Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.02.2007, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 09.02.2007, Qupperneq 26
greinar@frettabladid.is Ekkert blað? 550 5600 Fyrst þú ert að lesa þetta þá hefurðu fengið Fréttablaðið. En til vonar og vara skaltu klippa þetta símanúmer út og hringja ef blaðið berst ekki. - mest lesið Prófessorarnir Þorvaldur Gylfason og Stefán Ólafsson hafa klifað á því síðustu mánuði, að ójöfnuður hafi hér stóraukist. Stjórnarandstæðingar hafa tekið hressilega undir með þeim. Til marks um aukinn ójöfnuð nefna þeir Þorvaldur og Stefán svo- nefndan Gini-stuðul, sem er mælikvarði á tekjuskiptingu. Þar sem tekjuskiptingin er jöfn, er stuðullinn 0, en þar sem hún er eins ójöfn og framast má verða (einn maður hefur allar tekjurn- ar), er stuðullinn 1. Hinn 10. ágúst 2006 birti Þorvaldur Gylfason grein í Fréttablaðinu undir fyrirsögninni „Hernaður gegn jöfnuði“. Þar kvað hann ríkisskattstjóraemb- ættið hafa reiknað út fyrir sig Gini-stuðla fyrir Ísland tólf ár aftur í tímann. (Það er aukaatriði, að enginn hjá embættinu kannast við að hafa gert þetta.) Sam- kvæmt tölum Þorvalds var Gini- stuðull fyrir Ísland árið 2005 0,36 og hafði hækkað árlega að meðaltali um rösk 0,1 stig. Þorvaldur kvað sögulegt, að tekjuskiptingin á Íslandi væri orðin eins ójöfn og í Bretlandi. Hinn 31. ágúst 2006 birti Stefán Ólafsson grein í Morgun- blaðinu undir fyrirsögninni „Aukning ójafnaðar á Íslandi“. Þar gerði hann tölur Þorvalds að sínum, enda væru þær, sagði Stefán, í góðu samræmi við lífskjarakönnun, sem Evrópusam- bandið vinnur að í samstarfi við hagstofur aðildarríkjanna auk Sviss, Noregs og Íslands. Stefán birti með greininni línurit um, að Gini-stuðullinn fyrir Ísland hefði farið úr 0,25 árið 1995 í 0,35 árið 2004. Þetta væri miklu ójafnari tekjuskipting en annars staðar á Norðurlöndum. Stefán bætti um betur í viðtali við Fréttablaðið 30. október 2006. Þar sagði hann, að ójöfnuður hefði aukist hraðar á Íslandi síðustu tíu árin en í Chile á valdadögum herforingjastjórnar Pinochets. Þessi ummæli þóttu sæta slíkum tíðindum, að Fréttastofa útvarpsins birti sama dag sérstaka frétt um þau. Greinarnar og viðtölin má sjá á heimasíðum Þorvalds, Stefáns, Fréttablaðsins og Morgunblaðsins á Netinu. Ég benti á það opinberlega fyrir skömmu, að þeir Þorvaldur og Stefán hafa rangt fyrir sér. Ástæðan er einföld. Í tölum þeim um Gini-stuðla, sem þeir notuðu fyrir Ísland, var söluhagnaður af hlutabréfum tekinn með. Hann veldur mestu um, hversu ójöfn tekjuskiptingin mælist á Íslandi, því að hann skiptist fremur ójafnt. Í tölum þeim um Gini- stuðla, sem Þorvaldur og Stefán notuðu fyrir önnur lönd, er söluhagnaður af hlutabréfum hins vegar ekki tekinn með, enda er það ekki venja, þar eð þetta eru óreglulegar fjármagnstekjur. Hvorki Þorvaldur né Stefán hafa leiðrétt tölur sínar opinber- lega, en Stefán lætur þessa atriðis stuttlega getið í nýlegri ritgerð í vefriti Stofnunar stjórnsýslu og stjórnmála. Um eitt hundrað manns lesa það rit, þúsund sinnum færri en sáu ummæli Stefáns í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu. Nú er nýkomin út skýrsla Hagstofu Íslands, Lágtekjumörk og tekjudreifing 2003-2004. Þar er stuðst við þá lífskjarakönnun Evrópusambandsins, sem Stefán vitnaði í. Margt kemur þar merkilegt fram. Árið 2004 reyndist fátækt (samkvæmt skilgreiningu Evrópusambands- ins) til dæmis vera einna minnst á Íslandi af öllum Evrópulöndum. Hún var aðeins minni í einu landi, Svíþjóð, en meiri í 28 löndum, þar á meðal Noregi, Danmörku og Finnlandi. Ekki var síður athyglisvert, að tekjuskipting á Íslandi var samkvæmt skýrslunni jafnari en í langflestum öðrum löndum Evrópu. Gini-stuðull árið 2004 fyrir Ísland var 0,25. Hann var aðeins lægri í þremur löndum, Slóveníu, Svíþjóð og Danmörku, og munar þó litlu. Gini-stuðull var hærri (tekjuskipting ójafnari) í 28 löndum. Hann var 0,26 fyrir Finnland og 0,28 fyrir Noreg. Þessar tölur eru reiknaðar út eins í öllum Evrópulöndum, án söluhagnaðar af hlutabréfum. Þær sýna, að ójafnaðartal þeirra Þorvalds og Stefáns var út í bláinn. Tölur þeirra um Gini- stuðla fyrir Ísland voru rangar eða að minnsta kosti ósambæri- legar við tölur frá öðrum löndum. Stjórnarandstæðingar urðu ginningarfífl þeirra. Ginningarfífl Þorvaldur og Stefán hafa rangt fyrir sér. Ástæðan er einföld. Í tölum þeim um Gini-stuðla, sem þeir notuðu fyrir Ísland, var söluhagnaður af hlutabréf- um tekinn með Hreinn Loftsson hrl., stjórnarformaður Baugs Group, sendi f.h. félagsins yfirlýs- ingu til fjölmiðla 7. febrúar sl. Að því tilefni vill Ríkislögreglustjórinn taka eftirfarandi fram. Umræða í fjölmiðlum síðustu daga hófst að frumkvæði fréttamanna sem fengið höfðu afhent afrit af bréfaskriftum milli embætta Ríkislögreglustjórans og Skattrannsóknar- stjóra ríkisins. Þessi gögn voru ekki afhent af emb- ættinu, sem hafði hafnað beiðni um slíkt. Líklegt er að annar tveggja af 9 mönnum sem getið hefur verið í umræðunni og höfðu fengið umrædd gögn afhent hjá Skattrannsóknarstjóra, á grundvelli stjórn- sýslulaga, hafi afhent gögnin. Vegna þeirrar fjöl- miðlaumræðu sem hófst mánudaginn 5. febrúar sl. sá embættið sig tilknúið að senda frá sér fréttatil- kynningu 6. febrúar sl. Hreinn fullyrðir að enn á ný hafi Ríkislögreglu- stjórinn lekið upplýsingum til fjölmiðla, það er þó ekki með nokkrum hætti rökstutt með hvaða hætti það á að hafa gerst eða hvaða upplýsingar það eru. Verður ekki séð að Hreinn sé að vísa til fréttatil- kynningar embættisins enda verður hún vart flokk- uð sem leki heldur bein upplýsingagjöf til almenn- ings. Ríkislögreglustjórinn getur ekki tekið ábyrgð á umfjöllun fjölmiðla um einstök mál né stjórnað umfjöllun þeirra um gögn sem þeir hafa fengið í hendur. Ríkislögreglustjórinn hefur engan hag af, né vilja til, að koma höggi á nokkurn starfsmann Baugs Group hvorki fyrrver- andi né núverandi. Nöfn einstaklinga hafa fréttamenn tekið upp úr gögnum sem þeir hafa undir höndum en ekki fréttatilkynn- ingu embættisins frá 6. febrúar. Í yfirlýsingu sinni vísar Hreinn til umfjöllunar í fréttum RÚV og að fjárhæð- ir séu þar slitnar úr samhengi. Ríkislög- reglustjórinn veitti fréttamönnum RÚV þær upp- lýsingar sem fram koma í fréttatilkynningunni frá 6. febrúar, aðrar ekki. Í yfirlýsingu sinni segir Hreinn Loftsson að svo virðist sem „tilgangur nýjasta lekans“ sé að hafa áhrif á aðalmeðferð í eftirstöðvum Baugsmálsins sem er að hefjast, án þess að rökstyðja það frekar. Óljóst er hvaða áhrif þetta á að hafa í umræddu máli. Ríkislögreglustjórinn vill árétta að sú umræða sem farið hefur fram í fjölmiðlum og var tilefni yfirlýsingar Hreins hófst án þess að Ríkislögreglu- stjórinn gæti þar nokkru um ráðið hvort og hvenær hún fór fram. Ríkissaksóknari hefur rannsakað slík- ar ávirðingar áður og komist að þeirri niðurstöðu að enginn fótur væri fyrir slíkum áburði. Höfundur er saksóknari efnahagsbrota. Athugasemd saksóknara S tóraukin meðvitund þjóðarinnar um umhverfismál er ánægjuleg þróun. Sérstaklega þegar haft er í huga að ástæða þess að Ísland er enn tiltölulega óspillt og ómengað liggur fremur í fámenni þjóðarinnar og stærð landsins en því að landsmenn hafi umgengist náttúruna af virðingu og snyrtimennsku hingað til. Öllum vísbendingum um breytt hugarfar ber því að fagna; það er aldrei of seint að bæta ráð sitt. Hitt er ekki síður fagnaðarefni að við Íslendingar skulum yfirhöfuð vera í þeirri aðstöðu að geta látið okkur annt um umhverfið. Án þess að á nokkurn hátt sé gert lítið úr mikil- vægi umhverfismála, þá leikur enginn sérstakur vafi á því að önnur mál en náttúruvernd væru nú á oddinum á Íslandi ef Íslendingar byggju ekki við drjúga velmegun; hugsanlega þá mestu í sögu þjóðarinnar. Líkur hafa áður verið leiddar að því á þessum vettvangi að úrslit kosninganna í vor muni að stórum hluta velta á því hvernig stjórnmálaflokkunum tekst að setja fram stefnumál sín við þessar góðu efnahaglegu aðstæður, þegar kjósendur eru tilbúnari en ella að fylkja sér um mál á borð við umhverf- isvernd. Af skoðanakönnunum að dæma njóta vinstri-græn einmitt um þessar mundir áherslu flokksins í þeim efnum. Uppskerutíminn er þó ekki fyrr en í vor og margt getur breyst á þeim mánuðum sem eru fram undan. Nýjustu skoð- anakannanir sýna að margir kjósendur eru enn óákveðnir, Sérstaklega virðast fjölmargar konur óvissar um hvernig þær ætla að ráðstafa atkvæði sínu. Þar eru því augsýnilega sóknar- færin fyrir flokkana. Samfylkingin þykist örugglega eiga stóran hlut í óákveðna kvennahópnum því ef eitthvað er að marka söguna halla konur sér frekar til vinstri og að flokkum þar sem kynsystur þeirra eru áberandi í forystuhlutverkum. Sú niðursveifla sem má sjá í skoðanakönnunum á fylgi Sam- fylkingarinnar meðal kvenna hefur ekki verið útskýrð. Ef til vill spilar þar inn í óvenju afdráttarlausar yfirlýsingar for- mannsins um evru og aðild að Evrópusambandinu. Sama hvort þær hugmyndir þykja raunhæfar eða ekki, þá hljómar það örugglega undarlega í röðum ýmissa jafnaðarmanna af báðum kynjum að fyrir utan Samfylkinguna hefur Evrópuumræðan verið hvað háværust meðal helstu kapítalista landsins, innan atvinnulífsins og stórfyrirtækjanna. Hitt er svo ekki ólíklegri skýring að þar sem konur eru búnar eðlismeiri varkárni og ígrundun en karlar eru þær síður tilbúnar til að lýsa yfir stuðningi við ákveðin framboð í könn- unum, sérstaklega þar sem enn er ekki ljóst hvaða valkostir munu liggja fyrir í vor. Í fyrrakvöld var einn möguleikinn strikaður út þegar Fram- tíðarlandið ákvað að bjóða ekki fram í eigin nafni og gaf þar með umhverfissinnum í öllum flokkum aukið svigrúm til að sýna hvað í þeim býr. Hvernig þar tekst til mun örugglega skipta máli þegar talið verður upp úr kössunum í vor. Keppt um konur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.