Fréttablaðið - 09.02.2007, Síða 12

Fréttablaðið - 09.02.2007, Síða 12
Mjög hátt hlutfall íslenskra ungmenna skráir sig í framhaldsskóla við 16 ára aldur, á bilinu 90 til 98 prósent þegar hlut- fallið er skoðað eftir landshlut- um. Tveir af hverjum níu nem- endum sem byrja í framhaldsskóla eru hættir við 19 ára aldur víðast hvar á landinu, en Suðurnesin skera sig úr, þar hætta fjórir af hverjum níu fyrir 19 ára aldur- inn. Þessar tölur koma fram í nýju vefriti menntamálaráðuneytisins, þar sem finna má upplýsingar um skólasókn í framhaldsskólum eftir landshlutum og kyni nem- enda. Við 19 ára aldur er rétt tæpur helmingur karla á Suðurnesjun- um í framhaldsskóla, og 55 pró- sent kvenna. Annars staðar á landinu eru á bilinu 63 til 70 pró- sent karla í skóla, og frá 68 og allt upp í 83 prósent kvenna. Á landinu öllu voru konur lík- legri til að stunda nám í fram- haldsskóla við 19 ára aldur en karlar, og munar gjarnan fimm til tíu prósentustigum. Munurinn er þó áberandi mestur á Vestfjörð- um, þar sem 83 prósent 19 ára kvenna eru í framhaldsskóla, en aðeins 63 prósent karla, og munar því 20 prósentustigum á kynjun- um. Mest brottfall á Suðurnesjum Dagsathvarf fyrir fólk sem á við geðraskanir að stríða verður rekið áfram á Akureyri. Athvarfið er nú í Þingvallastræti 32 en verður flutt í Brekkugötu 34 í vor. Akureyrardeild Rauða kross Íslands, Geðverndarfélag Akureyrar og Akureyrarbær gerðu með sér samning þess efnis í gær. Samningurinn gildir til ársins 2009. Akureyrardeild Rauða krossins mun annast daglegan rekstur en Geðverndarfélag Akureyrar sér um fræðslu og þjálfun starfsfólks. Rekstraráætl- un athvarfsins er um fimmtán milljónir króna á ári. Athvarfið áfram rekið á Akureyri Lögmenn franska háðsádeilu-vikublaðsins Charlie- Hebdo verja rétt blaðsins til að hæða íslamstrú og önnur trúar- brögð í máli sem hefur verið höfðað gegn því fyrir að birta skopmyndir af Múhameð spámanni. Franskir stjórnmálamenn, þar á meðal innanríkisráðherrann Nicolas Sarkozy, hafa komið blaðinu til varnar frá því að réttarhöldin hófust. Blaðið og ritstjóri þess eru ákærð fyrir að „opinberlega rægja hóp fólks vegna trúar þess“ og getur refsing verið allt að sex ára fangelsi. Verja réttinn til að hæðast að trúarbrögðum Ráðherrar frá Búlgaríu, Grikklandi og Rússlandi undirrituðu á miðvikudag samning um lagningu nýrrar olíuleiðslu frá búlgörsku Svartahafsborginni Burgos til grísku hafnarborgarinn- ar Alexandroupolis. Með nýju leiðslunni opnast ný og greiðari útflutningsleið fyrir rússneska olíu, framhjá Bosporussundi í Tyrklandi sem skiptaflutningar ganga mjög hægt um vegna hinnar gríðarlegu miklu umferðar um það. Leiðslan verður um 280 km að lengd og er þess vænst að kostnað- urinn við smíðina nemi sem svarar á bilinu 50-70 milljörðum króna. Ný útflutnings- leið Rússaolíu Öryggi sjúklinga í íslensku og alþjóðlegu heilbrigðis- kerfi verður best aukið með vit- undarvakningu heilbrigðisstétta og sjúklinga. Handþvottur er mik- ilvægasti einstaki þátturinn sem hægt er að draga fram til að sporna við sýkingarhættu á sjúkrahúsum og gæti sparað þjóð- félaginu háar upphæðir. Þetta á við hreinlæti um heilbrigðisstarfs- fólks á sjúkrahúsum jafnt sem í daglegu lífi fólks. Þetta var meðal niðurstaðna málþings um öryggi sjúklinga sem haldið var á vegum landlæknisembættisins í gær þar sem Sir Liam Donaldson, land- læknir Breta, var aðalfyrirlesari. „Á síðustu tíu árum hefur komið upp á yfirborðið sú stað- reynd að öryggi í heilbrigðis- geiranum hefur ekki fengið næga athygli. Rannsóknir sýna að mis- tök, alvarleg og minniháttar, eru algengari en áður var almennt talið. Það er ekki til komið vegna skeytingarleysis heldur er umhverfið sem heilbrigðisstarfs- fólk vinnur í þess eðlis að hættan er sífellt fyrir hendi,“ segir Don- aldson. Hann segir heilbrigðis- stéttir hafa horft mikið til tækni- legra þátta við starf sitt en til þurfi að koma ný hugsun í örygg- ismálum. „Það verður best gert með því að gera öryggi sjúklinga hærra undir höfði í námi heil- brigðisstétta og bæta samskipti við sjúklinga.“ Ólafur Guðlaugsson, yfirlækn- ir sýkingavarnadeildar Landspít- alans, fjallaði um sýkingavarnir á sjúkrahúsum og sagði handþvott grunnatriði í að uppræta sýkingar. Hann sagði kostnað um allan heim gífurlegan en hafa bæri í huga að baki tölfræðinni væri fólk sem þyrfti að líða þjáningar og jafnvel léti lífið vegna sýkinga. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- ráðherra undirritaði samkomulag um þátttöku Íslands í verkefninu „Hreinlæti og örugg heilbrigðis- þjónusta haldast í hendur“ eftir málþingið, sem er hluti af alþjóð- legu átaki er snýr að öryggi sjúk- linga. Alls hafa heilbrigðisráð- herrar 50 landa undirritað samkomulagið. Siv segir samning- inn mikilvægan vegna þess að yfirvöld undirgangist skyldur sem bæta öryggi sjúklinga. „Eitt það mikilvægasta eru tíðari hand- þvottar til að fyrirbyggja sýking- ar. Við vitum að sjúklingar fá sýk- ingar inni á sjúkrastofnunum en ekki er síður mikilvægt að undir- strika mikilvægi handþvotta hjá almenningi.“ Siv bendir á að ein- falt atriði eins og handþvottur geti aukið lýðheilsu og í því felist mik- ill sparnaður fyrir samfélagið. Handþvottur getur bjargað mannslífi Öryggi sjúklinga í íslensku heilbrigðiskerfi má helst auka með vitundarvakn- ingu heilbrigðisstétta og sjúklinga. Ísland stendur vel í alþjóðlegum samanburði í öryggi sjúklinga. Sýkingar eru eitt alvarlegasta heilbrigðisvandamál heimsins. Portúgalar munu ganga til þjóðarat- kvæðagreiðslu á sunnudag um lagasetningu sem gerir fóstureyðingar leyfilegar fram á tíundu viku með- göngu. Í Portúgal, þar sem 90 prósent landsmanna eru kaþólikkar, eru við lýði ein ströngustu lög um fóstureyðingar af öllum Evrópusambandsþjóðunum ásamt Póllandi, Írlandi og Möltu. Vinstri-miðjuflokkur sósíalista, sem komst til valda eftir stórsigur fyrir tveimur árum með kosningalof- orðum um umbætur og nútímavæðingu, boðaði til þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Leiðtogi flokksins og forsætisráðherrann, Jose Socrates, segir nauðsynlegt að Portúgal losi sig við úrelt viðhorf og bendir á að 23 Evrópusambandsþjóðir leyfi fóstureyðingar. Í dag eru fóstureyðingar leyfðar fyrstu tólf vikurnar en aðeins ef um er að ræða nauðgun, vanskapað fóstur eða ef heilsa móðurinnar er í hættu. Slík lög færa fóstureyð- ingar í neðanjarðarstarfsemi þar sem heilsu kvenn- anna er hætta búin að sögn Sókratesar sem segir að um 10.000 konur séu lagðar inn á sjúkrahús árlega í kjölfar mistaka við fóstureyðingar. Samkvæmt nýjustu könnun ætla rétt rúmlega 50 prósent landsmanna að kjósa „já“ á sunnudaginn og ljóst að mjótt verður á mununum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.