Fréttablaðið - 16.03.2007, Qupperneq 104
Eiður Smári Guðjohn-
sen, sem hafði gagnrýnt félaga
sína í Barcelona eftir leikinn
gegn Liverpool fyrir að leggja
ekki nógu hart að sér og fyrir lé-
legan liðsanda, dró ekkert úr
þeirri gagnrýni sinni í viðtali við
spænska ríkissjónvarpið sem sýnt
var í gær. „Ég er aðeins að tala
um það hvernig menn standa sig
innan vallar,“ sagði hann en mörg-
um þótti þessi gagnrýni benda til
þess að lítill vinskapur væri meðal
leikmanna.
Victor Valdés markvörður, Deco
og fleiri leikmenn hafa svo gagn-
rýnt Eið Smára fyrir að láta þessa
skoðun sína í ljós í fjölmiðlum.
„Þessa hluti á að ræða í herbúð-
um liðsins en ekki í fjölmiðlum,“
sagði Deco.
Eiður Smári talaði spænsku
í viðtalinu og vakti það athygli
hversu fær hann er orðinn eftir
svo stuttan tíma. „Ég er ekki með
neinn kennara,“ svaraði hann. „Ég
bara hlusta og tek vel eftir.“
Gagnrýnir félaga
sína harðlega
Iceland Express deild karla
UEFA-bikarkeppnin
Meistaradeild Evrópu
Það var gríðarleg
stemning í Fjárhúsinu í Stykkis-
hólmi í gær og öll umgjörð heima-
mönnum til mikils sóma.
Það var fullt út úr dyrum
nokkru fyrir leik og allir áhorf-
endur staðráðnir í að skemmta
sér vel. Allt ætlaði síðan um koll
að keyra þegar Stebbi og Eyfi
tróðu upp rétt fyrir leik og að
sjálfsögðu hljómaði Nína.
Stebbi og Eyfi
tróðu upp
Þrautsegja Breiðhylt-
ina, reynsla Keiths Vassell og gríð-
arlega mikilvægar þriggja stiga
körfur Steinars Arasonar tryggðu
ÍR-ingum sigur á KR í fyrsta leik
liðanna í fjórðungsúrslitum Ice-
land Express deildar karla.
Fyrri hálfleikur var hraður og
skemmtilegur en mikil barátta
einkenndi þann síðari. ÍR virtist
baráttuglaðara á vellinum og náði
á endanum sigri, 73-65.
KR byrjaði betur og komst í 5-
1 forystu. ÍR-ingar léku þó vel og
náðu fljótt að jafna leikinn og kom-
ast í forystu. Keith Vassell og Ei-
ríkur Önundarson héldu um taum-
ana og skoruðu góðar körfur.
Hægt og rólega sigu þó KR-
ingar aftur fram úr og náðu fjög-
urra stiga forystu í lok fyrsta leik-
hluta, 19-15.
KR skoraði fyrstu körfu annars
leikhluta en þá tók Steinar Ara-
son til sinna mála og setti niður
tvo þrista í röð og jafnaði þar með
leikinn, 21-21.
Til að bæta gráu á svart fékk
einn besti varnarmaður KR, Ed-
mund Azemi, sína þriðju villu um
miðjan annan leikhluta og var tek-
inn beint út af í kjölfarið. Hann
kom lítið við sögu eftir það en tókst
samt að næla sér í fimm villur.
Jeremiah Sola tókst að halda
sínum mönnum á floti með frá-
bærum sóknarleik og var því for-
ysta ÍR í leikhléi aðeins eitt stig,
40-39.
Sama baráttan einkenndi leikinn
í upphafi þriðja leikhluta en leik-
mönnum tókst illa að safna stigum.
Það var ekki fyrr en vel var liðið
á leikhlutann að Sola setti niður
þriggja stiga körfu og kom KR
yfir að hann kveikti í sínum mönn-
um. Önnur karfa fylgdi í kjölfar-
ið og ÍR-ingar, sem höfðu staðnað
eftir frábæran fyrri hálfleik, tóku
leikhlé.
KR hélt áfram á sömu braut og
komust í sjö stiga forystu, 53-46.
Samtals skoruðu þeir tólf stig gegn
engu hjá ÍR á þessum leikkafla.
ÍR skoraði aðeins tólf stig í
þriðja leikhluta og samtals leiddi
KR með fimm stigum fyrir loka-
sprettinn.
Keith Vassell hafði hægt um sig
í þriðja leikhluta skoraði þó fyrstu
körfu þess fjórða. Nate Brown
skoraði svo mikilvæga þriggja
stiga körfu er hann jafnaði leikinn
í stöðunni 56-56. Steinar fylgdi svo
eftir með sinni þriðja þristi í leikn-
um. Hann bætti við þeim fjórða og
svo fimmta skömmu síðar og kom
ÍR í sjö stiga forystu.
Sá munur reyndist einfaldlega
of mikill fyrir heimamenn á þeim
skamma tíma sem var til leiks-
loka.
Steinar og Keith Vassell kláruðu KR-inga
Grétar Rafn Steinsson
og félagar í hollenska úrvals-
deildarliðinu AZ Alkmaar slógu
út lið Newcastle í 16-liða úrslit-
um UEFA-bikarkeppninnar. Leik-
ar fóru 2-0 og hafði því AZ betur
með fleiri mörkum skoruðum á
útivelli.
Newcastle komst í 4-1 for-
ystu strax í fyrri hálfleik liðanna
í Englandi í fyrri viðureigninni.
Leikmenn AZ gáfu hins vegar
aldrei eftir og unnu á endanum
dýrmætan sigur.
Grétar Rafn lék allan leikinn
fyrir AZ Alkmaar.
AZ sló New-
castle úr leik
Keflvíkingar eru komn-
ir með bakið upp við vegg eftir tap
gegn Snæfelli í Stykkishólmi í gær.
Heimamenn sýndi mikla seiglu og
andlegan styrk með því að tapa aldrei
hausnum og á seiglunni sigldu þeir
til sigurs fyrir fullu húsi Hólmara
þar sem ekki sást einn einasti Kefl-
víkingur.
Það voru gestirnir frá Keflavík
sem mættu mun grimmari til leiks,
spiluðu hörkuvörn og ákveðna sókn.
Þeir voru fljótir að byggja upp gott
forskot og leiddu með með sjö stig-
um, 4-11. Heimamenn voru fljót-
ir að hrista af sér sviðsskrekkinn
fyrir framan fullt hús áhorfenda og
söxuðu smám saman á forskotið og
gerðu gott betur með því að leiða
eftir fyrsta leikhluta, 19-17.
Annar leikhluti var meira og
minna eign heimamanna. Þeir bætti
sífellt við forskot sitt og á sama hélt
áfram að síga á ógæfuhliðina hjá
Keflvíkingum. Þeir misstu Hermeni-
er og Gunnar Einarsson fljótlega af
velli vegna villuvandræða og Magn-
ús Gunnarsson var einnig kominn í
villuvandræði undir lok hálfleiksins.
Þess utan hittu Keflvíkingar ákaf-
lega illa úr skotum sínum. Þeir náðu
þó að rétta út kútnum undir lok hálf-
leiksins og munurinn aðeins sjö stig í
leikhléi, 43-36.
Þriðji leikhluti var lítt spennandi
því Snæfell yfirspilaði gestina sem
urðu verulega pirraðir fyrir vikið og
gerðu lítið annað en að safna villum
sem og tæknivillum. Mestur varð
munurinn sextán stig, 58-42, í leik-
hlutanum en munurinn var fjórtán
stig eftir þriðja leikhlutann, 61-47.
Keflvíkingar fengu flugstart í
þriðja leikhlutanum er Magnús
Gunnarsson hitti úr þrem þriggja
stiga skotum í röð og kveikti smá
vonarneista hjá gestunum. Snæfell-
ingar létu Magnús ekki slá sig út af
laginu, heldur réttu strax út kútnum
og eftir það var leiðin greið. Kefla-
vík náði aldrei að ógna þeim af viti
og Snæfell innbyrti öruggan og sann-
gjarnan sigur, 84-67.
„Það er mikill vilji í mannskapn-
um núna. Við höfum margir hverj-
ir verið nálægt því að fara alla leið
og því vantar ekki viljann núna,“
sagði Hlynur Bæringsson í léttu
spjalli í áhaldageymslunni en hann
átti frábæran leik. „Mér fannst við
líka sterkir andlega og var aðallega
ánægður með það.“
Hlynur segir það vera skrítna til-
finningu að mæta Keflavík í átta liða
úrslitum eftir að hafa barist við þá
áður í úrslitum. „Ef róðurinn á að
þyngjast eftir þetta þá veit ég ekki
hvað bíður okkar,“ sagði Hlynur sem
kvíður ekki næsta leik. „Við höfum
oft tapað í Keflavík og hluti af því
er sú staðreynd að þeir voru betri en
við en við erum betri núna.“
Sigurður Ingimundarson, þjálf-
ari Keflavíkur, var þokkalega sátt-
ur við sína menn í leikslok en sagði
að leikstjórnanda hefði vantað hjá
þeim. Hann var einnig hundfúll með
að Keflvíkingar létu ekki sjá sig á
leiknum.
„Það er sorglegt að koma í stemn-
inguna hingað og uppgötva það að
fólkið í Keflavík sé að snúa baki við
strákunum sem hafa staðið sig eins
og hetjur síðustu ár. Um leið og það
gefur aðeins á bátinn hverfur fólkið.
Ég er gríðarlega sár og svekktur yfir
þessu. Ég hef sjaldan eða aldrei orðið
eins hissa á ævinni. Við munum samt
mæta klárir í næsta leik og vonandi
koma einhverjir til að styðja okkur,“
sagði Sigurður sársvekktur.
Snæfell vann öruggan og sanngjarnan sigur á Keflavík í gær, 84-67. Snæfelling-
ar réðu ferðinni nánast allan leikinn og hleyptu Keflavík aldrei of nærri sér.
„Þetta var frábær
sigur og við áttum þetta fyllilega
skilið. Við komum hingað kok-
hraustir, rétt töpuðum hér í síð-
asta deildarleik, erum búnir að
vera á miklu skriði eftir áramót.
Við unnum bikarinn og okkur
langar í annan bikar,” sagði Stein-
ar Arason, fyrirliði ÍR sem setti
niður fimm af sjö þriggja stiga
skotum og var með 20 stig á 23
mínútum. „Ég var með sjálfs-
traustið í botni og maður verður
að nýta sér þegar maður fær opin
skot. Þetta er það sem ég geri í
ÍR-liðinu, ef ég hitti þá spila ég ef
ég hitti ekki þá fer ég á bekkinn,“
sagði Steinar.
Steinar hafði hægt um sig í
deildarleikjum liðanna í vetur og
í þeim skoraði hann einungis þrjú
stig, eða eina þriggja stiga körfu.
Hann skoraði hins vegar fimm í
gær, þar af þrjár í lokaleikhlutan-
um.
Með sjálfs-
traustið í botni