Fréttablaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 50
16. MARS 2007 FÖSTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● kópavogur
Afreksskóli Breiðabliks var
stofnaður í upphafi þessa árs.
Hann hefur það að markmiði
að gera efnilegasta íþrótta-
fólk félagsins að afreksfólki í
framtíðinni.
Alls eru um 40 krakkar á aldrin-
um 14-20 ára sem sækja starf
Afreksskóla Breiðabliks nú í upp-
hafi. Um er að ræða unga íþrótta-
menn frá öllum deildum Breiða-
bliks að dansinum undanskildum.
Knattspyrnu-, körfubolta-, frjáls-
íþrótta-, sund-, karate- og skíða-
deildin eiga öll sína fulltrúa í skól-
anum þrátt fyrir að afar ströng
inngönguskilyrði séu fyrir hendi.
„Þetta er geysilega metnaðar-
fullt verkefni sem Breiðablik
hefur lagt í og ég veit ekki til þess
að önnur félög séu að gera eitt-
hvað í líkingu við þetta,“ segir
Arnar Bill Gunnarsson, annar
tveggja skólastjóra, en við hlið
hans situr Jón Sævar Þórðarson.
Þeim til halds og trausts er svo-
kallað fagráð, sem í sitja valin-
kunnir einstaklingar frá mismun-
andi deildum Breiðabliks.
Arnar segir að áherslan í starfi
skólans sé fyrst og fremst að bæta
umgjörð hinna ungu íþróttamanna
frekar en á líkamlegar æfingar,
eins og einhverjir kynnu að halda.
„Í skólanum fá krakkarnir fyr-
irlestra og persónuleg viðtöl við
sérfræðinga á hinum ýmsu svið-
um sem við koma íþróttinni. Þau
hafa sótt fyrirlestra í sálfræði og
næringarfræði og þau fá persónu-
lega ráðgjöf hvað varðar matar-
æði. Þau fá meðferð hjá færustu
sjúkraþjálfurum þar sem liðleiki
er skoðaður, göngugreining fer
fram og síðan gerðar tillögur að
því sem betur má fara. Allt miðar
þetta að því að bæta árangur
íþróttamannsins,“ segir Arnar.
Undirbúningur við verkefnið
hefur staðið yfir frá því í haust og
hefur hugmyndin blundað hjá
félaginu í nokkurn tíma, að því er
Arnar segir. Hann og Jón Sævar
hafi síðan verið fengnir til að þróa
hugmyndina. Flestir af þeim 40
íþróttamönnum sem eru í skólan-
um um þessar mundir koma frá
knattspyrnudeildinni, eða alls 16
– þar af 11 stelpur.
„Markmið skólans er einfalt og
skýrt, að taka efnilegasta fólkið í
félaginu og gera það að afreks-
fólki. Það er reyndar mjög erfitt
að skilgreina afreksfólk og mis-
munandi eftir því hvaða íþrótta-
grein á í hlut. En svo knattspyrnan
sé tekin sem dæmi þá sjáum við
atvinnumennsku fyrir okkur sem
æðsta takmarkið. En almennt vilj-
um við einfaldlega skapa sem
flesta afburðaíþróttamenn og að
sjálfsögðu mun það koma félaginu
til góða,“ sagði Gunnar að lokum.
Metnaðarfullt verkefni
Arnar Bill Gunnarsson er yfirþjálfari yngri flokka hjá knattspyrnudeild Breiðabliks
auk þess sem hann er aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Jón Sævar Þórðarson er
yfirþjálfari eldri flokks hjá frjálsíþróttadeild félagsins. Saman stýra þeir Afreksskóla
Breiðabliks. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Inntökuskilyrðin í Afreksskólann
REGLUR FYRIR EINSTAKLINGSÍÞRÓTTIR
Miðað skal við að iðkandinn hafi unnið til verðlauna á Íslandsmóti
eða öðrum sambærilegum mótum í sínum aldursflokki.
REGLUR FYRIR HÓPÍÞRÓTTIR
Knattspyrna: Miðað skal við að iðkandinn sé í byrjunarliði í lands-
liði í sínum aldursflokki.
Körfuknattleikur: Miðað skal við að iðkandinn sé í landsliðsúrtaki
eða elítuhóp KKÍ í sínum aldursflokki.
Iðkendahópur Afreksskóla Breiðabliks verður endurskoðaður
ársfjórðungslega þar sem metin verður frammistaða iðkendanna.
Þá verður kannað hvort fleiri uppfylli skilyrðin hér að ofan og við-
komandi er þá boðinn þátttaka í skólanum.
Starfsmenn Nammi.is í Smáralind
eru í óða önn að pakka páskaeggj-
um í kassa þegar Fréttablaðið ber
að garði. Í Smáralindinni heldur
Nammi.is úti lítilli sjoppu en á
bak við hefur fyrirtækið komið
sér upp lager. Stærsti hluti starf-
semi nammi.is er nefnilega
útflutningur á íslensku sælgæti.
„Við erum að pakka hátt í tvö
þúsund páskaeggjum sem fara til
Íslendinga erlendis. Við þurfum
að vanda pakkningarnar enda um
brothætta vöru að ræða,“ segir
Sófus Gústavsson, eigandi Nammi.
is.
Margir Íslendingar erlendis
nýta sér þjónustu Nammi.is. „Við
erum með um 4.000 aðila skráða á
netinu hjá okkur og erum með
góðan fastan kúnnahóp sem er
með fastar pantanir nánast í hverj-
um mánuði,“ segir Sófus og bætir
við að margar ömmur og afar
versli hjá sér og sendi barnabörn-
unum sem eru í námi erlendis.
En hvað er það sem fólk er
helst sólgið í? „Það er lakkrís og
harðfiskur en síðan er það árs-
tíðabundin vara eins og malt og
appelsín á jólum og auðvitað
páskaeggin um páska,“ svarar
Sófus og bætir við að brennivínið
sé vinsælt um þorrann. „Sælgætið
frá Nóa Siríusi er líka skuggalega
vinsælt, sérstaklega konfektið og
páskaeggin.“
Sófus segir miserfitt að senda
matvörur milli landa. Erfiðast sé
það til Bandaríkjanna þar sem
þarf mörg mismunandi leyfi. „Svo
eru sum lönd alveg bönnuð eins
og Mexíkó og lönd í Afríku.“
Fyrir utan útflutning á sælgæti
rekur Sófus verslunina Nammi.is
í Smáralind. „Sælgætisverslunin
hefur þróast mikið. Í upphafi seld-
um við aðeins bland í poka en vin-
sældir þess hafa dalað og sam-
keppnin orðin meiri. Í dag er
verslunin meira eins og söluturn
með pylsum og lottómiðum,“ segir
Sófus en fyrst í stað var ætlunin
að selja eingöngu íslenskt sæl-
gæti. Nýverið var þó tekið inn
týpískt bandarískt nammi. „Baby
Ruth, Three Musketeers og
Wrigleys-tyggjóin gömlu hafa
verið mjög vinsæl,“ segir Sófus
og bætir við að blöðrurnar séu
líka sívinsælar en um hundrað
slíkar renna út í hverri viku.
Lakkrís og harð-
fiskur vinsælast
Sófus pakkar páskaeggjum í kassa sem senda á til Íslendinga í útlöndum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI