Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.02.2007, Qupperneq 94

Fréttablaðið - 09.02.2007, Qupperneq 94
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Okkur hefur verið hótað og fólk segist vilja koma og rústa okkur, meiða okkur,“ segir Birna Mjöll Atladóttir, staðarhaldari á Breiða- vík. Staðurinn hefur verið áber- andi í umræðunni eftir að DV og síðar Kastljós greindu frá illri meðferð drengja þar á 6., 7. og 8. áratug síðustu aldar. Frá árinu 1999 hefur þarna verið rekið gisti- heimili af hjónunum Birnu Mjöll og Keran Stueland Ólason og hafa þau fengið sinn skerf af athygli og viðbrögðum fólksins í landinu. „Aðrir hafa sakað okkur um að þetta sé bara einhver auglýsinga- brella til að kynna staðinn,“ segir Birna. „Hingað hafa hringt ætt- ingjar, vinir og allir fjölmiðlar landsins vilja koma og tala við okkur,“ bætir Birna við. „Við höfum bara setið hvort í sínu her- berginu til að anna öllum þeim fyr- irspurnum sem okkur hafa bor- ist.“ Birna og Keran Stueland Óla- son höfðu ekki hugmynd um þær hörmungar sem þarna höfðu átt sér stað þegar þau fluttu fyrst á staðinn. Bæði eru þau þó alin upp í grenndinni, Birna á Patreksfirði en Keran á bóndabýli aðeins þrett- án kílómetrum frá Breiðavík. „Við fórum í bíó með þessum drengjum á sínum tíma og okkur grunaði aldrei að þetta væri í gangi,“ segir Birna. En þegar þau sáu fangaklefann og annan hryll- ing runnu á þau tvær grímur. „Ég hef upplifað það hvert sumar síðan við opnuðum að drengir sem vist- aðir voru í Breiðavík hafi komið hingað,“ segir Birna. „Ég hef átt margar mjög tilfinningaríkar stundir með þeim hérna, þeir hafa grátið og maður upplifir þetta ein- hvern veginn með þeim. Og finnur til með þeim,“ segir Birna og bætir því við að Keran hafi í fyrstu verið mjög tvístígandi í því hvort taka ætti þessi orð trúanleg. „Þeir sem hafa komið hingað voru margir hverjir þjakaðir af samviskubiti og höfðu á orði að kannski hefði þetta bara verið meðferð sem þeir hefðu átt skilið. Þeir hefðu verið svo vondir,“ segir Birna. Þegar eiginmaðurinn fór sjálfur að heyra þessar sömu sögur fór hann að trúa drengjunum. Þau hjónin hafa nú fest sögurnar sem þeim hafa verið sagðar niður á blað og geyma þær í tölvu. „Við megum aldrei gleyma um hvað málið snýst. Þetta er ekki stríð á milli fréttamiðla heldur mannlegur harmleikur sem aldrei má gleymast.“ Fjölmiðlaumfjölluninni um Breiðavík er hvergi nærri lokið. Magnús Stefánsson félagsmála- ráðherra hefur fyrirskipað rann- sókn á málinu og hafa komið um hugmyndir um að borga skaðabæt- ur til þeirra drengja sem þarna voru vistaðir. Birna segist þó vona að málið verði ekki til þess að stað- urinn verði dæmdur fyrir það sem átti sér stað hérna. „Þetta er fal- legasti staður í heimi og það var ekki hann sem slíkur sem var vondur heldur hluti þeirra sem þarna voru.“ Gestir á Viðskiptaþingi á miðviku- dag ráku upp stór augu og hlátra- sköll þegar hinni víðfrægu Thule auglýsingu var varpað upp á stórt tjald. En í staðinn fyrir leikarana Gunnar Hansson og Svein Geirs- son voru þau Katrín Pétursdóttir og Geir H. Haarde annars vegar og Jón Ásgeir Jóhannesson og Hannes Smárason hins vegar i aðalhlutverkum. Sævar Guðmundsson, leik- stjóri hjá Saga Film, fékk þann heiður að leikstýra þessu valda- mikla fólki í viðskiptalífinu. Og segist hafa dottið í lukkupottinn ef hægt er að tala um lukkupott í þessum efnum. „Þetta gekk mjög vel og þau voru ótrúlega móttæki- leg fyrir þessu þótt þetta sé tíma- bundið fólk. Og það kannski kom helst á óvart hversu mikinn tíma þau gáfu sér,“ segir Sævar. Hann viðurkennir að forsætis- ráðherrann hafi komið honum verulega á óvart og hann hafi gaukað að Geir atvinnutilboði ef einhvern tímann skyldi harðna á dalnum. „Hann sagðist myndu skoða það,“ segir Sævar. Að sögn leikstjórans vann Jón Ásgeir þó mestan leiksigur og Hannes Smárason sýndi mestu hæfileikana með tungumálið. Hannes er þekktur fyrir afburða- góða ensku með amerískum hreim en Sævar segir hann hafa náð að tóna hann alveg niður. „Hannes sýndi mikla hæfileika á þessu sviði,“ segir Sævar. Þegar sýningum lauk á Við- skiptaþinginu voru sýndar glefsur úr þeim mistökum sem höfðu átt sér stað við gerð auglýsinganna. „Kannski var það fyndnast þegar Geir mismælti sig og sagði að Íslendingar ættu flottustu bílana og „the biggest women“ eða feitustu konurnar,“ segir Sævar og hlær. Ráðherra og forstjórar leika í auglýsingu Fari svo að rokkarinn Eiríkur Hauksson vinni undankeppni Eur- ovision hérlendis hinn 17. febrúar myndi þátttaka hans í úrslitunum í Finnlandi 10. maí ekki stangast á við Evrópuferð hans með hljóm- sveitinni Live Fire and the All Vik- ing Band. Sú ferð verður að öllum líkindum farin í lok maí. „Það er reiknað með að þetta verði sautján konsertar á átján dögum en túrinn yrði ekki fyrr en í lok maí,“ segir Eiríkur. Eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum mun Eiríkur syngja með hljómsveitinni öll helstu lög rokksveitarinnar Uriah Heep. For- sprakki sveitarinnar er fyrrum meðlimur Uriah Heep, hljómborð- sleikarinn Ken Hensley. Hvernig sem fer í undankeppn- inni hér heima ætlar Eiríkur að halda áfram að syngja lagið Ég les í lófa þínum, sem er eftir Svein Rúnar Sigurðsson. Var það sér- staklega samið með Eirík í huga og heillaðist kappinn af laginu þegar hann heyrði það fyrst. Eiríkur Hauksson hefur tvíveg- is keppt í úrslitum Eurovision. Fyrst söng hann Gleðibankann árið 1986 ásamt Helgu Möller og Pálma Gunnarssyni, sem var fyrsta framlag Íslendinga til keppninnar. Síðan söng hann lagið Mrs. Thompson með hljómsveit- inni Just 4 Fun sem var framlag Noregs árið 1991. Það lag hafnaði í 17. sæti en Gleðibankinn í því 16. eins og margir muna eftir. Eurovision ógnar ekki Evróputúr ...fær Gunnar Karlsson, leik- stjóri Önnu og skapsveiflanna, sem fékk úrvalslið poppara til að vinna með sér að því að vekja áhuga unglinga á klass- ískri tónlist. Gnoðavogi 44, s. 588 8686. Opið alla laugardaga 11-14 30% afsláttur af rengi og súrum hval tilboðið gildir aðeins í dag
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.