Fréttablaðið - 16.03.2007, Page 56

Fréttablaðið - 16.03.2007, Page 56
 16. MARS 2007 FÖSTUDAGUR8 fréttablaðið kópavogur Slysavarnafélagið Landsbjörg og Kópavogsbær hafa gert með sér samstarfssamning sem kveður á um öryggisheimsóknir til eldri borgara í bænum. Um er að ræða heimsóknir sem öllum borgurum eldri en 75 ára verður boðið upp á, en alls telur sá hópur um 1.600 ein- staklinga. Þeir sem þiggja munu þjónust- una fá heimsókn frá fulltrúa Landsbjargar og mun hann hafa meðferðis reykskynjara, eldvarn- artæki, rafhlöður, handföng t.d. við baðker og inn í sturtur, stamar mottur í baðbotna, gúmmídúka undir mottur og fleira sem við- komandi heimili gæti haft not fyrir. Fulltrúinn mun síðan fara yfir öll þessi öryggisatriði. Auk þess munu allir þeir sem þiggja þjónustuna fá afhenta möppu frá Kópavogsbæ þar sem þjónusta bæjarins og annarra aðila sem vinna með öldruðum er kynnt. Farið yfir öryggisatriði með eldri borgurum Félagar frá Landsbjörg munu heimsækja eldri borgara og kynna fyrir þeim örygg- isatriði á heimilinu. Tónleikahald í Salnum er afar fjöl- breytt, allt frá einleikstónleikum til kórtónleika með innlendum og erlendum tónlistarmönnum. Þar er ávallt mikið um að vera og engin undantekning er á því í mars. Þriðjudaginn 20. mars mun Valgerður Andr- ésdóttir halda píanótónleika í Salnum. Á efnis- skrá er að finna verk höfunda á borð við Vasks frá Lettlandi og Takemitsu frá Japan auk sónötu eftir Franz Mixa sem á árunum eftir 1930 starfaði mjög að tónlist- armálum á Íslandi og markaði spor í tónlistarsögu okkar. Valgerður Andrésdóttir lauk einleikaraprófi í píanóleik frá Tón- listarskólanum í Reykjavík árið 1985. Hún stundaði framhaldsnám við Listaháskólann og lauk burt- fararprófi árið 1992. Hún bjó um tíma í Kaupmannahöfn þar sem hún starfaði sem undirleikari og píanókennari. Valgerður hefur haldið fjölmarga tónleika innan- lands og erlendis, unnið með söng- vurum og í kammermúsík. Hún starfar nú við tónlistarskólann í Hafnarfirði. Fimmtudag- inn 22. mars verða haldnir styrktartónleik- ar fyrir Krabba- meinsfélag Íslands. Lions- klúbburinn Engey heldur tónleikana til styrktar kaupum á brjóstaómtæki fyrir röntgendeild Krabbameinsfélagsins. Efnisskráin verður fjölbreytt, tónlist úr óperum, söngleikjum, dægurtónlist og jass. Fjölmargir listamenn munu koma fram og leggja þessu verðuga verkefni lið. Ágúst Ólafsson barítón, Anna Sig- ríður Helgadóttir messósópran, Áslaug Hálfdánardóttir sópran, Davíð Ólafsson bassi, Guðrún og Soffía Karlsdætur, Jóhann Frið- geir Valdimarsson tenór, Oddný Sigurðardóttir messósópran, Sig- rún Hjálmtýsdóttir / Diddú, sópr- an, Sólveig Samúelsdóttir messó- sópran, Stefán Stefánsson tenór, Stórsveit Tónlistarskóla Hafnar- fjarðar, stjórnandi Stefán Ómar Jakobsson, Hljómsveitin Strack- ovsky Horo, Píanóleikarar: John Gear og Sólveig Anna Jónsdóttir. Tónleikar í Salnum Valgerður Andrésdóttir píanóleikari. Sigrún Hjálmtýs- dóttir söngkona
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.