða tveimur mörk- um.“ Bræður munu berjast Gremju Íslendinga í garð Dana má að sjálfsögðu rekja til þeirra ára þegar Ísland var undir danska stjórn komið. Fullveldi fengum við árið 1918 og árið 1944 vorum við með öllu laus við danska stjórn. Sögur af möðkuðu mjöli lifa þó enn meðal þjóðarinnar sem leit á það sem stórsigur að heimta handritin heim úr danskri helju árið 1971. Tilhugsunin um að íslenski þjóðararfurinn væri geymdur á danskri grund var óbærileg. Danir hafa löngum viljað eigna sér íslenska listamenn. Þannig vill ekki nokkur Dani viðurkenna að myndhöggvarinn Bertel Thor- valdsen sé í raun bóndasonur úr Skagafirði og íslensku ætterni Edvards C.J. Eriksen, sem gerði styttuna af litlu hafmeyjunni, hefur aldrei verið haldið á lofti. Hin síðari ár hafa Danir og Íslend- ingar mýkst í þessum málum og deila nú sam- eiginlegum eignarrétti á lista- manninum Ólafi Elíassyni sem er bæði íslenskur og danskur. Íslensk skólabörn hafa kynslóð eftir kynslóð bölvað því að þurfa að læra dönsku í skóla. Námið virðist þó gagnlegt því mikill fjöldi Íslendinga sækir sína framhaldsmenntun til Danmerkur. Í dag búa um 8.000 Íslendingar í Dana- veldi og þar af eru um 3.000 í námi. Þar að auki fljúga bæði Icelandair og Iceland Express með fullar flugvél- ar af Íslendingum til Kaupmanna- hafnar á hverjum degi. Danmörk er því kannski ekki svo slæm eftir allt saman. Umsvif Íslendinga Danskt þjóðarstolt var sært og kramið þegar íslensk- ir kaupsýslumenn réðust inn í danskt viðskiptalíf og hrifsuðu til sín öll helstu verðmæti Dana. Ill- ums og Magasin Du Nord eru nú í eigu Íslendinga og aldrei að vita hvenær Tívolíið og konungshöll- in bætast í hópinn. Spennan milli þjóðanna tveggja hefur oft fengið útrás í ýmsum kapp- leikjum. Mörgum er ekki liðinn úr minni knattspyrnuleikurinn á Parken árið 1967 sem lauk með tölunum 14-2 Dönum í vil. Niðurlæg- ingin var algjör fyrir Íslendinga. Eilífðarbarátta milli þjóðanna

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.