Fréttablaðið - 16.03.2007, Síða 16
Iftikhar Mohammed
Chaudhry, yfirdómari hæstaréttar í
Pakistan, neitar að taka mark á vald-
boði Pervez Musharraf forseta, sem
gerði sér lítið fyrir og rak Chaudry
úr embætti í lok síðustu viku.
Chaudry segir ekkert hæft í ásök-
unum um að hann hafi misnotað
embætti sitt og segist ætla að sitja
sem fastast, hvað sem líður orðum
forsetans. Æðstaráðs dómsmála í
Pakistan sem hefur úrskurðarvald í
málinu og kemur næst saman í dag.
Lögfræðingar í Pakistan eru æfir
vegna málsins og ásaka Musharraf
um ólögmæt pólitísk afskipti af
dómsvaldinu.
Á mánudaginn efndu lögfræð-
ingar til mótmælafunda víða um
land, mættu ekki til dómsstarfa og
lentu sums staðar í hörðum átök-
um við lögregluna. Í gær héldu um
300 þeirra áfram mótmælaaðgerð-
um í Karachi, stærstu borg lands-
ins.
Stjórnvöld segja brottrekstur
Chaudrys fullkomlega í samræmi
við stjórnarskrá landsins. Hann
hafi gerst brotlegur í starfi og
endanlegur úrskurður sé í höndum
æðstaráðsins.
Vera má að Chaudry hafi komið
við kaunin á Musharraf á síðasta
ári þegar hann lagði mikla áherslu
á að fá upplýsingar um tugi manna,
sem leyniþjónusta landsins var
sökuð um að hafa í haldi.
Dómarinn neitar að víkja
Rannsókn fíkniefnadeildar lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu á tilraun
til innflutnings á 14 kílóum af hassi og 200
grömmum af kókaíni hingað til lands, er á
lokastigi. Málið verður sent ríkissaksóknara
til ákærumeðferðar á næstunni.
Efnin voru send hingað til lands með hrað-
sendingu frá Danmörku.
Lögreglan náði efnunum og Interpol lýsti
eftir sendandanum erlendis. Fjórir einstakl-
ingar sættu gæsluvarðhaldi vegna málsins hér
á landi en þeim hefur verið sleppt.
Það var svo 21. janúar sem Íslendingur var
handtekinn í Bremen með fimm kíló af hassi
og um 700 grömm af örvandi efni. Reyndist
þar vera kominn sá sami og sent hafði stóru
hass- og kókaínsendinguna hingað til lands í
haust.
Söluandvirði fíkniefnanna sem Íslending-
urinn var tekinn með í Bremen er talið nema
um 4,5 milljónum íslenskra króna, að sögn
Uwe Mikloweit, upplýsingafulltrúa lögregl-
unnar þar. Maðurinn, sem enn situr í fangelsi
í Bremen, er tæplega þrítugur að aldri og ís-
lenskur ríkisborgari. Hann hefur verið bú-
settur í Danmörku. Lögreglumenn frá Íslandi
luku yfirheyrslum yfir honum í Þýskalandi í
síðustu viku. Jafnframt hafa staðið yfir yfir-
heyrslur hér á landi vegna málsins á undan-
förnum dögum.
Aðaltrúnaðar-
maður á Kárahnjúkum hefur
vísað grun um að þrjátíu Indón-
esar hjá þýska verktakafyrirtæk-
inu Va Tech fái ekki greitt sam-
kvæmt virkjunarsamningum til
samráðsnefndar um virkjunar-
samninginn.
Oddur Friðriksson aðaltrúnað-
armaður segir að brotið geti verið
mjög alvarlegt en það þurfi að
skoða nánar áður en niðurstaða
fáist og því hafi hann vísað mál-
inu áfram.
Þorbjörn Guðmundsson, for-
maður nefndarinnar, segir að fyr-
irliggjandi upplýsingar um kjör
mannanna þyki ekki fullnægjandi
og því hafi verið óskað eftir nán-
ari upplýsingum. Búast megi við
niðurstöðu innan tíðar.
Indónesarnir þrjátíu eru í
ráðningarsambandi við dótturfyr-
irtæki Va Tech í Indónesíu í gegn-
um Va Tech í Austurríki þótt þeir
séu starfandi hér á landi.
Mál Indónesa í
samráðsnefnd
Sjómenn á skipum
Landhelgisgæslunnar mótmæla
nýrri skiptingu björgunarlauna
en samkvæmt
henni lækkar
hlutur þeirra um
allt að 22 prósent
en hlutur skip-
herra hækkar
um rúm 350 pró-
sent.
Helgi Laxdal,
formaður Félags
vélstjóra og
málmtæknimanna, afhenti þing-
forseta undirskriftir sjómanna í
gær.
„Ég hef aldrei fengið rök fyrir
lagabreytingunum sem gerðar
voru undir þinglok í fyrra. Hins
vegar veit ég að skipherrar höfðu
vælt yfir þessu og ég veit líka að
lögunum var breytt að undirlagi
dómsmálaráðherra,“ segir Helgi
og krefst þess að mál verði færð
til fyrra horfs.
Óánægðir með
nýja skiptingu
björgunarlauna
Ágúst Ólafur Ágústs-
son, varaformaður Samfylking-
arinnar, vill að
bundið verði í lög
að í ökuskírtein-
um standi hvort
fólk vilji gefa líf-
færi sín, beri svo
undir.
Ágúst Ólafur
segir mikilvægt
að fjölga líffæra-
gjöfum en á Ís-
landi eru líffæra-
gjafir fátíðari en
á öðrum Norðurlöndum. Sextán
ár eru síðan Íslendingar máttu
gefa líffæri. Lög meinuðu það
fram til 1991.
Segir Ágúst Ólafur að skrán-
ing þessara upplýsinga í ökuskír-
teini sé heppileg þar sem oft séu
það látnir ökumenn sem komi til
greina sem líffæragjafar.
Þetta mál verður ekki afgreitt á
þessu þingi. Þinglok voru áætluð í
gær og mörg mál í bið.
Óskir um líf-
færagjafir í
ökuskírteinin
Verndun við-
kvæmra vistkerfa fyrir skað-
legum áhrifum fiskveiða voru
ofarlega á baugi á fundi fiski-
málanefndar Matvæla- og land-
búnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna (FAO). Auk þess var
mikið rætt um aðgerðir gegn
ólöglegum veiðum á fundinum
sem lauk síðastliðinn föstudag.
Samkomulag náðist um mótun
tæknilegra viðmiðunarreglna um
verndun viðkvæmra vistkerfa, en
þær eru í samræmi við fiskveiði-
ályktun allsherjarþings SÞ. Tíma-
áætlun gerir ráð fyrir að reglurn-
ar verði tilbúnar í byrjun næsta
árs.
Rætt um ólög-
legar fiskveiðar
Formenn stjórnmála-
flokkanna vilja að minningu Jóns
Sigurðssonar for-
seta frá Hrafns-
eyri verði sýndur
sérstakur sómi
árið 2011 þegar
tvær aldir eru
liðnar frá fæð-
ingu hans.
Hafa þeir lagt
fram sameigin-
lega tillögu um
að skipuð verði nefnd sem leggi
til hvernig minnast megi tíma-
mótanna. Verði hún skipuð full-
trúum allra flokka, auk fulltrúa
forseta Alþingis og Hrafnseyrar-
nefndar.
Um leið leggja formennirnir
til að söfn Jóns á Hrafnseyri og
í Kaupmannahöfn verðir endur-
bætt.
Jóns forseta
minnst 2011
Sakborningurinn
Khalid Sheikh Mohammed hefur
játað fyrir bandarískum herdóm-
stóli að hafa skipulagt og stutt
framkvæmd 31 hryðjuverkaár-
ásar, þar á meðal hryðjuverkin
í Bandaríkjunum 11. september
árið 2001. Hryðjuverkin áttu sér
stað frá árinu 1990 og létust þús-
undir óbreyttra borgara í þeim.
Mohammed játaði einnig að
hafa myrt blaðamann Wall Street
Journal, David Pearl, árið 2002 en
aftaka hans vakti heimsathygli. Á
myndbandi sem var sett á netið
sést hvernig Pearl er afhöfðað-
ur af grímuklæddum manni sem
reyndist vera Mohammed.
Mohammed greindi jafnframt
frá fyrirhuguðum hryðjuverkum
sem yfirvöld höfðu náð að koma í
veg fyrir, svo sem áætlun um að
myrða nokkra fyrrverandi for-
seta Bandaríkjanna. Meðal sér-
stakra skotmarka sem Mohamm-
ed tilgreindi voru Jóhannes Páll
páfi II, Bill Clinton, fyrrverandi
forseti Bandaríkjanna, og Pervez
Musharaff, forseti Pakistan.
„Ég var ábyrgur fyrir aðgerð-
inni 9. september frá A til Ö,“
sagði Mohammed í yfirlýsingu
sem herlögmaður hans las upp við
yfirheyrslur síðastliðinn laugar-
dag. Varnamálaráðuneyti Banda-
ríkjanna birti afrit af yfirheyrsl-
unum á miðvikudagskvöld.
Ekki hefur sést til Mohammed
síðan myndir birtust af honum
strax eftir að hann var handtekinn
í mars árið 2003. Ekkert spurðist
til hans í þrjú ár meðan hann var í
leynilegu haldi hjá leyniþjónustu
Bandaríkjanna (CIA). Í fyrra til-
kynnti George W. Bush Banda-
ríkjaforseti að Mohammed hefði,
ásamt þrettán öðrum grunuðum
hryðjuverkamönnum, verið flutt-
ur í fangelsið á Guantanamo-flóa.
Yfirheyrslur yfir sakborning-
unum fjórtán hófust á föstudag-
inn síðastliðinn og er tilgang-
ur þeirra að skera úr um hvort
þeir teljist „óvinveittir bardaga-
menn“.
Verði mennirnir fjórtán sak-
felldir er hægt að halda þeim um
óákveðinn tíma og réttað verður
yfir þeim af sérstökum herdóm-
stólum á grundvelli laga um sér-
staka herdómstóla sem Bush und-
irritaði í október. Lögin þykja um-
deild vegna þess að dómstólunum
verður heimilt að nota vitnisburð
sem fenginn er með umdeild-
um yfirheyrsluaðferðum. Einnig
verður heimilt að nota upplýsing-
ar, sem fangarnir sjálfir fá ekki
að sjá, til þess að sakfella þá.
Skipulagði hryðju-
verkin 11. september
Khalid Sheikh Mohammed játaði á laugardag að hafa skipulagt 31 hryðjuverk frá
1990, þar á meðal árásina 11. september árið 2001 þar sem tæplega 3.000 manns
létust. Einnig stóð til að myrða nokkra fyrrverandi forseta Bandaríkjanna.
Karlmaður hefur verið
dæmdur í Héraðsdómi Reykja-
víkur fyrir að ráðast tvisvar
sinnum á fyrrverandi sambýlis-
konu sína. Í fyrra sinnið tók hann
í hálsmál yfirhafnar konunn-
ar, herti að og hrinti henni svo
hún féll aftur á bak á stigatröpp-
ur. Við það hlaut hún fleiðursár
á hálsi.
Í seinna skiptið sparkaði mað-
urinn nokkrum sinnum í líkama
hennar, sló henni utan í vegg og
hrinti henni, þannig að hún hlaut
áverka. Maðurinn var dæmdur í
tveggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi og til að greiða konunni
ríflega 300 þúsund krónur.
Fyrrum sam-
býliskona barin