Fréttablaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 28
Stjórnvöld í Frakklandi og í fursta-
dæminu Abu Dhabi gerðu sam-
komulag í byrjun síðustu viku sem
felur í sér að útibú hins heims-
fræga Louvre-safns í París verð-
ur opnað á Saadiyat-eyju í Abu
Dhabi.
Í samningnum felst meðal ann-
ars að Louvre-safnið í París send-
ir listmuni til safnsins í Abu
Dhabi og verða þeir þar til sýnis
í tvö ár að hámarki. Gjörningur-
inn hefur sætt harðri gagnrýni í
menningar- og listakreðsu Frakk-
lands og segja menn að verið sé
að senda frönsk menningarverð-
mæti úr landi. Franska blaðið
Le Figaro bendir hins vegar á að
hefðu Frakkar látið tækifærið sér
úr greipum renna hefðu stjórn-
endur listasafna í Madríd, Vínar-
borg og jafnvel í Rússlandi grip-
ið það.
Renaud Donnedieu de Vabres,
menningarmálaráðherra Frakk-
lands, er hins vegar hæstánægð-
ur með samninginn enda munu
mun fleiri listunnendur geta virt
fyrir sér franska list, sem aftur
getur skilað sér í auknum áhuga
á Frakklandi. Getur svo farið að
ferðamönnum til landsins fjölgi
vegna þessa.
Stjórnvöld í Abu Dhabi greiða
700 milljónir evra, jafnvirði rúmra
63 milljarða íslenskra króna, fyrir
afnot af vörumerki menningar- og
listasafnsins, sem er eitt hið fræg-
asta í Evrópu. Gert er ráð fyrir að
bygging safnsins muni kosta um 83
milljónir evra, jafnvirði 7,4 millj-
arða íslenskra króna. Fjármunirn-
ir verða meðal annars notaðir til
endurbóta og viðhalds á geymsl-
um hinna ýmsu safna í París.
Hönnuður Louvre-útibúsins
er franski arkitektinn Jean Nou-
vel en gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdum ljúki eftir fimm ár.
Samningur sem þessi er fjarri
því að vera nýlunda. Ráðamenn í
Abu Dhabi horfa nefnilega til þess
að Saadiyat-eyja, sem á íslensku
getur þýtt Eyja hamingjunnar,
verði miðstöð lista og menning-
arlífs á heimsmælikvarða. Með
þetta fyrir augum hafa þeir meðal
annars reist þar útibú Guggen-
heim-safnsins í New York í Banda-
ríkjunum en það mun fá listmuni
til sýnis frá móðursafninu vestan-
hafs.
Louvre-safnið
opnar útibú
Saadiyat-eyja í Abu Dhabi á von á reglulegum send-
ingum listmuna frá Louvre-safninu í París. Skrifað
hefur verið undir samkomulag um opnun útibús
Louvre þar.
Hagvöxtur mældist 1,3 prósent
á fjórða ársfjórðungi í Japan í
fyrra. Þetta er 0,1 prósentustigi
meira en í fjórðungnum á undan,
samkvæmt útreikningum jap-
önsku hagstofunnar. Hagvöxt-
urinn mældist 5,5 prósent á árs-
grundvelli í Japan í fyrra og hefur
hann ekki verið meiri í þrjú ár.
Þetta er nokkuð umfram það sem
greinendur höfðu spáð fyrir um.
Stjórnmálamenn í Japan hafa
þrýst á seðlabankann að halda að
sér höndum og hækka ekki vexti í
bráð því það geti dregið úr neyslu
almennings og fyrirtækja.
Stýrivextir í Japan standa nú í
0,5 prósentum og hafa þeir ekki
verið hærri í áratug.
Hagvöxtur umfram spár
Patrica Dunn, fyrrverandi stjórn-
arformaður bandaríska tölvu-
risans Hewlett-Packard (HP),
var sýknuð af öllum ákærum um
þjófnað og svik á miðvikudag.
Dunn lét njósna um nokkra stjórn-
armenn og starfsmenn fyrirtækis-
ins með það fyrir augum að upp-
ræta leka af stjórnarfundum fyr-
irtækisins til fjölmiðla. Hún sagði
af sér stjórnarformennsku þegar
málið komst í hámæli í septemb-
er í fyrra.
Dunn, sem berst við krabba-
mein í legi, var
ákærð vegna
málsins ásamt
þremur öðrum
síðastliðið haust
en stjórnin réð
einkaspæjara til
að komast yfir
persónuupplýs-
ingar nokkurra
lykilmanna hjá fyrirtækinu. Þess-
ar vafasömu aðferðir leiddu í ljós
að upptök lekans voru hjá einum
af stjórnarmönnum HP. Hann
neitaði hins vegar að láta af störf-
um en fær ekki að sitja í stjórninni
á nýjan leik.
Samfara því að Dunn var
sýknuð af öllum ákærum hlutu
fyrrverandi lögmaður HP og
tveir einkaspæjarar sem stóðu
að rannsókninni dóm fyrir minni
háttar brot. Þeir verða að greiða
skaðabætur til þeirra sem urðu
fyrir barðinu á rannsókninni og
verða auk þess að inna af hendi
samfélagsþjónustu í 96 klukku-
stundir.
Dunn hreinsuð af öllum ákærum
Forsvarsmenn breska farsímaris-
ans Vodafone undirrituðu í gær
formlegan samning um kaup á
67 prósenta hlut í indverska fjar-
skiptafélaginu Hutchison Essar.
Félagið er fjórða stærsta fjar-
skiptafélag Indlands og þykir hafa
opnað Vodafone dyrnar á einn af
mest vaxandi farsímamörkuðum
í heimi.
Í samningnum er kveðið á um
að félagið muni skipta um nafn
og muni eftirleiðis heita Voda-
fone Essar og verða vörur og öll
þjónusta félagsins auglýstar undir
merki Vodafone.
Ravi Ruia, varastjórnarformað-
ur Essar, sem fer með 33 prósenta
hlut í félaginu, verður eini fulltrúi
Essar í stjórn fjarskipafélagsins
en hann verður stjórnarformaður
Vodafone Essar. Þetta er þvert á
væntingar Essar sem upphaflega
fór fram á jafna skiptingu í stjórn
Vodafone Essar.
Vodafone mun sömuleiðis hafa
forkaupsrétt að öllum bréfum fé-
lagsins ákveði Essar að losa sig
við þau. Fátt bendir hins vegar til
þess að Vodafone kaupi Essar út
úr félaginu en indversk hlutafé-
lagalög meina erlendum aðilum að
eiga meira en 74 prósent í innlend-
um fjarskiptafélögum.
Breska ríkisútvarpið segir Voda-
fone stefna að mikilli uppbyggingu
á Indlandi og hafi eyrnamerkt tvo
milljarða punda, jafnvirði tæpra
262 milljarða íslenskra króna, sér-
staklega vegna þessa.
Vodafone skrifar undir á IndlandiDeutsche Bank mæl-
ir með Next og M&S
Hjá Deutsche Bank eru menn
bjartsýnir á gengi bresku versl-
anakeðjanna Next og Marks &
Spencer og mæla með kaupum á
hlutabréfum hvors félags.
Verðmatsgengi á Next hljóðar
upp á 2.450 pens á hlut en mark-
aðsgengi félagsins stóð í 2.044.
Bankinn setur verðmiðann
815 pens á Marks & Spencer,
stærsta smásala á fatnaði í Bret-
landi, á sama tíma og hluturinn
stóð í 680 pensum í Kauphöllinni
í Lundúnum.
Egils Gull
Poolmót Players
Dagana 18. mars, 1., 15. og 29. apríl
VERÐLAUN VERÐA VEITT FYRIR ÞRJÚ EFSTU SÆTIN
1. verðlaun 40.000 kr. + Gull-varningur og þátttökuréttur í lokakeppni
2. verðlaun 30.000 kr. + Gull-varningur og þátttökuréttur í lokakeppni
3. verðlaun 20.000 kr. + Gull-varningur og þátttökuréttur í lokakeppni
4. Þátttökuréttur í lokakeppninni
Fjórir efstu spilarar á hverju móti (16 alls) vinna sér inn þátttökurétt í lokakeppninni
þar sem verðlaunin eru Spánarferð. Sú keppni verður haldin sunnudaginn 6. maí.
LEIKFYRIRKOMULAGIÐ
Um er að ræða útsláttarkeppni þar sem hver keppandi má tapa einum leik í hverju móti.
Keppt verður með forgjöf þannig að allir geta tekið þátt.
Skráning fer fram í síma 544 5514, á players@players.is
eða hjá Players, Bæjarlind 4 – fyrir kl. 12 á miðnætti daginn fyrir keppnisdag.
Þátttökugjald er 3.000 kr. fyrir hvert mót. Hámark 64 keppendur á hverju móti.
Missið ekki af þessu stærsta og skemmtilegasta Pool-móti ársins.
GULL-TILBOÐ ALLA MÓTSDAGANA!
LÉTTÖL