Fréttablaðið - 16.03.2007, Page 52
16. MARS 2007 FÖSTUDAGUR4 fréttablaðið kópavogur
Leikfélag Kópavogs stendur fyrir sýn-
ingum á verkinu Allt & ekkert sem verð-
ur að teljast afar óhefðbundið leikverk.
Segja má að nafn verksins, Allt & ekkert,
segi mikið til um innihald þess. Að sögn
Fannars Víðis Haraldssonar, gjaldkera Leik-
félags Kópavogs, hafði verkið í fyrstu vinnu-
heitið „Ekkert“, enda hafði leikhópurinn
bókstaflega ekkert í höndunum – ekki svo
mikið sem drög að handriti. „Sýningin er í
raun spuni frá upphafi til enda. Við köllum
þetta ekki beint leiksýningu heldur miklu
frekar kaffiboð þar sem við leikararnir segj-
um sögur. Áhorfendur sitja síðan með okkur
á sviðinu og er frjálst að deila sínum sögum
með okkur. Allt þarna á milli er síðan spunn-
ið,“ segir Fannar og bætir við að útkoman
hafi verið stórskemmtileg, en sjálfur er
hann í hlutverki gestgjafa kaffiboðsins.
Verkið var á dagskrá þrívegis um síðustu
helgi í Félagsheimili Kópavogs. „Þetta tókst
vel upp, við fengum fullt af fólki til að taka
þátt í þessu með okkur og úr varð mjög
skemmtilegt andrúmsloft,“ segir Fannar en
næstu sýningar verða 16., 18., 24. og 25. mars
og byrja allar sýningarnar klukkan 20.00.
Þann 5. janúar síðastliðinn fagnaði Leik-
félag Kópavogs því að 50 ár væru liðin frá
stofnun þess. Af því tilefni var efnt til
afmælisdagskrár í Félagsheimili Kópavogs
þar sem brugðið var upp ýmsum atriðum úr
sögu leikfélagsins, ásamt ýmsum öðrum
uppákomum. Leikfélagið var stofnað 5. jan-
úar 1957 þegar 46 áhugamenn komu saman
í barnaskólanum, Kópavogsskóla, gagngert
til þess að stofna leikfélag. Ekkert húsnæði
var til undir slíka starfsemi og var því
aðstaða til leiksýninga mjög erfið. Leikfé-
lagið fékk þó inni hjá barnaskólanum í
bænum og starfaði þar við mjög bágbornar
aðstæður. Eftir árið 1959 hefur starfsemi
Leikfélags Kópavogs verið í Félagsheimili
Kópavogs eða í hjáleigunni, Höfuðbóli, sem
var innréttað sem bíó við hlið félagsheimil-
isins, en hýsir nú starfsemi Leikfélags
Kópavogs.
Á 50 ára afmælinu ætlar leikfélagið að
standa fyrir ýmsum listrænum viðburðum
og afmælisdagskráin mun ná hámarki í maí
þegar haldið verður veglega upp á 50 ára
afmælið með heljarstórri afmælishátíð sem
standa mun yfir í nokkra daga. Að auki verð-
ur gefið út veglegt afmælisrit í tilefni af
afmælinu.
Næsta fyrirhugaða verkefni leikfélags-
ins er uppfærsla á leikritinu Bingó, en um er
að ræða samstarfsverkefni með leikhópnum
Hugleik. Bingó er samið af Hrefnu Friðriks-
dóttur og er í leikstjórn Ágústu Skúladóttur,
en áætlað er að frumsýna verkið um miðjan
apríl. Að sögn Fannars eru æfingar komnar
vel á veg. „Þetta lofar mjög góðu og ég held
að ég geti lofað að útkoman verður mjög
skemmtileg.“ Í leikritinu sameinast fimm
manneskjur við þá þekktu dægradvöl að
spila bingó með afar áhugaverðum eftir-
málum – svo ekki sé meira sagt.
Leikfélag Kópavogs býður í kaffi
Sérstök stemning myndaðist í Félagsheimili Kópavogs þegar Leikfélag Kópavogs sýndi þar sitt nýjasta verk um síðustu helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI