Fréttablaðið - 30.03.2007, Page 20
Húsið skagar upp úr á risa-
vöxnu byggingarsvæði þar sem
grafið hefur verið alls stað-
ar umhverfis það. Fólk kallar
það „Naglahúsið“ vegna stað-
festu eiganda þess sem neitar
að selja verktökum það, eins og
nagli sem ekki er hægt að fjar-
lægja, að því er kemur fram á
fréttavef Herald Tribune.
Barátta Wu Ping fyrir hús-
inu sínu undanfarin tvö ár
hefur vakið heimsathygli. Yfir
280 nágrannar hennar sættust
á bætur sem þeim voru boðn-
ar fyrir hús sín en hún stendur
föst á sínu.
Á hverju ári mótmæla þús-
undir Kínverja því að þurfa að
víkja af heimilum sínum fyrir
nýjum háhýsum, golfvöllum
eða iðnaðarhverfum. Sögur eru
sagðar af handtökum og jafn-
vel barsmíðum á fólki sem mót-
mælir brottflutningi.
Wu segist hafa meiri trú en
aðrir. „Ég trúi því að þetta sé
mín löglega eign og ef ég get
ekki varið mín réttindi þá hefur
það nýju eignalögin að háð-
ungi.“ Á hún þar við lög sem
kínverska þingið setti fyrr í
þessum mánuði þar sem eigna-
réttur er í fyrsta skipti tryggð-
ur lögum samkvæmt.
Þrátt fyrir allt lítur út fyrir
að barátta Wu muni tapast á
endanum. Verktakarnir sneru
sér loks til húsnæðisyfirvalda í
borginni sem gáfu út heimild til
niðurrifs.
Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra býður starfsmenn Alcoa
Fjarðaáls á Reyðarfirði velkomna
á starfsmannahátíð á morgun.
Ásamt honum verða Valgerður
Sverrisdóttir utanríkisráðherra
og Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra gestir hátíðarinnar.
„Þetta er hátíð sem Bandaríkja-
menn kalla welcoming cerem-
ony,“ segir Erna Indriðadóttir,
upplýsingafulltrúi Alcoa Fjarða-
áls. Bernt Reitan, aðstoðarfor-
stjóri Alcoa í Bandaríkjunum
verður einnig meðal gesta á hátíð-
inni á morgun.
Ráðherrar til
Reyðarfjarðar
Fulltrúar Persónu-
verndar heimsóttu á miðvikudag
Alcan í Straumsvík til að skoða
kerfi sem stýrir kosningavef fyr-
irtækisins. Að sögn Sigrúnar Jó-
hannesdóttur, forstjóra Persónu-
verndar, var fundurinn gagn-
legur. „Við fengum afhent ýmis
gögn sem við erum að fara í gegn-
um núna. En það hefur ekki verið
tekin ákvörðun um frekari að-
gerðir og ég get ekkert fullyrt um
hvenær sú niðurstaða mun liggja
fyrir.“
Alcan gerði ákveðnar breytingar
á vefnum þegar fyrirtækinu barst
fyrirspurn frá Persónuvernd 15.
mars síðastliðinn. Í svarbréfi sem
fyrirtækið sendi frá
sér síðastliðinn föstu-
dag vegna vefsins
segir meðal annars
að „byrjað var á út-
hringingum 10. mars
síðastliðinn. Fram til
15. mars gátu þeir
starfsmenn sem
skráðu upplýsing-
ar skoðað svör ein-
staklinga, sem og
„administrators“
(vefstjóra).“
Þörf fyrir þenn-
an aðgang hafi síðar ekki
reynst nauðsynlegur „þegar á
reyndi og ekki er vitað til þess
að aðgangurinn hafi
verið nýttur. Var því
ákveðið að fella þenn-
an möguleika út úr
kerfinu.“ Þeim við-
mælendum sem skráð-
ir voru í kerfið á þess-
um tíma var ekki til-
kynnt um að vefstjórar
hefðu aðgang að öllum
svörunum sem þeir gáfu
þegar hringt var í þá.
Auk þess hefur spurn-
ing um forsendur þeirra
sem hringt er í verið fjar-
lægð úr gagnagrunni
kosningavefsins.
Starfsmenn gátu skoðað svörin
Börn og foreldr-
ar sameinuðust í mótmælagöngu
í höfuðborg Nýja-Sjálands, Well-
ington, á miðvikudag vegna laga-
frumvarps sem kveður á um bann
við flengingum.
Eru mótmælin hluti af andstöðu
við áætlun um að afnema ákvæði
í hegningarlögum sem leyfir for-
eldrum að nota „hæfilegt afl“ til
að aga börn sín.
Styðjendur frumvarpsins segja
gildandi lög hafa verið notuð til
að tryggja sýknu fyrir foreldra
sem hafa verið ákærðir fyrir að
berja börn sín.
Í 500 manna mótmælagöngunni
mátti sjá skilti með slagorðunum:
„Skiptið ykkur ekki af fjölskyld-
um“ og „Flengingar eru ekki bar-
smíðar“. Ein stúlka veifaði skilti
sem á stóð „Þið eruð ekki mamma
mín og pabbi“.
Á móti banni
við flengingum
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 2. hæð, 105 Reykjavík
Símar: 515 1735 og 898 1720, fax: 515 1717
Netfang: oskar@xd.is
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingis-
kosninganna 12. maí nk. er hafin.
Kosið er hjá sýslumönnum um allt land. Hjá Sýslumanninum í
Reykjavík, Skógarhlíð 6, er kosið alla virka daga kl. 9.00 – 15.30,
laugardaga, sunnudaga og aðra helgidaga kl. 12-14, en lokað
föstudaginn langa og páskadag.
Utankjörstaðaskrifstofan veitir allar upplýsingar og aðstoð við
kosningu utan kjörfundar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á
heimasíðu Sjálfstæðisflokksins www.xd.is og á upplýsingavef
dómsmálaráðuneytisins www.kosning.is
Sjálfstæðisfólk!
Látið okkur vita um stuðningsmenn sem ekki verða heima
á kjördag, t.d. námsfólk erlendis.
UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
L Litháískur karlmaður
hefur verið úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 20. apríl. Hæstiréttur
hefur staðfest þann úrskurð.
Maðurinn er grunaður um að
hafa stolið ýmsum verðmætum úr
verslunum á höfuðborgarsvæð-
inu. Við leit á honum fann lög-
regla gasvopn og hníf.
Maðurinn hefur hlotið fjóra
refsidóma á árunum 1993-2001
í heimalandi sínu, samkvæmt
upplýsingum frá Interpol. Fyrst
þriggja ára fangelsi fyrir rán, þá
fjögurra ára fangelsi fyrir rán og
eignaspjöll, síðan fjögurra ára
fangelsi fyrir rán og loks þriggja
ára fangelsi fyrir þjófnað.
Stórþjófur í
gæsluvarðhald