Fréttablaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 60
16. MARS 2007 FÖSTUDAGUR12 fréttablaðið kópavogur
Varla hefur farið fram hjá nokkrum
manni sem keyrir Reykjanesbrautina
til eða frá höfuðborginni að nú standa
yfir miklar framkvæmdir við Smára-
torg í Kópavogi. Þar rís brátt hæsta hús
landsins.
„Verkið er nokkurn veginn á áætlun. Það
hafa orðið nokkrir plúsar og mínusar við
framkvæmdirnar en upphaflegt markmið
stendur enn, það er að segja að afhenda
húsið fullbúið að utan, tilbúið til leigutaka,
þann 1. október næstkomandi,“ segir Ólafur
Hermannsson hjá ráðgjafarfyrirtækinu
VSÓ, en hann hefur yfirumsjón með fram-
kvæmdunum við Smáratorg.
Um 120 manns vinna nú baki brotnu á
hverjum degi við framkvæmdirnar og
segir Ólafur að þeim eigi líklega eftir að
fjölga eftir því sem nær dregur áætluðum
verklokum. „Hver hæð tekur þrettán daga
í vinnslu og nú er verið að leggja lokahönd
á 7. hæð. Það eru því 13 hæðir ennþá eftir,“
segir Ólafur. Þess má geta að um 85 pró-
sent mannaflans eru af erlendu bergi brot-
in og segir Ólafur þann fjölda líklega eins-
dæmi í jafnumfangsmiklu verki.
Háhýsið rís á ógnarhraða
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
HÁHÝSIÐ VIÐ SMÁRATORG
• Húsið verður alls 20 hæðir og verður
77,6 metra hæða hátt. Það gerir húsið
að hæstu byggingu landsins, um fjórum
metrum hærra en Hallgrímskirkjuturn.
• Undir húsinu verður 10 þúsund fer-
metra stór bílageymsla.
• Útveggir hússins verða allir úr gleri,
náttúruleg loftræsting verður um opn-
anlega glugga sem stýrast af veðurstöð
á þaki hússins.
• Fjórar háhraða lyftur verða í húsinu
og verður ein þeirra sérhönnuð fyrir
slökkvilið.
• Á jarðhæð og 1. hæð byggingarinnar
verða verslanir, skrifstofur á 2. - 19. hæð
og á efstu hæðinni verður veitinga-
staður.
• Aðaleigendur byggingarinnar eru
hjónin Erika Lómstein Jacobsen og
Jákup á Dul Jacobsen, oft kennd við
Rúmfatalagerinn.
• Háhýsið verður alls 20 þúsund fer-
metrar. Verslunarrýmin á jarðhæð og 1.
hæð verða um 6 þúsund fermetrar en
turninn samtals 14 þúsund fermetrar að
stærð
• Aðalhönnuðir byggingarinnar eru
þeir Aðalsteinn Snorrason, Björn
Guðbrandsson Egill Guðmundsson og
Gísli Gíslason. Allir eru þeir arkitektar hjá
Arkís.
• Gunnar Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs,
tók fyrstu skóflustunguna að háhýsinu
þann 24. febrúar á síðasta ári. Gert er
ráð fyrir að húsið verði klárt að utan og
tilbúið til innréttingar þann 1. október
á þessu ári. Heildartími framkvæmda er
því áætlaður um 19 mánuðir.
Háhýsið við Smáratorg verður alls 20 hæðir og
77,6 metra hátt. Áætluð verklok eru 1. október á
þessu ári.
Þrettán daga tekur að fullklára eina hæð í háhýsinu. Nú er verið að leggja lokahönd á þá sjöundu og á því eftir að byggja þrettán hæðir til viðbótar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON