Fréttablaðið - 09.02.2007, Page 77

Fréttablaðið - 09.02.2007, Page 77
Sýning á verkum sem boðin verða á uppboði menningarmiðstöðvar- innar Skaftfells á Seyðisfirði verð- ur opnuð í versluninni Liborius í dag. Uppboðið fer fram laugardag- inn 17. febrúar kl. 16 en uppboðs- haldari verður Egill Helgason. Boðin verða upp verk 37 lista- manna sem hafa allir komið að sýn- ingarhaldi Skaftfells með einum eða öðrum hætti. Þar á meðal verða verk eftir Huldu Hákon, Björn Roth, Georg Guðni, Hallgrím Helgason, Sirru Sigrúnu Sigurðar- dóttir og Sigurð Guðmundsson. Skaftfell er miðstöð myndlistar á Austurlandi en Seyðisfjörður hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem kjörlendi fyrir mynd- listarmenn að sýna verk sín eða vinna að list sinni. Árlega eru haldnar á bilinu fimm til sjö sýn- ingar í sýningarsal Skaftfells en að auki eru fjölmargar sýningar haldnar á Vesturveggnum, galleríi í Bistrói Skaftfells. Allur ágóði uppboðsins verður nýttur til frek- ari uppbyggingar Skaftfells. Hægt er að nálgast uppboðs- skrána á www.skaftfell.is undir dagskrá. Uppboðssýning opnuð 6 7 8 9 10 11 12 Bjarni Daníelsson lætur af störf- um sem óperustjóri Íslensku óperunnar í lok þessa starfsárs í júní næstkomandi. Bjarni tók við starfinu sumarið 1999 og hefur því gegnt því í átta ár í vor. Bjarni er menntaður mynd- listarmaður, kennari og stjórn- sýslufræðingur. Hann stundaði nám við Kennaraháskóla Íslands og Myndlista- og handíðaskóla Íslands, en þaðan lauk hann myndlistarkennaraprófi 1981. Hann stundaði síðar framhalds- nám í Bandaríkjunum og Dan- mörku. Bjarni starfaði við kennslu um árabil, meðal annars við Kennaraháskóla Íslands, en hefur síðastliðin 20 ár gegnt stjórnunarstörfum. Bjarni segir að þessi ár hjá Óperunni hafi verið mjög skemmtileg en sér finnist nú tímabært að takast á við ný verkefni. Óperustjóri hættir Lestu bókina - sjáðu myndina! edda.is Verð 1.990 kr. Allir þeir sem sjá myndina fá 15% afslátt! Í efstu sætum metsölulista um allan heim Fyrstu 100 sem kaupa bókina fá miða á myndina í bíó!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.