Fréttablaðið - 30.01.2007, Page 39
{ heiti sérblaðs } 7
Álfrún Tinna Guðnadóttir er fjög-
urra ára nemi í leikskólanum Sól-
stöfum.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera í leikskólanum?
Leika.
Hvað er uppáhaldsmaturinn þinn í
leikskólanum?
Pitsa.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera þegar þú ert ekki í leikskólan-
um?
Fara í ballett. Ég á ballettskó og
kjól.
Áttu einhver systkini?
Já, Rökkva, hann er lítill.
Fékkstu eitthvað fínt í jólagjöf?
Já, brúna tösku.
Á balletskó og kjól
Una Mist Óðinsdóttir er fimm ára
nemi í leikskólanum Sólstöfum.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera í leikskólanum?
Ég veit það ekki.
Áttu einhver systkini?
Ég á einn bróður sem er stærri en
ég. Hann er tíu ára.
Leikið þið ykkur saman?
Stundum. Hann leikur oftast við
vini sína.
En átt þú einhverja vini sem þú
leikur við?
Já, Sæsól og Sunnevu.
Ertu í einhverjum íþróttum?
Já ég er í íþróttaskóla. Það er
gaman.
Áttu einhver dýr?
Nei, en bróðir minn á mús. Hún er í
búri og er svona ljósbrún á litinn.
Hvað ætlarðu að gera þegar þú
verður stór?
Ég ætla að verða kennari í skóla.
Hlakkar þú til að byrja sjálf í
skóla?
Já, ég ætla að fara í sama skóla og
bróðir minn.
Gaman í íþróttaskólanum
Sunneva Embla Guðrúnardóttir er
fjögurra ára nemi í leikskólanum
Sólstöfum.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera í leikskólanum?
Lita, leika mér úti og leika mér inni
og föndra og sauma. Ég sauma á
blað í gatið og aftur í gat og aftur
í gat og aftur í gat og það verður
flott, segir Sunneva brosandi.
Áttu góða vini í leikskólanum?
Já, eina góða vinkonu sem heitir
Sæsól.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera þegar þú ert ekki í leikskólan-
um?
Leira.
Áttu einhver systkini?
Já, bara eitt. Sem er lítill. Sem er
strákur og hann heitir Ásgeir Máni.
Hann er líka með tennur, litlar.
Hann er sætur og hann er með pínu
hár. Ég er búin að klippa hárið mitt.
Mamma mín klippti það.
Áttu einhver dýr?
Nei, Ásgeir Máni er hræddur við
kisu og hund og svoleiðis og fugla.
Hann hefur samt ekki séð fugla.
Ertu búin að ákveða hvað þú ætlar
að verða þegar þú verður stór?
Já, fimm ára.
Langar þig að segja eitthvað að
lokum?
Já, ég vil segja að ég á mörg föt,
mörg glös og tvo bursta heima hjá
mér, einn litlan og einn stóran. Svo
á ég fullt af skálum og fullt af mat
og fullt af nammi. Líka fullt af dóti
handa mér og fullt af dóti handa
Ásgeiri Mána.
Skemmtilegast að saumaSkoðar pöddur í smásjá
Kara Lind Johnsdóttir er fimm ára
og er í leikskólanum Sólstöfum.
Ertu búin að vera lengi í þessum
leikskóla?
Já.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera í leikskólanum?
Kannski lita.
En hvað finnst þér skemmtilegast
að gera þegar þú ert ekki í leikskól-
anum?
Bara að bývaxa kerti.
Áttu einhver systkini?
Já tvö. Eina litla systur og eina
stóra.
Hefurðu einhvern tímann farið í
ferðalag til útlanda?
Já, ég held það.
Áttu einhver dýr?
Nei, en pabbi minn hefur einu sinni
átt dýr.
Fékkstu eitthvað skemmtilegt í jóla-
gjöf?
Já, ég fékk smásjá.
Er ekki gaman að nota hana?
Jú, ég skoða pöddur og svoleiðis.
Ætlarðu kannski að verða vísinda-
kona þegar þú verður stór?
Já.
– Vel lesið
Dreift til rúmlega
80% heimila
Notaðu mest lesna* blað landsins
til að dreifa kynningarefni til
þinna viðskiptavina
Einblöðungar - bæklingar - blöð - umslög
Áhugasamir auglýsendur vinsamlegast hafið samband
við Örn Geirsson | 5505844 | orn.geirsson@365.is
Vertu inní Fréttablaðinu með þitt kynningarefni
*Gallup maí 2006