Fréttablaðið - 09.02.2007, Page 18

Fréttablaðið - 09.02.2007, Page 18
nær og fjær „ORÐRÉTT“ Hin svokallaða Böggla- geymsla KEA hefur staðið í niðurníðslu í Grófargilinu á Akureyri undanfarin ár. Nú hefur listakokkurinn Friðrik V. fengið inni í hús- inu sem verður gert upp og fært í upprunalegt horf. Á undanförnum árum hefur annað slagið komið upp sú umræða hvort ekki eigi að blása lífi í gömlu bögglageymsluna sem staðið hefur auð í 36 ár. Húsið er fallegt og ýmsar hugmyndir hafa verið bornar á borð fyrir KEA- menn sem nú hafa tekið ákvörðun um framtíð hússins. Vetingastað- urinn Friðrik V. flytur í húsið og þenur út starfsemi sína. „Við hjónin höfum horft á þetta hús í nokkur ár og alltaf verið svolítið skotin í því,“ segir kokk- urinn Friðrik V. Karlsson sem undanfarin ár hefur rekið veit- ingastaðinn Friðrik V. Brasserie í litlu húsi við Strandgötuna. Friðrik og eiginkona hans, Arnrún Magnúsdóttir, hafa lagt áherslu á hráefni af Eyjafjarðar- svæðinu og það verkefni verður þanið út þegar í Bögglageymsluna er komið. „Við ætlum að hnoða utan um starfsemina. Við verðum með aðeins stærri veitingastað en við höfum núna. Í kjallaranum þar sem kjötbúðin var forðum verð- um við með sælkeraverslun þar sem fólk getur keypt ýmislegt góðgæti úr héraðinu, fisk, kjöt, osta og mjólkurvörur. Þá verðum við líka með stóra koníaksstofu og rúmgóðan fjölnota sal þar sem hægt verður að halda veislur, fundi, tónleika og aðrar uppákom- ur. Áhersla á hráefni úr héraði fer vel saman við sögu hússins sem þjónaði ýmsum hlutverkum fyrir Kaupfélagið á síðustu öld. „Húsið er byggt árið 1907 og verður því 100 ára á þessu ári. Það var byggt sem sláturhús fyrir KEA en síðar var þar einnig kaffibrennsla, kjöt- búð, gosdrykkja- og sælgætisgerð auk þess sem Mjólkursamlagið var með starfsemi þar. Það fylgir því viss ábyrgð að fara inn í þetta merkilega hús og viðhalda sögu þess en við erum ákaflega stolt af því að fá það hlutverk,“ segir Frið- rik og bætir við að bæjarbúar séu spenntir fyrir verkefninu og hafi verið duglegir að koma með ábendingar. „Einhverjir vilja að við köllum nýja staðinn Slátur- húsið. Mér finnst það ekki alveg við hæfi og ætla að halda mínu nafni enda hefur það fest sig í sessi,“ segir Friðrik sem stefnir á að flytja í Bögglageymsluna í sumar. „Það er ekki komin nein föst dagsetning en við ætlum að reyna að ná sumartraffíkinni. Svo er ég búinn að bóka nokkrar brúð- kaupsveislur á nýja staðnum í haust svo það er pressa að klára þetta,“ segir Friðrik. Loksins líf í bögglageymsluna Lög um fæðingaror- lofssjóð Bensínhákana burt Margar sýningar í bígerð Sjálfboðaliðar Landsbjargar og Rauða krossins kynna starf sitt um allt land á sunnudaginn, en þá er 112-dagurinn haldinn hátíðleg- ur. Dagurinn er helgaður marg- víslegum störfum sjálfboðaliða að forvörnum, leit og björgun, almannavörnum og neyðarað- stoð. Í fréttatilkynningu frá 112 segir að mörg þúsund sjálfboða- liðar um allt land hafi fengið und- irbúning og þjálfun til að gegna ýmsum mikilvægum verkefnum vegna slysa og náttúruhamfara. Þeir sinni leit og björgun og veiti neyðaraðstoð, skyndihjálp og sál- rænan stuðning. Starf þeirra verði kynnt á 112-daginn. Dagskráin á höfuðborgarsvæð- inu hefst þegar 112-lestin, bílar lögreglu, slökkviliðs, björgunar- sveita og fleiri, leggur af stað frá Skógarhlíð 14 og ekur með blikk- andi ljósum um höfuðborgar- svæðið. Þyrla Landhelgisgæsl- unnar fylgir lestinni eftir úr lofti. Lestin fer síðan á bílastæðið við Smárabíó þar sem björgunartæki verða til sýnis fram eftir degi. Auk þess verður efnt til hátíð- ardagskrár á Akranesi, Borgar- nesi, Ísafirði, Sauðárkróki, Húsa- vík, Akureyri, Vopnafirði, Egilsstöðum, Fáskrúðsfirði, Hornafirði og Selfossi. Gleðilegar ræstingar – og farsælan vinnudag! R V 62 26 Rekstrarvörur 1982–200725ára TASKI Swingo 450 Einstakleg lipur vél sem hentar vel þar sem er þröngt. Raunhæf afköst 450m2/klst TASKI Swingo 1250 B Hentar meðalstórum fyrirtækjum og stofnunum. Raunhæf afköst 1250m2/klst Nánari upplýsingar veita sölumenn og ráðgjafar hjá RV Áhrif á vinstri- flokkana

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.