Fréttablaðið - 09.02.2007, Síða 8

Fréttablaðið - 09.02.2007, Síða 8
 Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu varar fólk við óprúttnum aðilum sem hringja í nafni líknar- og góðgerðarsamtaka og segjast vera að safna fé. Borið hefur á því undanfarið að hringt sé í fólk í nafni Mæðrastyrks- nefndar Reykjavíkur og það beðið um að láta í té greiðslukortanúm- er sín og gildistíma. Með því að gefa þær upplýsingar er hægt að taka út umtalsverðar fjárhæðir án þess þó að þær renni til góðgerð- armála. Lögregla tekur fram að Mæðrastyrksnefnd standi ekki fyrir þeirri söfnun sem hér var lýst að framan. Strangar reglur gilda um slíkar fjársafnanir og ekki á færi allra að stunda þannig starfsemi. Ágæt regla er að hafa samband við við- komandi líknar- eða góðgerðarsam- tök og spyrja hvort verið sé að safna fé í þeirra nafni. Þetta ber að gera áður en gefnar eru upplýsing- ar um greiðslukorta- eða reikn- ingsnúmer. Með því má staðreyna hvort um er að ræða raunverulega söfnun eða fjársvikastarfsemi. Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn kveðst ekki vita til þess að fólk hafi tapað peningum vegna þessarar fölsku söfnunar nú. Atvik af þessu tagi verði alltaf af og til. Til standi að birta á heimsíðu lögreglu höfuð- borgarsvæðisins nöfn allra þeirra sem hafa leyfi til fjársafnana, þannig að fólk geti varað sig á fals- söfnunum. Hádegisfundarröð ReykjavíkurAkademíunnar um lýðræði og samfélag hefst mánudaginn 12. febrúar, kl. 12.15 okka auk Jóns Ólafssonar heimspekings ræða um lýðræði í íslensku samfélagi. Hringbraut 112. Nesbyggð Nesbyggð ehf. | Stapabraut 5 | 260 Reykjanesbær | Sími: 421 2700 | Fax: 421 2765 Sölusýning Opið hús laugardag og sunnudag frá klukkan 10:00 til 17:00 Tjarnabakki 12. Reykjanesbæ. Sýnum um helgina fullbúnar íbúðir í Tjarnabakka. Íbúðirnar eru 120m2 og eru selar með öllum rafmafnstækjum. Opið hús 10 til 17 laugardag og sunnudag. ATH 90% lán - engin þinglýsingar eða lántökugjöld Beykidalur Erum að byrjað selja litlar íbúðir í Beykidal sem verða tilbúnar í ársbyrjun 2008. Nánari upplýsingar á www.nesbyggd.is og hjá fasteignasölum í Reykjanesbæ Í bréfi sem Arna Schram, formaður Blaðamannafé- lags Íslands, BÍ, sendi í gær til Halldórs Ásgrímssonar, fram- kvæmdastjóra Norrænu ráðherra- nefndarinnar, er reifuð deila BÍ við menntamálaráðherra. Þar kemur fram að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra sé eini ráðherrann á Norðurlöndunum sem kjósi að starfa ekki með fagfélagi blaða- manna síns lands að málefnum Norræna blaðamannaskólans, NJC, í Árósum. „BÍ lítur því svo á að ekki sé lengur í þess verkahring að aug- lýsa námskeið skólans. Auk þess hlýtur að koma til álita að beina endurmenntunarstyrkjum blaða- manna einnig til annarra skóla en NJC,“ segir Arna. NJC er verkefni Norrænu ráð- herranefndarinnar og Arna segir ákvörðun menntamálaráðherra stríða gegn grunngildum skólans. „Þess vegna upplýsi ég fram- kvæmdastjórann um þetta,“ segir hún. Arna bætir við að ákvörðun Þorgerðar hafi vakið athygli hinna norrænu blaðamannafélaganna. Blaðamannasamtökin tilnefndu þau Birgi Guðmundsson lektor og Svanborgu Sigmarsdóttur blaða- mann Fréttablaðsins. Ráðherra skipaði hins vegar þau Ólaf Þ. Stephensen aðstoðar- ritstjóra Morgunblaðsins og Elfu Ýr Gylfadóttur, deildarstjóra í menntamálaráðuneytinu. Kvartar undan ráðherranum Hæstiréttur sýknaði í gær karlmann sem Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í þrjátíu daga fangelsi fyrir frelsissviptingu. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa haldið starfsmanni Orku- veitu Reykjavíkur nauðugum á skrifstofu í hálfa klukkustund fyrir ári. Starfsmaðurinn lokaði fyrir rafmagn á skrifstofu ákærða. Ákærði vildi að starfsmaðurinn væri viðstaddur meðan hann hringdi í Orkuveituna til að fá skýringar á lokuninni því hann hefði greitt rafmagnsreikninginn. Hæstiréttur taldi sannað að starfsmaðurinn hefði farið sjálfviljugur inn á skrifstofuna. Eins var talið ósannað að starfs- maður Orkuveitunnar hefði reynt að komast út og maðurinn hefði varnað honum útgöngu. Sýknaður af frelsissviptingu Leiðtogar hinna stríðandi palestínsku fylkinga Fatah og Hamas skrifuðu í gær- kvöld undir samkomulag um þjóð- stjórn í Palestínu eftir tveggja daga stífar viðræður í Mekka. Tilgangur viðræðnanna var tví- þættur. Annars vegar að ná sam- komulagi um þjóðstjórn sem báðar fylkingar eiga aðild að og hins vegar að þjóðstjórnin viðurkenni fyrri friðarsamninga sem Frelsis- samtök Palestínu, sem Fatah til- heyrir, gerðu við Ísrael. Samið var um skipan í ráð- herrastöður í gær en sérstaklega hefur verið deilt um embætti inn- anríkisráðherra þar sem því emb- ætti fylgir stjórn á öryggissveit- um. Sæst var á að Hamas myndi leggja fram lista með nöfnum frambjóðenda og að Abbas sam- þykkti einn af þeim. Hamas, sem vann stórsigur í kosningum fyrir rúmu ári síðan, hefur neitað að viðurkenna til- verurétt Ísraelsríkis og þar af leiðandi neitað að viðurkenna frið- arsamninga við Ísrael þar sem í því fælist viðurkenning á tilveru- rétti þess. Í samkomulaginu sem leiðtogarnir undirrituðu í gær sagði að þjóðstjórnin myndi „virða“ fyrri friðarsamninga við Ísrael. Fulltrúar Hamas höfðu fyrr um daginn sagt að slíkt orða- lag þýddi ekki að Hamas viður- kenndi tilverurétt Ísraels. Stjórnvöld í Ísrael og Banda- ríkjunum krefjast þess að Hamas viðurkenni tilverurétt Ísraelsríkis og hafni ofbeldi með öllu. Sé þess- um skilyrðum ekki fullnægt er óvíst að Bandaríkin aflétti alþjóð- legu viðskiptabanni á palestínsku stjórnina. Einnig er þá óvíst að ísraelsk stjórnvöld muni hefja friðarvið- ræður við nýja palestínska stjórn en til stendur að Ehud Olmert, for- sætisráðherra Ísraels, og Condol- eezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fundi með Mah- moud Abbas, forseta Palestínu, 19. febrúar næstkomandi í Jerúsalem til að reyna að blása lífi í friðar- viðræður. Þjóðstjórn Hamas og Fatah í Palestínu Leiðtogar Fatah og Hamas skrifuðu í gærkvöldi undir samkomulag um þjóð- stjórn í Palestínu í Mekka. Nýja þjóðstjórnin mun virða fyrri friðarsamninga við Ísrael. Umdeilt embætti innanríkisráðherra skipað eftir samkomulagi. Þróunarsamvinnustofn- un Íslands, ÞSSÍ, og stjórnvöld í Níkaragva hefja brátt viðræður um samvinnu á sviði orkumála. Stjórn Sandínista hefur lýst yfir áhuga á að hraða þróun jarðhita- mála í samvinnu við íslensk fyrirtæki. Að sögn Gísla Pálsson- ar, umdæmisstjóra ÞSSÍ í landinu, mun stofnunin koma þessu á framfæri við þau. Mikill ónýttur jarðhiti sé í Níkarakva. Gísli segir einnig að ný Sandínistastjórn Daniels Ortega líti sérstaklega til Íslands í orkumálum. Níkaragva er eitt fátækasta ríki vesturhvels jarðar. Samstarf við Sandínista Hver er rektor Háskólans á Hólum? Hverjir eru stýrivextir Seðla- bankans? Í hvaða flokk gekk Kristinn H. Gunnarsson í gær? Háskólinn á Bifröst útskrifar 46 kandídata á morgun. 34 þeirra eru í grunnnámi en tólf útskrifast með meistarapróf Þetta er fyrsta útskrift Ágústs Einarssonar, nýs rektors skólans. Af þeim sem útskrifast í grunnnámi eru fimmtán í viðskiptafræði og nítján í viðskiptalögfræði. Með meistara- próf útskrifast einn í hagnýtum hagvísindum, þrír í menningar- stjórnun, sex í lögfræði og tveir í viðskiptafræði. Viðskiptadeild, lagadeild og félagsvísindadeild eru við háskólann. Tæpir fimmtíu útskriftarnemar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.