Fréttablaðið - 30.01.2007, Page 31
Með því að ná tökum á sykurneyslu má
sigrast á fitupúkanum segir Þorbjörg Haf-
steinsdóttir.
Þriðjudaginn 6. febrúar næstkomandi munu
Þorbjörg Hafsteinsdóttir næringarþerapisti og
Oscar Umahro Cadogan halda fyrirlestur þar
sem fjallað verður um hvernig megi losna við
tvo hvimleiða púka – fitu og sykurpúkana. Með
fyrirlestrinum munu þau leitast við að leið-
beina fólki um hvernig hægt er að breyta mat-
aræðinu til betri vegar og með því ná að losna
við aukakílóin. „Til að losna við fitupúkann er
best að byrja á því að ná tökum á sykurpúkan-
um fyrst,“ segir Þorbjörg og bætir því við að
sykur breytist í fitu og þar með sé skynsamleg-
ast að ráðast fyrst á þann garð.
„Ef maður getur stjórnað sykurneyslu sinni
þá getur maður rekið fitupúkann út og þar af
leiðandi grennst án þess að þessir hvimleiðu
púkar vaxi og dafni aftur,“ segir hún og hlær. Á
námskeiðinu munu Þorbjörg og Umahro leið-
beina fólki um hvernig er hægt að breyta mat-
aræðinu á skynsamlegan hátt. Hvaða venjum
er æskilegt að láta af og hvað á þá að borða í
staðinn. „Margir eru hræddir við að þetta sé
hreint ógerlegt og óskaplega leiðinlegt, en það
er mikill misskilningur. Ef vilji er til þess að
breyta lifnaðarháttum þá verður það skemmti-
legt viðfangsefni,“ segir Þorbjörg.
Námskeiðið verður haldið í Heilsuhúsinu
við Lágmúla og stendur frá 19 til 22. Boðið
verður upp á blóðsykursvænar veitingar og
verðið á námskeiðinu er 4.900 kr. Skráning fer
fram í síma 6928489.
Barist við sykur- og fitupúkana
Nú er hægt að vera á göngu-
skíðum í Ásbyrgi um helgar.
Um síðustu helgi voru lagðar
skíðagöngubrautir í Ásbyrgi.
Hægt er að fara tvo hringi, annan
um það bil tveggja kílómetra lang-
an og hinn um það bil átta kíló-
metra langan. Brautirnar byrja
báðar við Gljúfrastofu og er stefnt
að því að þær verði lagðar allar
helgar í vetur eða á meðan nægur
snjór er til staðar.
Í byrjun febrúar er svo fyrir-
hugað að vera með skíðagöngu-
kennslu í Ásbyrgi í samstarfi við
Skíðasamband Íslands og verður
hægt að fá allan búnað lánaðan á
staðnum.
Á skíðum í
Ásbyrgi