Fréttablaðið - 16.03.2007, Side 98
Jamie T er einn af þeim bresku
nýliðum sem spáð var mikilli vel-
gengni á árinu 2007 í byrjun árs.
Þessi tvítugi strákur frá Wimble-
don á það sameiginlegt með Mike
Skinner í The Streets og Lily Allen
að hann gæti ekki verið frá neinu
öðru landi en Englandi. Það gera
bæði textarnir og framburðurinn.
Jamie Treays hóf ferilinn með
því að koma fram á pöbbum og
syngja lögin sín við eigin undir-
leik á fjögurra strengja órafmagn-
aðan kassabassa sem hann hafði
mjög takmarkað vald yfir. Fyrsta
lagið á Panic Prevention, Brand
New Bass Guitar, fjallar einmitt
um þetta forláta hljóðfæri. Hann
gerði samning við Virgin árið 2005
og vakti í fyrra athygli fyrir smá-
skífurnar Sheila og If You Got The
Money.
Jamie T er ekki rappari. Hann
syngur eða sönglar lögin sín. Tón-
listin er grípandi popp, en með
mjög hráum og frumstæðum „lo-
fi“ hljómi og mjög svo alþýðuleg-
um söngstíl. Maður heyrir greini-
lega áhrif frá listamönnum eins
og Elvis Costello, John-Cooper
Clarke, Jonathan Richman, The
Clash og The Specials, en sterk-
ust eru áhrifin frá þeim gróflega
vanmetna snillingi Ian Dury. Eins
og textar Dury fjalla textar Jamie
T á húmorískan hátt um breskan
hversdagsleika.
Það eru nokkur frábær lög á
Panic Prevention. Smáskífurnar
Sheila, Calm Down Dearest og lög
eins og Salvador og Alicia Quays
eru á meðal þess skemmtilegasta
sem maður hefur heyrt á árinu, en
slakari lög draga heildina niður.
Frumstæður og
skemmtilegur Jamie
Breska poppstjarnan Lily Allen
veldur þó nokkrum samkyn-
hneigðum aðdáendum sínum von-
brigðum í nýlegu viðtali. Þar þver-
neitar hún sögusögnum þess efnis
að hún sé lesbía og segir umræðu
um slíkt vera „undarlega“. Lily er
nú á föstu með plötusnúðnum Seb
Chew. „Þetta er undarlegasti orð-
rómur sem ég hef heyrt um mig,“
segir Lily Allen.
Segist ekki
vera lesbía
Leikkonan Reese Witherspoon
er ánægð með að vera skilgreind
sem tískutákn eftir skilnað sinn
við Ryan Phillippe á síðasta ári.
Reese vakti mikla athygli í gulum
kjól og með nýja hárgreiðslu á
Golden Globe-verðlaunahátíðinni
í janúar. „Mér finnst ég líta allt
öðruvísi út en ég hef áður gert. Og
er ánægð með það,“ segir Reese
sem á nýtt útlit sitt hönnuðinum
Olivier Theyskens hjá Ninu Ricci
að þakka. „Ég hef áður verið með
stílista en þessa dagana geri ég
allt sem Olivier vill.“
Ánægð með
nýja stílinn
Kjarvalsverkið, sem sleg-
ið var fyrir metupphæð á
uppboði í Kaupmannahöfn
í síðasta mánuði, er ekki
komið til landsins. Að sögn
Jóhanns Ágústs Hansen
listaverkasala fara danskir
forverðir um það höndum
og verið er að velja ramma
við hæfi. Nafn hins raun-
verulega kaupanda verður
gefið upp í fyllingu tímans.
„Nei, verkið er ekki komið til
landsins. Og ekki alveg víst hve-
nær það verður. Það er verið
að ganga frá því að hún verði
hreinsuð og rannsökuð. Að hún
verði í góðu ástandi þegar ég af-
hendi hana,“ segir Jóhann Ágúst
Hansen, listmunasali hjá Galleríi
Fold.
Fréttablaðið fylgdist grannt
með því þegar mikið verk, áður
óuppgötvað, eftir Jóhannes S.
Kjarval, Hvítasunnudagur, var
slegið fyrir metupphæð á upp-
boði í Kaupmannahöfn 27. febrú-
ar. Enda talið einstakt og lýsa kú-
bísku skeiði í list Kjarvals. Jóhann
Ágúst hreppti myndina eftir mik-
inn og æsispennandi slag og bauð
í hana sem nemur rúmum 15
milljónum íslenskra króna. Eru
þá ótaldar milljónir í sölulaun og
gjöld.
Enn er ekki vitað hvenær verk-
ið mikla kemur til landsins en
það verður líklega einhvern tíma
með vorinu. Eftir að danskir for-
verðir hafa farið um hana hönd-
um.
Jóhann Ágúst var með eigand-
ann í eyranu allt uppboðið og seg-
ist hafa verið kominn vel yfir þá
upphæð sem þeir höfðu ákveð-
ið sín á milli að væri þakið. En
Jóhann telur þó sinn mann hafa
verið reiðubúinn að fara enn
hærra.
„Ég veit ekki hversu hátt hefði
verið farið. En við höfum orðið
vör við áhuga úti í bæ fyrir
því að greiða enn hærra verð
fyrir myndina. Þannig að það
eru greinilega fleiri en við sem
höfðum tök á þessu eins og sást
greinilega. Við vorum ekki bara
tveir að bjóða í hana. Fimm í
það heila sem fóru yfir milljón
danskar,” segir Jóhann Ágúst.
Listmunasalinn segir að gefið
verði upp í fyllingu tímans hver
hinn raunverulegi kaupandi
verksins er. Enn sem komið er sé
það nafn aðeins milli Jóhanns og
kaupandans.
Jóhann Ágúst lét þess svo getið
í samtali við blaðamann Frétta-
blaðsins úti í Kaupmannahöfn
strax eftir uppboðið að almenn-
ingur á Íslandi fengi að njóta
myndarinnar og Jóhann segir
það standa. Þótt hún fari á einka-
safn mun eigandinn ekki loka
hana inni.
„Ef beðið verður um mynd-
ina á sýningu safna er ekki úti-
lokað að það verði leyft. En það
er alfarið hans ákvörðun. Þegar
að því kemur. Söfnin hafa mik-
inn áhuga á þessari mynd. Hafa
lýst því yfir og ég geri ráð fyrir
að þau vilji sýna hana. Hún var
ekki keypt í þeim tilgangi að fela
hana. Það er samfélagsleg skylda
allra sem eiga fræg listaverk að
sýna þau einhvern tíma. Það ætti
að vera krafa á alla listaverka-
sala að mínu mati.“
Jóhann Ágúst hefur gert upp
árið 2006 hvað varðar listaverka-
sölu og þar má greina hækkun
listaverkavísitölu um 18 prósent.
Sem er minni hækkun en var
milli áranna 2004 og 2005 – þá
hækkun um 124 prósent. „Verð-
mæti seldra verka árið 2006 er
kr. 105.533.627 á verðlagi ársins
2005 sem er aukning upp á 21%
frá fyrra ári.“
Bill Berry, fyrrverandi trommari
REM, spilaði með sínum gömlu
félögum er þeir voru vígðir inn í
Frægðarhöll rokksins í New York.
Berry, sem hætti í hljómsveit-
inni árið 1997, spilaði með þeim
Michael Stipe, Mike Mills og Peter
Buck gömul REM-lög.
Eddie Vedder, söngvari Pearl
Jam, veitti REM viðurkenning-
una. Sagði hann sveitina hafa haft
mikil áhrif á tónlistarheiminn og
bætti því við að rödd Stipe hafi
snert við sér þó að hann hafi ekki
skilið orð af því sem hann söng.
Hljómsveitirnar Van Halen,
Grandmaster Flash og The Ron-
ettes voru einnig heiðraðar ásamt
söngkonunni Patti Smith, sem spil-
aði á Íslandi árið 2005.
Berry aftur
með REM
Úrskurðað hefur verið að Brad
Delp, söngvari bandarísku hljóm-
sveitarinnar Boston, hafi fram-
ið sjálfsvíg. Delp, sem var 55 ára,
eitraði fyrir sjálfum sér á heim-
ili sínu í bænum Atkinson í New
Hampshire. „Það er gott að vita
að hann geti loksins farið í friði,“
sagði í yfirlýsingu fjölskyldu
hans. „Hann var maður sem gaf
mikið af sér til allra í kringum sig,
hvort sem það var fjölskyldan,
vinir eða ókunnugir. Hann gerði
það sem hann gat en hann var orð-
inn mjög þreyttur.“ Á heimasíðu
Boston mátti sjá yfirlýsinguna:
„Við höfum misst geðþekkasta ná-
ungann í rokkinu.“
Framdi sjálfvíg
AF HVERJU
EKKI
HELGARMEÐ
ZERO
ENDA?