Fréttablaðið - 09.02.2007, Page 80

Fréttablaðið - 09.02.2007, Page 80
Þótt ótrúlegt megi virðast hefur tónlistarlífið í Noregi verið að glæðast gríðarlega mikið á undanförnum árum. Ekki eingöngu hafa verið að koma þaðan frambærilegar sveitir heldur er þar í landi að finna nokkrar afar skemmtilegar tónlistarhátíðir. Þessa dagana er einmitt í gangi stærsta tónlistarráðstefna Norðurland- anna, by:Larm, í Þrándheimi en auk vinnufunda og fyrirlestra sem þar fara fram eru hátt í 170 tónleikar haldnir handa öllum hátíðargestum. Þarna koma fram margar af helstu vonarstjörnum skandinavísks tónlistarlífs, meðal annars íslensku sveitirnar Reykjavík!, Últra Mega Teknóbandið Stefán og Lay Low. Auk þeirra eru þarna einnig listamenn á borð við El Perro Del Mar, Datarock, Lo-Fi-Fnk, Loney, Dear og Powersolo. Tvær skemmtilegar sumarhátíðir hafa einnig fyrir löngu stimplað sig rækilega inn, annars vegar Quart hátíðin í Kristiansand og hins vegar hin stórbrotna Øya-hátíð. Quart telst ekki vera stór hátíð á alþjóðlegan mælikvarða en þangað koma um 15 þúsund manns dag hvern, alla sex daga hátíðarinnar. Hátíð er haldin á ótrúlega sjarmer-andi lítilli eyju sem er alveg við höfnina. Síðustu ár hafa meðal annars spilað þar Kanye West, Interpol, David Bowie, Depeche Mode, Muse og fleiri. Øya-hátíðin fer fram í elsta hluta Óslóar í ágúst ár hvert og stendur yfir í fjóra daga. Hátíðin trekkir að sér gríðarlega áhugaverðar hljómsveitir og sem dæmi má nefna að bara í fyrra spiluðu þar ekki ómerkari spámenn en Morrisey, Hot Chip, !!!, Band of Horses, The Knife, The Fall, Liars, The Cramps, The Wrens og Yoko Ono. Þrátt fyrir að enn sé hálft ár í hátíðina hafa samt sem áður Amy Winehouse, Lady Sovereign, Malajube og Boredoms nú þegar staðfest komu sína. Nýjasta viðbótin við þessa skemmtilegu flóru tónlistarhátíða Norðmanna er Hove-hátíðin sem haldin verður í Arendal í lok júní en hún er sett til höfuðs Quart en á milli hátíðanna tveggja er innan við klukkutíma akstur og ein vika. Í nýlegu viðtali sagði framkvæmdastjóri Hove, sem áður starfaði fyrir Quart, að alls yrði eytt sem nemur um 120 milljónum íslenskra króna í að veiða hljómsveitir á hátíðina. Sem dæmi má nefna að nýlega skrifuðu Reykjavíkurborg og skipuleggj- endur Iceland Airwaves að Reykjavíkur- borg myndi styrkja hátíðina um samtals 19 milljónir á næstu fjórum árum. Þeir sem ná ekki að svala tónleikaþorsta sínum með því að mæta eingöngu á Airwaves geta því einnig kíkt til Noregs í sumar. Hátíðir blómstra í Noregi Fyrsta plata tónlistar- mannsins Mika, Life in Cartoon Motion, kemur út hérlendis 26. febrúar. Freyr Bjarnason kynnti sér feril þessa mikla falsettumeist- ara, sem margir telja björt- ustu von ársins 2007. Fyrsta smáskífulag plötunnar, Grace Kelly, hefur slegið ræki- lega í gegn og hefur það setið í þrjár vikur á toppi breska smá- skífulistans. Mika samdi lagið sem andsvar til fyrrverandi útgáfufyrirtækis síns þar sem forsvarsmenn þess vildu að hann aðlagaði söngstíl sinn hefðbundnu poppi. Söngstíll Mika er mjög sér- stakur þar sem falsettur gegna veigamiklu hlutverki og tók hann ekki í mál að feta troðnar slóðir poppsins. Tommy Mottola, sem áður var yfirmaður hjá Sony Music, tók hann upp á sína arma og nú er hann að slá í gegn. Mika, sem er 23 ára, fæddist í Líbanon en ólst upp í París og London ásamt fjórum systkinum sínum. Ungur að árum fór hann að semja lög, ekki endilega vegna mikils tónlistaráhuga heldur frek- ar vegna þess að það var auðveld leið til að segja sögur, brandara og stundum sannleikann. „Ef maður segir sannleikann í lagi verður fólk ekki eins pirrað og ef maður segir fólki hann augliti til auglitis,“ sagði Mika. „Ég sendi sögurnar mínar út um allt en fékk fá svör. Því meira sem ég sökkti mér í tónlistina því meira fór ég að einbeita mér að eigin lagasmíð- um. Á síðasta ári ákvað ég síðan að láta til skarar skríða.“ Mika hefur iðulega verið líkt við Freddie Mercury, fyrrum söngv- ara Queen, og glyshljómsveitina The Scissor Sisters. „Þegar maður kemur fram á sjónarsviðið alveg upp úr þurru finnst mér ekki skrýtið að fólk vilji líkja mér við aðra listamenn,“ sagði Mika. „Sem betur fer er verið að líkja mér við listamenn sem ég fíla vel.“ Viðbrögð við nýju plötunni hafa verið misjöfn í heimalandi hans Bretlandi. Platan fékk fjórar stjörnur í The Evening Standard en aðeins eina af fimm möguleg- um í The Guardian. Mika kippir sér lítið upp við það. „Ég man þegar ég var sjö ára og hélt afmælisveislu. Skólafélagar mínir gerði grín að mér fyrir að fara yfir strikið. Það sama er að gerast í kvöld,“ sagði Mika þegar tilkynnt var um útkomu plötunn- ar. „Ég er samt að skemmta mér betur en nokkru sinni fyrr og af hverju má ég það ekki?“ Mika hefur verið talinn bjartasta von ársins 2007 að mati BBC og fleiri tónlistarmiðla, en BBC- menn hafa verið óvenju sannspá- ir hingað til því þeir spáðu bæði Franz Ferdinand og Scissor Sist- ers miklum frama sem síðar kom á daginn. Eins og hjá mörgu ungu tónlistar- fólki, hefur vefsetrið Myspace hitað vel undir ferli Mika. Á aðeins örfáum mánuðum er spil- un á síðu hans komin í yfir eina milljón. Áhugasamir geta kíkt á heimasvæði hans myspace.com/ mikamyspace og mikasounds. com og komist að því hvað er svona sérstakt við þennan Mika. Alla vega er ljóst að tónlist hans er uppfull af birtu og léttleika, sem er eitthvað sem okkur Íslend- ingum veitir ekki af í svartasta skammdeginu. Zeitgeist í sumar – stærsti fjölmiðillinn! Um 160.000 lesendur Blaðinu er dreift með Fréttablaðinu í 105.000 eintökum um allt land. Sér blað um brú ðka up 15.f ebr úar Þar sem fjallað verður um allt sem við kemur Brúðkaupsundirbúningi ásamt öðrum fróðleik. Glæsilegt sérblað um brúðkaup fylgir Fréttablaðinu 15.febrúar n.k. Auglýsendur athugið nánari upplýsingar veitir Erna Sigmundsdóttur í síma 550-5863 eða ernas@365.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.