Fréttablaðið - 30.03.2007, Qupperneq 12
Arabaleiðtogar
hafa á ný lagt fram tilboð sitt til
ísraelskra stjórnvalda um land
fyrir frið. Kalla þeir eftir beinum
viðræðum í von um að blása lífi í
friðarviðræður í Mið-Austurlönd-
um. Tilboðið var fyrst lagt fram
árið 2002 en þá hafnað af Ísrael.
Leiðtogarnir komu saman í
Sádi-Arabíu þar sem vandamál
svæðisins voru rædd. Auk Ísra-
els var farið yfir ástandið í Írak,
aukinn mátt Írans og lýstu leið-
togarnir yfir ótta við kjarnorku-
vopnakapphlaup í Mið-Austur-
löndum.
Talskona ísraelskra stjórnvalda
sagði tilboðið áhugavert og hugs-
anlegan grundvöll viðræðna en
vildi ekki tjá sig meira um það að
svo stöddu.
„Ísrael verður að velja á milli
tveggja kosta: að lifa í hringrás
stöðugs stríðs og vaxandi haturs
eða að samþykkja möguleikann á
friði og sambúð þjóða,“ sagði kon-
ungur Jórdaníu, Abdullah II, sem
kallaði eftir því að Bandaríkin
settu þrýsting á Ísrael.
Í tilboðinu felst viðurkenning á
Ísraelsríki og varanlegur friður
við arabaríki gegn því að Ísrael
hverfi frá því landi sem var her-
tekið árið 1967. Kveðið er á um
palestínskt ríki og „sanngjarna
lausn“ á málum palestínskra
flóttamanna sem voru þvingaðir
af landi sínu sem nú er Ísrael.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
36
39
0
02
/0
7
High Peak Redwood
svefnpoki
Þægilegur að -3C°
Mesta kuldaþol -20C°
fermingargjöf
Flott hugmynd að
Fermingartilboð
5.990 kr.
Verð áður 7.990 kr.
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
Búrfell er heiti á fjalli . . . raunar mörgum
fjöllum á Íslandi sem öll eru svipuð að
lögun. Sumir telja að heitið Búrfell sé
skírskotun til kistuformsins, nánar tiltekið
búrkistu eða matarkistu. Það er fín tilgáta.
Vörurnar frá Búrfelli eru ljúffengar
gæðakjötvörur en á sérlega góðu verði.
Búrfellsáleggið er í endurlokanlegum
umbúðum, enda er gott að geta lokað
matarkistunni sinni.
Búrfell, góður matur á borð
Búrfell
álegg í nýjum og endur-
lokanlegum umbúðum.
í nýjum
búningi,
Samfylkingin kynnti í
gær aðgerðaáætlun í málefnum
barna sem nefnist Unga Ísland.
Samkvæmt henni mun flokkur-
inn beita sér fyrir markvissum
aðgerðum til að bæta stöðu barna
og barnafjölskyldna á Íslandi á
næsta kjörtímabili. Þetta verð-
ur gert í samstarfi við foreldra,
skóla, sveitarfélög og fleiri.
Meðal aðgerða sem kynntar
voru í gær eru bætt tannvernd
barna með ókeypis eftirliti og
forvörnum, hækkun barnabóta,
ókeypis skólabækur fyrir fram-
haldsskólanema og stóreflt for-
varnastarf gegn kynferðisof-
beldi. Einnig ætlar flokkurinn að
auka stuðning við börn innflytj-
enda í skólakerfinu.
„Við teljum skipta mestu máli
að draga úr skerðingu barna-
bóta, gera öllum sem vilja kleift
að sækja framhaldsskóla með því
að létta af þeim bókakostnaðinn
og tryggja að öll börn eigi greið-
an aðgang að tannvernd og -eftir-
liti,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, formaður Samfylkingar-
innar.
Hún segir kostnaðinn við fyrstu
níu aðgerðirnar í áætluninni vera
um tvo til þrjá milljarða króna.
„Það eru ekki stórar upphæð-
ir miðað við útgjaldaloforð ríkis-
stjórnarinnar.“
Bæta stöðu barna og unglinga