Fréttablaðið - 16.03.2007, Page 6

Fréttablaðið - 16.03.2007, Page 6
 Persónuvernd hefur að eigin frum- kvæði tekið vefinn http://kosningavelin.net/Alcan til skoðunar hjá sér. Vefurinn er rekinn og standsettur af sérstöku kosningateymi starfsmanna Alcan á Ís- landi sem vinnur að því að fá sem flesta Hafnfirðinga til að greiða atkvæði með stækkun álvers félagsins í Straumsvík hinn 31. mars næstkomandi. Að sögn Sigrúnar Jóhannesdóttur, forstjóra Per- sónuverndar, þóttu skjámyndir sem sendar voru til stofnunarinnar af vefnum gefa tilefni til þess að senda fyrirspurn til Alcan á Íslandi vegna hans. Sig- rún segir að stofnuninni hafi borist þó nokkrar ábend- ingar vegna vefsins en ekkert erindi hafi þó verið lagt inn til þeirra undir nafni. Fyrirspurnin verður væntanlega send í dag. Persónuvernd áskilur sér hins vegar rétt til að taka upp mál að eigin frumkvæði ef grunur leikur á um að ekki hafi verið unnið með persónuupplýsingar í sam- ræmi við lög um persónuvernd. Til að komast inn á umræddan vef þarf notenda- nafn og lykilorð. Öllum starfsmönnum Alcan hefur verið boðið að fá slík afhend. Inni á kosningavélar- vefnum er síðan viðmót sem gerir starfsmönnunum kleift að búa til sína eigin úthringilista. Þar er einn- ig leitarstrengur sem hægt er að nota til að fletta upp öllum íbúum Hafnarfjarðarbæjar. Þegar búið er að setja einstakling á úthringilista er síðan mögulegt að bæta við upplýsingum um hvernig starfsmaðurinn telur að viðkomandi ætli að kjósa og á hverju hann telji viðkomandi byggja ákvörðun sína. Vefsvæðið hefur verið kynnt á innri vef Alcan og starfsmönnum fyrirtækisins boðin kennsla í notkun þess. Tryggvi Skjaldarson, starfsmaður álversins og meðlimur í kosningateymi Alcan, segist ekki sjá neitt athugavert við vefinn. „Þetta er ekkert annað en til- raun til að halda utan um í hverja menn hringja þegar þeir eru að tala fyrir stærra álveri. Þetta er nákvæm- lega það sama og menn eru að gera í prófkjörum og kosningum almennt.“ Hann segir alla þá starfsmenn sem vilja fá aðgang að vefsvæðinu fá hann og þeir sem séu síðan tilbún- ir að taka þátt í kosningaslagnum hringi sjálfir í fólk- ið á sínum listum. „Þetta er bara venjulegur kosn- ingaslagur þó að hann sé vissulega að taka á sig hinar ýmsu myndir.“ Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Alcan, segir að lögfræðingar hefðu skoðað lagalega hlið þessa máls áður en vefurinn var búinn til. Álit þeirra væri að þetta bryti ekki í bága við lög. Upplýsingar væru heldur ekki persónugreinanlegar eftir skrán- ingu. Einungis væri hægt að sjá heildartölur yfir af- stöðu fólks. Persónuvernd skoðar kosningavef Alcan Persónuvernd hefur að eigin frumkvæði tekið kosningavef á vegum Alcan til athugunar. Vefurinn geymir upplýsingar um afstöðu íbúa Hafnarfjarðar. Það sama og er gert í öllum kosningum segir meðlimur í kosningateymi Alcan. „Húsleitin var gerð í framhaldi af rannsókn Samkeppn- iseftirlitsins á kortafélögunum VISA og Kreditkortum, sem hófst í fyrra,“ segir Páll Gunnar Páls- son, forstjóri Samkeppniseftirlits- ins, um húsleit sem var gerð hjá Fjölgreiðslumiðlun hf. á miðviku- dag. „Hún er rökstudd með því að grunur leiki á misnotkun á mark- aðsráðandi stöðu og samráði. Ég vil að öðru leyti ekki tjá mig um málið, en það er til skoðunar hjá okkur.“ Samkeppniseftirlitið gerði hús- leit hjá VISA og Kreditkortum hf., umboðsaðila Mastercard á Íslandi, hinn 13. júni í fyrra. Tilefni þeirr- ar leitar var rökstuddur grunur um brot á ákvæðum samkeppnis- laga, einkum misnotkun á mark- aðsráðandi stöðu á markaði fyrir færsluhirðingu, sem er innlausn færsluávísana til kaupmanna. Fjölgreiðslumiðlun hf. er í eigu fjölmargra íslenskra fjármálafyr- irtækja, en hluthafar í fyrirtæk- inu eru Greiðslumiðlun, Lands- banki Íslands, Glitnir, Samband íslenskra sparisjóða, Kaupþing banki, Kreditkort og Seðlabanki Íslands. Fyrirtækið sér meðal annars um rekstur hins svokallaða Posa- kerfis fyrir greiðslukortavið- skipti. Það varðveitir og hefur um- sjón með öllum reglum, fyrirmæl- um og samningum um einstaka greiðslumiðla sem þróaðir hafa verið í samvinnu banka, spari- sjóða og annarra aðila. Beinist gegn kortafélögunum Ung börn koma í auknum mæli til tannlækna með skemmd í hverri tönn. Inga B. Árnadóttir, dósent við Háskóla Íslands, sagði á Morg- unvaktinni í gær að margir for- eldrar telji sig ekki hafa efni á því að senda börnin sín reglulega til tannlæknis því þeir fái svo lítið brot af kostnaðinum endur- greiddan. Siv Friðleifsdóttir heilbrigð- isráðherra viðurkennir að end- urgreiðslur Tryggingastofnun- ar hafi ekki fylgt verðlagsþróun. Hún segist vilja tryggja ókeypis forvarnir fyrir ákveðna aldurs- hópa. Reglulegar for- varnir of dýrar Fylgist þú með eldhúsdagsum- ræðum? Heldur þú úti bloggsíðu? Karlmaður hefur verið dæmdur í Hér- aðsdómi Vesturlands fyrir kynferðisbrot gegn sjö stúlkubörnum. Yngsta stúlkan var sex ára þegar maðurinn braut gegn henni. Hann var dæmdur í 12 mánaða fangelsi, skilorðsbundið að hluta, og til greiðslu miskabóta. Brotin gegn stúlkunum áttu sér stað síðastliðið sumar og haust. Í júlí var maðurinn í heitum potti með þremur stúlkubarnanna, sem öll voru átta ára. Hann var ákærður fyrir að hafa ítrekað strokið kynfæri þeirra utan klæða. Þá var honum einnig gefið að sök að hafa brot- ið gegn þremur stúlkum til viðbótar í umræddum potti. Þær voru allar níu ára. Hann hafði uppi sama athæfi gegn þeim og hinum þremur fyrrnefndu. Í haust veittist hann svo að sex ára telpu og nuddaði kynfæri hennar. Það átti sér stað á þáverandi heim- ili mannsins á Akranesi, þar sem barnið var gest- komandi. Hann játaði greiðlega sök sína fyrir dómi. Þar kom fram að hann hefði leitað sér aðstoðar hjá sál- fræðingi og á geðdeild Landspítala. Maðurinn var dæmdur í 12 mánaða fangelsi, þar af eru níu mánuðir skilorðsbundnir. Þá var honum gert að greiða börnunum samtals 1,5 milljónir króna í miskabætur, svo og málskostnað. Braut á sjö stúlkubörnum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.