Fréttablaðið - 16.03.2007, Page 96

Fréttablaðið - 16.03.2007, Page 96
Ísraelsk stjórnvöld hafa blandað sér í fjölmiðlafárið sem ríkt hefur í kringum dvöl Leonardo DiCaprio og unnustu hans, hinnar ísraelsku fyrirsætu Bar Raphali. Stjórnvöld hafa biðlað til paparazzi-ljósmynd- aranna um að reyna að halda „eðli- legri“ fjarlægð frá skötuhjúun- um. Kemur þetta í kjölfar þess að til ryskinga kom milli lífvarða leik- arans og ljósmyndara en í kjölfarið voru tveir starfsmenn stjörnunnar handteknir. DiCaprio og Raphaeli hafa heim- sótt flesta vinsæla ferðamannastaði í Ísrael, þar á meðal safn tileinkað minningu þeirra sem létust í helför- inni og grátmúrinn. Allt hefur verið á öðrum end- anum í Ísrael síðan DiCaprio og Raphaeli lentu á mánudagsmorg- un eftir stutta dvöl í Jökulsárlóni og Frankfurt. Helsta ástæðan fyrir öllum þessum æsingi er talin vera að fjölmiðlar þar í landi eru orðnir langþreyttir á hvers kyns blóðsút- hellingum sem hafa einkennt mann- lífið í Ísrael og eru fegnir að fá að fjalla um eitthvað annað en víga- menn og sjálfsmorðssprengingar. Stjórnvöld vernda Leonardo DiCaprio Fyrstu óvæntu úrslitin eru fyrir- liggjandi í Meistaranum. Kemp- an Sigurður G. Tómasson útvarps- maður – gjarnan kallaður Bubbi – var sleginn úr keppni af Birni Guðbrandi Jónssyni líffræðingi: 26 gegn 20 stigum Bubba. Ekki að Björn Guðbrandur sé einhver kettlingur þegar spurn- ingar og svör eru annars vegar. En líklega kemur þetta útvarps- hlustendum Sögu algerlega í opna skjöldu því þeir og fleiri vita að sjaldan eða aldrei er komið að tómum kofanum hjá Bubba þegar hina margvíslegu þætti þjóðlífs- ins ber á góma. En keppnin varð strax mjög jöfn. Börðust þeir Björn og Bubbi um að berja á bjölluna og höfðu svör á reiðum höndum. Björn náði þó yfirhönd- inni einkum vegna ívið betri við- bragðsflýtis en í töluspurningun- um náði Bubbi að snúa stöðunni sér í hag. Var þá með 25 stig gegn 21 stigi Björns. Gríðarleg spenna var þegar Björn átti eina spurn- ing eftir, lagði fimm stig undir og hafði svarið. Björn þar með kominn einu stigi yfir en síðustu spurninguna átti Bubbi. Lagði fimm stig undir en spurningin reyndist hinum fróða Sigurði G. ofviða og því fór sem fór. Stigatölur eru þó með því hæsta sem sést hafa í Meistaranum og ljóst að þarna voru tveir sterkir keppendur sem áttust við. Bubbi kveður því með þeim hætti að geta borið höfuðið hátt og telst eftir sem áður með fróðari mönnum. Bubbi sleginn úr hringnum Árlegt konukvöld Létt Bylgjunnar var haldið í Smáralindinni á miðviku- dagskvöldið. Skemmtilegar uppákomur krydd- uðu kvöldið og Smáralindin iðaði af lífi. 600 konur voru svo heppnar að vinna miða á sérstaka skemmt- un í Vetrargarðinum þar sem fjöldi tónlistarmanna og skemmtikrafta steig á svið. Jafnframt var kyn- þokkafyllsti maður Íslands 2007, að mati hlustenda Létt Bylgjunn- ar, kynntur til leiks, en þann eft- irsótta titil hlaut handboltamaður- inn Alexander Petterson að þessu sinni. Typparexía klámstjarnanna SMS LEIKURV inn ing ar ve rð a a fh en dir hj á B T S m ár ali nd . K óp av og i. M eð þv í a ð t ak a þ át t e rtu ko m inn í S M S k lúb b. 99 kr /sk ey tið . Sendu SMS JA BCF á 1900 og þú gætir unnið bíómiða fyrir tvo! 8 H V E RV I N N U R ! Vinningar eru bíómiðar, fullt af Pepsi, DVD myndir og margt fleira!
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.