Fréttablaðið - 09.02.2007, Page 22

Fréttablaðið - 09.02.2007, Page 22
fréttir og fróðleikur Óvinsæl og umdeild nauðsyn Verð seint vellauðugur Í áratugi hafa menningar- verðmæti sem geymast í safni RÚV verið vanrækt. Einn maður í hálfu starfi hefur unnið að því að bjarga hluta safnsins. Ekkert í lög- um hefur sagt til um hvað skyldi gert við þetta efni. Nýr samningur vekur þó vonir um breytta forgangs- röðun. Á fyrstu árum Ríkisútvarpsins var stór hluti efnis sem var sent út í beinni útsendingu ekki tekinn upp á band. Það efni sem tekið var upp var gjarnan tekið yfir síðar til að endurnýta myndböndin, því RÚV skorti fé. Mikið efni er sagt hafa verið sent á haugana til að spara pláss. Mörg dæmi eru um löngu glatað efni, sem engum dytti í hug annað en setja á safn nú til dags. Þrátt fyrir þessa forsögu er gríðarmikið efni í safni RÚV sem hefur varðveist, en er lítt aðgengi- legt almenningi og fræðimönn- um. Skal þar fyrst telja lakkplötusafn RÚV. Í því eru allt að 6.000 plötur frá árunum 1935 til sjöunda ára- tugarins. Ekki er hægt að spila þessar lakkplötur til útsendingar, efni þeirra er viðkvæmt og mjúkt og þolir einungis nokkrar spilanir. Til að þær nýtist þarf því að koma þeim á annað form. Sem dæmi um söguleg verð- mæti sem hafa fundist í þessu safni má nefna elstu plötuna, frá árinu 1935. Á þeirri plötu eru brot úr viðtali Vilhjálms Þ. Gíslasonar við Jóhannes Kjarval, sem þá var að kynna sýningu sína í Lista- mannaskálanum. Plöturnar geyma annars fjöl- breytilegt efni; viðtöl, tónlist, barnatíma, smásögur og fleira. Mikill hluti þessa efnis er illa skráður og á sumum platnanna er ekki vitað hverjir koma fram. Einnig eru dæmi um tónverk og viðtöl sem eru á einni eða fleiri plötum og vantar því starfskraft sem menntaður er í sagnfræði og sérstaklega í íslenskri tónlistar- sögu, bæði til að bera kennsl á verkin og til að koma aðskildum plötum saman. Aukinheldur þarf að skrásetja innihald platnanna. Á sumar vant- ar allar upplýsingar, jafnvel dag- setningu. Magnús Hjálmarsson útvarps- virki hefur starfað í tæp 54 ár hjá RÚV. Fyrir tilstuðlan Markúsar Arnar Antonssonar, fyrrverandi útvarpsstjóra, var hann fenginn til starfa í safnadeild RÚV við lakkplöturnar árið 1997. „Það var búið að ræða þetta í mörg ár, en enginn peningur fannst. Markús tók af skarið þarna, þótt peninga- staðan hefði ekkert breyst,“ segir Magnús, sem hefur verið í hálfu starfi við þetta síðan. Hann metur starfið framundan sem feiknar- mikla vinnu og tímafreka. Lakkplöturnar eru úr lífrænu efni, unnu úr húðum af nautgrip- um og sumar þeirra eru farnar að mygla. Þarf því að þvo þær og þrífa með sérstökum efnum. Síðan þarf að taka hljóðið upp á stafrænt form og loks að marg- yfirfara þá upptöku, hreinsa hana af smellum, brestum, suði og fleira. Að þeirri vinnu lokinni, segir Magnús, eru hljómgæðin nokkuð góð. Plöturnar séu í misjöfnum gæðum sem slíkar, en langmest af efninu sem þær geyma sé útsendingarhæft. Gamla segulbandasafnið hjá RÚV er betur skrásett. Það geym- ir upptökur frá því um 1950 og fram yfir 1960. Segulböndin eru farin að skemmast. Magnús kveð- ur sum segulböndin stökk orðin af elli, svo þau hrökkvi í sundur við óvarkára snertingu. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins starfar enginn við að koma þessu safni til bjargar. Í september síðastliðnum var kynntur samningur menntamála- ráðuneytisins við RÚV um útvarpsþjónustu í almannaþágu. Svo segir í þriðju grein hans: „RÚV skal gera áætlun um að koma eldra efni, t.d. á plötum, seg- ulböndum og filmum, yfir á aðgengilegt form til geymslu og til framtíðarnotkunar á efninu. Skal RÚV birta þá áætlun eigi síðar en 31. desember 2007.“ Páll Magnússon útvarpsstjóri segir að áætlunin sé ófrágengin, en stefnt sé á að ljúka henni á næstu tveimur, þremur mánuðum. Hann kallar þetta að „opna gull- kistuna“. „Það þarf að forða frá skemmd- um ómældum menningarverð- mætum sem eru þarna inni. [...] Margt af því hrópar á að verða aðgengilegt,“ segir Páll og tekur sem dæmi upplestur Halldórs Laxness á eigin verkum. „Þessu ætti fólk að geta hlaðið inn á iPod- ana sína.“ Það er ljóst að mikið starf er fyrir höndum, en verðmætamat hefur breyst mikið frá því gamlar upptökur RÚV voru flokkaðar undir óþarfa og jafnvel fargað. Á næstu árum kann svo að fara að menningarverðmætum RÚV verði loksins sýndur sómi. Lífrænar heimildir mygla hjá RÚV Allt á að seljast lt á að seljast Allt á að sel ar br.153cm kr. 8,000- Sjónvarpsskápur lokaður kr. 9,000- Gestarúm kr. 6,500- stærð 100x192 cm Sala Varnarliðseigna Útrýmingarsala Skápar, sófaborð, sófar, stólar og fl.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.