Fréttablaðið - 09.02.2007, Page 82

Fréttablaðið - 09.02.2007, Page 82
Svo gæti farið að dómsmáli banda- ríska upptökustjórans Phil Spect- or verði sjónvarpað. Spector, sem er 66 ára, er sakaður um að hafa skotið til bana leikkonuna Lönu Clarkson í Los Angeles árið 2003. Sjálfur segir hann að Clarkson hafi framið sjálfsvíg. Dómarinn í málinu vill að almenningur geti fylgst náið með dómsmálinu og íhugar því að leyfa sýningu þess í sjónvarpi. Spector, sem gengur laus gegn tryggingu, á yfir höfði sér lífstíð- arfangelsi verði hann fundinn sekur um morð. Réttarhöldin áttu að hefjast í september árið 2005 en þeim hefur þrívegis verið frestað. Jade Jagger, dóttir rokkarans Mick Jagger, bættist í hóp flug- dólga á dögunum, þegar hún flaug frá London til New York. New York Post greinir frá því að Jagg- er hafi ásamt vinum sínum klifrað yfir sætaraðir, oltið um ganginn og stolið vínflöskum af öðrum far- þegum. Dagblaðinu hafði borist tölvupóstur frá reiðum farþega, sem sagði frá því að Jagger og föruneyti hennar hefði verið fylgt um borð sem gestum Richards Branson, en þau hefðu öll litið út eins og þau hefðu ekki þvegið sér í lengri tíma. Vinahópurinn talaði að auki hátt og ósmekklega um aðra far- þega, og Jagger náði að sparka til flugfreyju áður en flugmaðurinn sá sig knúinn til að skerast í leikinn og stilla til frið- ar. Talsmað- ur Jagger segir að stúlkan sé illa haldin af flug- hræðslu og fái sér því oft einn drykk fyrir flug. Brad Pitt vill binda enda á sambandið við Angelinu Jolie, samkvæmt Nation- al Enquirer. Tímaritið segir Pitt hafa trúað vinum sínum fyrir því að hann sé að gefast upp og þrái frelsi. Á síð- ustu dögum hefur Pitt tvisvar sinnum misst stjórn á skapi sínu gagnvart paparazzi-ljósmyndurum. Vinir hans segja leikarann ekki lengur þola inn- rásina í einkalíf sitt og óttast að hann sé að missa tökin. Þeir hafa ráðlagt Pitt að leita sér hjálpar hjá sálfræð- ingi. Samkvæmt sömu vinum eru brest- ir í sambandi Pitt og Jolie, sem orsak- ast að miklu leyti af afbrýðisemi leik- konunnar og framkomu hennar við Jennifer Aniston, fyrrverandi eigin- konu Pitt. Stöðugt áreiti ljósmyndara, ábyrgðin sem fylgir þremur börnum og leikferillinn eru aðrar orsakir tilfinningalegrar kreppu Pitt, en það var fjölmiðlafárið í kringum dauða Marcheline Bertrand, móður Jolie, sem fyllti mælinn hjá leikaranum. Eins og kunnugt er lét Bertrand dóttur sína lofa sér því að giftast Pitt áður en hún lest. Miðað við þess- ar fregnir gæti Angelina þurft að brjóta loforðið. Courteney Cox ætlar ekki að nota staðgengil í ástarsenum í Dirt, hinni nýju þáttaröð hennar og eig- inmanns hennar, Davids Arquette. Cox kveðst hafa verið afar tauga- óstyrk yfir nektarsenunum og lík- ama sínum, en að lokum ákvað hún að vera bara hún sjálf og hætta að hafa áhyggjur. Þetta segir hún vera mikla breytingu. Það eru þó ekki nektarsenurn- ar í Dirt sem vekja hvað mest umtal, heldur margumræddur koss þeirra Jennifer Aniston, sem mun birtast í aukahlutverki í þátt- unum. Leikkonurnar segja koss- inn vera afar saklausan, en heim- urinn bíður átekta eftir að fá að berja hann augum. Leikur sjálf í ástarsenum Keira Knightley sagði í viðtali við Hello á dögunum að hún þurfi sár- lega á fríi að halda. „Eðlisávísun mín segir mér að taka öllum atvinnutilboðum svo að þau hætti ekki að berast,“ sagði leikkonan við Hello. Hún sagðist hafa unnið baki brotnu í nokkur ár, en nú væri svo komið að hún þyrfti að draga sig í hlé og endurheimta líf sitt. Ef það þýði að hún þurfi að byrja upp á nýtt þegar hún snúi aftur í kvik- myndaheiminn verði bara að hafa það. Í sama viðtali kvaðst Knightley gera sér grein fyrir því að hún væri andlitsfríð. „Ég er fullkom- lega meðvituð um að ég fæ vinnu út á andlitið,“ sagði hún. Þarf að taka sér frí Spector í sjónvarpiÍ hóp flugdólga Brad Pitt vill hætta með Angelinu Jolie Færeyingar í Hjálpræðis- hernum á Íslandi eru tvístígandi um hvort þeir eigi að kjósa kaftein Sigurð eða landa sinn Jógvan í X- Factor. Fyrir Rannvá Olsen er valið auðveldara þar sem hún er gift kafteininum. „Sem betur fer er þetta bara skemmtun en ekki upp á líf og dauða,“ segir Rannvá Olsen, eigin- kona Sigurðar Ingimarssonar, þátttakanda í X-Factor söng- keppninni sem sýnd er á Stöð tvö. Þau hjónin eru bæði kaf- teinar í Hjálpræðisher- num og forstöðumenn samtakanna á Akureyri. Rannvá styður sinn mann auðvitað með ráð og dáð en hjarta hennar slær óneitanlega líka með öðrum keppanda, Jóg- vani Hansen, því bæði eru þau frá Færeyjum. „Þeir eru nú báðir í sama liði hjá Einari Bárðarsyni þannig ég þarf ekkert að gera upp á milli þeirra,“ segir Rannvá og hlær. Atkvæði eru greidd í gegnum síma og má senda alls fimm atkvæði úr hverju númeri. „Hingað til hafa atkvæðin mín runnið óskipt til Sigurðar,“ segir Rannvá en þvertekur ekki fyrir að mögulega muni Jógvan fá einstaka atkvæði frá henni. „En hann fær ábyggilega fullt af atkvæðum frá öðrum Færeyingum, þeir eru svo duglegir við að styðja sína menn.“ Rannvá segir að félag- ar Sigurðar í Hjálpræðishernum fyrir norðan fylgist grannt með og styðji við bakið á honum. „Krakkarnir eru sérstaklega upprifnir yfir þessu. Það eru reyndar ekki allir með Stöð tvö en fólk safnast bara saman hjá þeim sem eru í áskrift og það myndast skemmtileg stemning,“ segir Rannvá sem er hæstánægð með frammistöðu Sigurðar í keppninni og trúir að hann eigi eftir að ná langt í henni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.