Fréttablaðið - 09.02.2007, Page 2

Fréttablaðið - 09.02.2007, Page 2
 Kristinn H. Gunnars- son, þingmaður Framsóknar- flokksins, sagði sig úr flokknum í gær og gekk í Frjálslynda flokkinn. Í tilkynningu frá honum kemur fram að hann segi sig úr flokkn- um vegna þess að hann sé ósáttur við stefnu Framsóknarflokksins sem hann lýsir þannig að manngildið hafi þokað fyrir auðgildinu. Hann segir að ríkisfyrirtæki hafi verið einka- vædd án þess að tryggja sam- keppni eða viðunandi þjónustu og víðtækar skattalækkanir hafi aukið misrétti í samfélaginu. Hann segir að með úrsögninni láti hann af stuðningi við ríkis- stjórnina. Farinn í Frjáls- lynda flokkinn Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020. NOTAÐIR BÍLAR BÍLL DAGSINS TOYOTA RAV4 2WD Nýskr. 03.03 - Beinskiptur - Ekinn 53 þús. km. - Allt að 100% lán. Verð 1.230 .000. - Rökstuddur grunur leik- ur á um að maður sem nú situr í gæsluvarðhaldi hafi tælt unglings- stúlku til þess að hafa munnmök við sig. Þetta sést á myndbroti sem lögregla hefur rannsakað. Annað myndbrot í vörslu mannsins sýnir fullorðinn mann hafa samfarir við stúlkubarn. Í greinargerð segir lögreglustjóri höfuðborgarsvæðis- ins rökstuddan grun leika á því að maðurinn hafi brotið gegn stúlk- unum er sýndar eru á myndbrot- unum. Þá virðast bæði myndbrotin vera tekin á mjög líkan hátt, það er af manni sem hefur kynferðismök við stúlkurnar. Um er að ræða einn fimmmenn- inganna sem fóru inn í kjallara- íbúð þar sem þeir töldu sig vera að hitta 13 ára stúlku, en þáttagerðar- menn Kompáss á Stöð 2 höfðu sett tálbeitu á netspjallið MSN. Í byrjun febrúar var tölva mannsins skoðuð, að því er fram kemur í greinargerð lögreglustjór- ans. Við skoðun fundust 13 ljós- myndir er teljast barnaklám að mati lögreglu auk þriggja mynd- banda er teljast barnaklám, þar af eitt tvítekið. Þá fundust 3.782 skrár er innihalda log-samskipti úr spjallforritum. Ljósmyndirnar urðu til á tímabilinu frá 29. ágúst 2005 til 21. janúar 2007. Þá varð annað myndbandið, það sem var tvítekið, til þann 17. desember 2005 en hitt myndbandið 4. júlí 2006. Log-skrárnar urðu til á tíma- bilinu frá 12. júní 2005 til 31. jan- úar 2007. Í kjölfar þessarar rannsóknar var maðurinn handtekinn. Við skýrslutöku af manninum var honum sýnt annað þeirra myndbanda er lögregla fann í tölvu hans er sýnir stúlku eiga munn- mök við mann. Kvaðst hann kann- ast við andlitið á þeirri stúlku, sagði stúlkuna hafa sent honum myndskeiðið árið 2006 en þau hafi spjallað saman á MSN. Er honum voru sýndar 13 ljósmyndir, barna- klám er lögregla fann í tölvu hans, kvaðst hann hafa fengið þær allar í gegnum netið, án þess að vita hvaðan þær komu. Hann kvaðst ekki þekkja stúlkurnar. Þá sagði hann aðspurður um myndskeið er sýndi barn hafa samfarir við full- orðinn mann að hann gæti ekki mótmælt því sem væri í tölvunni en hann hefði ekki vísvitandi vist- að efni sem flokkaðist undir barna- klám. Lögregla telur sig vita hver stúlkan á öðru myndbrotinu er, en hún mun vera fædd árið 1989. Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms þess efnis að maðurinn skyldi sitja í gæsluvarð- haldi til 13. febrúar. Grunaður um að hafa svívirt barn Einn af Kompásníðingunum svokölluðu liggur undir rökstuddum grun um að hafa tælt unglingsstúlku til að hafa munnmök við sig. Jafnframt er rannsakað hvort hann hafði samfarir við stúlkubarn. Myndbrot í vörslu hans sýndu þetta. Margrét Þórhildur Danadrottning gekkst í gær undir uppskurð vegna slitgigtar í hné. Á sjúkrahúsinu í Árósum var settur nýr gervihnjáliður í hægra hné hennar, að því er hirðin upplýsti. „Hennar hátign finnur ekki til neins sársauka og hlakkar til að hefja endurhæfinguna,“ segir í fréttatilkynningu. Vegna slitgigtar- innar hefur verið skipt um báða hnjáliði drottningar, sem er nú 66 ára að aldri, og nokkrar skurðað- gerðir gerðar á síðustu fimmtán árum. Skipt um hægri hnjálið í aðgerð Landlæknisembættið á ekki fulltrúa í starfshópi sem settur hefur verið saman á vegum þriggja ráðuneyta til að fjalla um málefni langt leiddra fíkniefnaneytenda. Þetta staðfesti Matthías Halldórsson landlæknir spurður um hvort rétt væri. Það eru ráðuneyti heilbrigðismála, dómsmála og félagsmála sem skipað hafa hópinn. Í afsökunarbréfi sem Matthías hefur sent Pétri Haukssyni geðlækni, vegna þess að embættið svaraði ekki bréfi hans frá árinu 2002 þar sem vakin var athygli á málefnum skjólstæðinga Byrgisins, kveður landlæknir embættið gjarnan vilja taka þátt í umræðu um hvernig málum fólksins skuli hagað í framtíðinni. „Mikilvægast er að fólk dragi þann lærdóm af því sem gerðist að meiri kröfur séu gerðar til þeirra aðila sem koma að málum þeirra sem eiga við fíknivanda að stríða,“ segir landlæknir. Hann kveðst hafa átt viðræður við þá sem málið varðar, einkum neytendurna sjálfa. Mikilvægt sé að hafa þá með í ráðum þegar ákveðið sé hvað gera skuli. „Hins vegar er lögð áhersla á að landlæknisemb- ættið er einungis ráðgjafar- og eftirlitsaðili í málum sem þessum, en það er stjórnmálamanna að taka ákvarðanir,“ segir landlæknir. „Því miður hafa þær ákvarðanir oft verið án samráðs við landlækn- isembættið og því verið haldið fram að þessi mál séu utan verksviðs þess.“ Landlæknir telur að þótt einstakar stofnanir á vegum félagsmálaráðuneytis- ins séu utan eftirlitshlutverks landlæknisembættis- ins eigi embættið almennt að láta sig varða mál fólks sem er haldið þessum sjúkdómi. Björn Bjarnason dóms- málaráðherra segir að þeir sem voru hleraðir á árunum 1949 til 1968 fái ekki greiddar bætur eins og gert var í Noregi þegar upp komst um svipað mál. Þetta kom fram í svari ráðherrans við fyrir- spurn Steingríms J. Sigfússonar, þingmanns Vinstri grænna, á Alþingi í gær. Björn segir ráðuneytið hafa kynnt sér hvernig staðið var að málum í Noregi og telji atvik þar annars eðlis en hér á landi. Í svari hans kom ekki fram með hvaða hætti málinu voru ólík. Steingrímur spurði einnig hvort dómsmálaráðuneytið hygð- ist upplýsa þá einstaklinga eða eftirlifandi aðstandendur þeirra sem hefðu sætt símhlerunum eða öðrum persónunjósnum um hve lengi þær hefðu staðið yfir. Björn sagði engin áform uppi um það. Björn segir allar beiðnir um símhleranir byggðar á gildandi lögum hvers tíma. Allar beiðnir hefðu verið lagðar fyrir dómara en þeir, embættismenn, lögreglu- menn og símamenn sem komu að því að afla gögnum samkvæmt lögmæltum heimildum hefðu haft vitneskju um starfsemina. Alls segir Björn að óskað hafi verið eftir heimildum til að hlera 93 síma á þessum árum. Ekki hafi fengist staðfest hvenær og hvort leyniþjónustumenn hafi starfað í bandaríska sendiráðinu eða hvort njósnadeild hafi verið á vegum varnarliðsins á Keflavíkurflug- velli. Hleraðir fá ekki bætur Samtökin Sól í straumi skora á bæjaryfirvöld í Hafnar- firði að endurskoða ákvörðun sína að hafa valið Capacent Gallup sem kynningaraðila í aðdraganda kosninga um stækkun álversins í Straumsvík. Í tilkynningu kemur fram að Capacent Gallup hafi undanfarna mánuði unnið skoðanakannanir og markhópagreiningar fyrir Alcan vegna fyrirhugaðrar stækkunar. Capacent Gallup hafi þannig veitt Alcan ráðgjöf og unnið að því markmiði með fyrirtækinu að fá stækkun álversins samþykkta hjá bæjarbúum; þess vegna sé fyrirtækið ekki óháður aðili. Segja Capacent ekki óháð Ísland er meðal fyrstu landa í Evrópu sem meta umhverfisáhrif samgönguáætlun- ar á landsvísu. Umhverfismat samgönguáætlunar fram til ársins 2018 fylgir áætluninni í fyrsta sinn, í samræmi við ný lög frá Alþingi. Í fréttatilkynningu frá samgönguráðuneytinu segir að með umhverfismatinu sé stuðlað að því að taka mið af umhverfis- sjónarmiðum við gerð tillögu að samgönguáætlun. Áætlunin sé í samræmi við aðrar áætlanir, lög og alþjóðlega samninga. Landlægt mat umhverfisáhrifa Ósk, var Framtíðarlandið semsagt á undan sinni sam- tíð?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.