Fréttablaðið - 30.03.2007, Blaðsíða 84
„Eingöngu þeir sem sofa
gera engin mistök.“
Alþingi samþykkir aðild Íslands að NATO
Jón Hnefill Aðalsteinsson þjóðfræð-
ingur varð áttræður í gær og af því
tilefni efna samstarfsmenn hans og
félagar til málþings honum til heið-
urs í dag.
Jón Hnefill er fæddur á Vaðbrekku
í Hrafnkelsdal árið 1927. Hann varð
stúdent frá Menntaskólanum á Akur-
eyri árið 1948 og hélt síðan til frek-
ara náms í Svíþjóð þar sem hann nam
trúarbragðasögu, heimspeki og trú-
arsálarfræði við Stokkhólmsháskóla.
Hann lauk guðfræðiprófi frá Háskóla
Íslands árið 1970 og hélt síðan aftur
til Svíþjóðar þar sem hann lagði stund
á þjóðfræði og lauk doktorsprófi frá
Uppsalaháskóla árið 1979.
Jón Hnefill á að baki farsælan feril
sem fræðimaður og kennari en hann
er af mörgum álitinn faðir þjóðfræð-
innar hér á landi enda hafði hann
frumkvæði að því að komið var á
fót þjóðfræðiskor við félagsvísinda-
deild Háskóla Íslands og mótaði hann
áherslur í kennslu hennar fyrstu árin
auk þess að kynna hingað til lands er-
lenda strauma og stefnur í faginu.
Hann varð fyrstur manna dósent í
þjóðfræði árið 1988 og prófessor fjór-
um árum síðar.
„Mér finnst nú bara ánægjulegt að
vera svona sæmilega frískur og fá að
njóta lífsins,“ segir Jón Hnefill hóg-
vær þegar hann er inntur eftir hugð-
arefnum sínum á þessum tímamót-
um. Hann segist hafa notið þess mjög
að fá að fylgjast með þjóðfræðinni
vaxa og dafna innan íslenska fræða-
samfélagsins. „Þetta gengur mjög vel,
nú hafa færir menn tekið við og þeir
eru líklegir til góðra og eftirminni-
legra verka,“ segir hann. Jón Hnef-
ill er prófessor emeritus við skorina
og segist fylgjast með starfinu þar af
áhuga.
Jón Hnefill hefur ritað fjölda bóka
og eftir hann liggja margar ritgerð-
ir í íslenskum og erlendum tímaritum
auk þess sem hann hefur lagt mikið
af mörkum til þjóðfræðirannsókna
hér á landi. Áhugaefni hans eru fjöl-
breytt en gjarnan af trúarlegum toga
svo sem norræn trú og goðsögur, þjóð-
trú og ævintýri, gátur, spádómar og
tækifæris-skáldskapur svo eitthvað
sé nefnt.
Hann hefur langt því frá lagt fræðin
á hilluna því hann kveðst enn vera að
skrifa, á næstunni birtist til dæmis
grein eftir hann um Eddukvæðin í
Skírni og önnur í þýsku fagtímariti.
Á málþinginu sem haldið verður í
fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins í
dag verður hugað að fortíð og fram-
tíð en þar flytja nemendur og fleiri
velunnarar Jóns erindi um fjölbreytt
þjóðfræðileg efni. Málþing þetta er til
marks um þá grósku sem ríkir í þjóð-
fræðarannsóknum nútímans en þar
verður til að mynda fjallað um goða-
nöfn, keðjubréf og grínefni í íslensk-
um fjölmiðlum.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Gunnar Þorbjörn
Gunnarsson,
fyrrv. forstjóri,
lést á Droplaugarstöðum í Reykjavík,
hinn 28. mars sl. Útför hans verður auglýst síðar.
Gunnar Ingi Gunnarsson Erna Matthíasdóttir
Hjördís G. Thors Ólafur Thors
Ólafur Þór Gunnarsson A. Linda Róberts
Ingibjörg Gunnarsdóttir Grétar Örvarsson
og afabörn.
Ástkær eiginkona mín,
Sigríður Ragnhildur
Valsdóttir,
Hlíðarbyggð 28, Garðabæ,
lést miðvikudaginn 28. mars sl. Útförin fer fram í
Vídalínskirkju miðvikudaginn 4. apríl kl. 13.
Helgi Pétursson
Björg Hoe Helgadóttir Jóhann Birgir Jóhannsson
Anna Maren Hoe Helgadóttir
Berglind Helgadóttir Pétur Ottesen
Björg Julie Hoe Hermannsdóttir
Ingibjörg Kristín Valsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginkonu
minnar, móður, dóttur, tengdadóttur,
systur og mágkonu,
Sólveigar Ólafsdóttur
Efri Brúnavöllum 1.
Hermann Þór Karlsson
Sigurlína Margrét Hermannsdóttir
Ólafur Hjaltason Steinunn Ingvarsdóttir
Hjalti Ólafsson Ragnheiður Líney Pálsdóttir
María Karen Ólafsdóttir Valdimar Bjarnason
Atli Sigurðsson, Kattie Nielsen
Snæfríður Ólafsdóttir
Hjalti Gestsson
Karl Stefánsson, Þóra Hermannsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Bróðir minn
Þormóður Eiríksson,
sem lést í Hulduhlíð, Eskifirði, mánudaginn 26. mars
verður jarðsunginn frá Eskifjarðarkirkju laugardaginn
31. mars kl. 11.00.
F.h. aðstandenda,
Þorbjörg Eiríksdóttir.
„Já, eða hálfri milljón minna fátæk-
ari,“ segir Ólöf Ýrr Atladóttir, fram-
kvæmdastjóri Vísindasiðanefndar.
Ólöf sló í gegn í sjöundu og næstsíð-
ustu viðureign fyrstu umferðar Meist-
arans sem var á dagskrá Stöðvar 2 í
gærkvöldi. Ekki einasta gerði hún sér
lítið fyrir og krækti sér í hálfa milljón
heldur rúllaði hún upp gömlum kennara
sínum, Erlingi Sigurðssyni, sem kenndi
henni í MA. Góður lærimeistari.
Ólöf er hógværðin uppmáluð og
vill alls ekki meina að hún sé betur
að sér en Erlingur. Þarna skipti öllu
heppni með spurningar og dagsform-
ið. Hún bjóst ekki við því að komast
áfram enda óæfð sökum anna við nám
og vinnu.
En með frammistöðu sinni er Ólöf
Ýrr komin í fjórðungsúrslit ásamt
Pálma Óskarssyni, Birni Guðbrandi
Jónssyni, Illuga Jökulssyni, Magnúsi
Þorláki Lúðvíksyni, Páli Ásgeiri Ás-
geirssyni og Helga Árnasyni.
Keppnin milli þeirra Ólafar og Er-
lings var lengi vel í járnum. Og þegar
komið var í síðasta hlutann, töluspurn-
ingarnar, var staðan jöfn eða 20 stig
gegn 20. Þá ákvað Erlingur að tefla
djarft, lagði tvisvar undir fimm stig
en tapaði í bæði skipti. Ólöf lagði hins
vegar eitt stig undir, hafði svarið en er
þá komin í 21 – 10 sem þýðir að „stóra
spurningin“ er hennar. Hún tók áhætt-
una sem borgaði sig. Lenti á hálfrar
milljóna króna spurningu, var spurð út
úr Biblíunni og kannaðist við sig þar.
Hún var því orðin 500 þúsund krónum
ríkari og búin að vinna keppnina.
„Hvað ég ætla að gera við pening-
inn? Ætli hann fari ekki að einhverju
leyti í hítina. En maður reynir að gera
sér glaðan dag fyrst það losast ögn um
tökin í bili.
Hugsa að þetta fari svolítið í ferða-
sjóð. Enda stórferðalög sem standa
fyrir dyrum.“
Hálf milljón í hítina og ferðasjóð
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.