Fréttablaðið - 30.03.2007, Qupperneq 88
Kl. 16.00
Uppákoma í húsi Ó. Johnson &
Kaaber við Sæbraut. Franska leik-
konan Anne Brochet flytur níu
síðna setningu „L‘image“ ásamt
dansaranum Damien Jalet sem
túlkar við tónlist eftir Kiru Kiru og
Alexöndru Gilbert. Franski leik-
stjórinn Arthur Nauzyciel stýrir
viðburðinum sem er liður í menn-
ingarkynningunni Pourquoi Pas?
Viðburðurinn verður endurtekinn
kl. 15 á morgun.
Af handahófi
Vídeó- og kvikmyndahátíðin 700IS Hrein-
dýraland stendur nú yfir á Austurlandi.
Á hátíðinni eru sýnd tæplega níutíu verk
víðsvegar að úr heiminum en tvö verkanna
voru verðlaunuð á dögunum.
Valnefnd kaus verk bandarísku listakon-
unnar Angelu Ellsworth, „HOT AIR“ sem
verk hátíðarinnar.
Helena Stefánsdóttir hlaut verðlaun
fyrir besta íslenska verkið en mynd hennar
„Anna“ þykir afar vel heppnuð.
Hátíðinni lýkur um helgina.
Bestu myndirnar
Einn vinsælasti heimspekingur
samtímans, Slavoy Zizek, er kom-
inn hingað til lands í stutta heim-
sókn og heldur tvo fyrirlestra í dag:
þann fyrri í Háskólanum á Bifröst
kl. 11 og hinn seinni í Öskju, nátt-
úrufræðahúsi Háskóla Íslands kl.
16.30 í dag. Í gær var heimildar-
mynd Sophie Fiennes um álit og
ályktanir Zizeks um kvikmynda-
listina sýnd í Norræna húsinu og
verður Fiennes með masterclass
þar sem hún byggir á kvikmynd-
inni í Öskju á morgun.
Í heimi hugvísinda og heimspeki
er gesturinn stórt nafn og vafið
miklum ljóma. Það glampar mikið
á þennan háskólakennara frá Ljub-
ljana í Slóveníu. Hann hefur um
langt skeið verið áhrifamikill í
umræðu um ólíklegustu efni enda
kvikur andi og óvenju frjór í víð-
feðmum áhuga sínum og sláandi
málflutningi og niðurstöðum. Hann
í miklu áliti víða um lönd og á sér
taumlitla aðdáendur.
Hann fæddist í Ljubljana 1949
og heldur þar heimili þó hann ferð-
ist mikið og víða en hann er auð-
fúsugestur víða í háskólum og
menntastofnunum. Han lærði
heimspeki Í heimalandi sínu og
lauk þaðan doktorsprófi sem leiddi
hann til frekara náms í París. Zizek
er kenndur við skóla franska sál-
könnuðarins Lacan, en varasamt er
að kenna hann við einhvern skóla,
svo frjór er hans akur og sprettan
bæði mikil og fjölbreytt á bragð-
ið. Hann hefur gefið út yfir fimm-
tíu rit um ýmis efni og hefur verið
þýddur mikið.
Zizek er gjarna dreginn í dilk
með menningarfræðingum, fyrst
og fremst sökum þess að gagn-
rýni hans og deilurit sækja í brunn
menningar Vesturálfu og kennir
þar margra grasa í gríðarlegri
þekkingu hans og beinskeyttum
skoðunum á ólíklegustu hlutum
sem hann nýtir í samtal sitt við les-
andann. Hann er sagður afar lif-
andi og ögrandi fyrirlesari.
Zizek hefur víða farið: hann var
gistiprófessor í París á nýjunda
áratugnum og kenndi við banda-
ríska skóla á þeim tíunda. Hann
hefur haldið yfir 350 þing af ýmsu
tagi á síðustu tveimur áratugum.
Heimspekingur í heimsókn
Í gær var gengið frá nokkr-
um samstarfssamningum
Listahátíðar í Reykjavík við
einkaaðila sem koma að ein-
stökum viðburðum á Lista-
hátíð sem stendur yfir frá
10. til 26. maí í vor. Actavis
og Icelandair gengu frá
styrktarsamningum sínum,
sem eru hvor með sínum
hætti.
Þórunn Sigurðardóttir, listrænn
stjórnandi hátíðarinnar, gekk frá
samstarfssamningi við Vorblót, fyr-
irtæki Þorsteins Stephensen og Hr.
Örlygs um samstarf vegna tónleika
Gorans Bregovic og stórhljómsveit-
ar hans í Laugardalshöll 19. maí.
Vorblót er nú haldið í annað sinn
og verður margt viðburða á þeirri
hátíð sem helguð er heimstónlist. Þá
var gengið frá samstarfssamningi
við Actavis en fyrirtækið stendur
sem kunnugt er fyrir viðamiklum
rekstri í lyfjaiðnaði í Balkanlönd-
unum, Serbíu, Rúmeníu og Búlg-
aríu og hefur alls um 11 þúsund
starfsmenn á sínum snærum. Acta-
vis kemur sérstaklega að heimsókn
Bregovic hingað og sagði Guðbjörg
Edda Eggertsdóttir, framkvæmda-
stjóri á sölu og markaðssviði fyr-
irtækisins, að það hafi verið þeirra
mönnum þar eystra sérstakt keppi-
kefli að koma að heimsókn Bregov-
ic hingað norður. Væri þetta í fyrsta
sinn sem Actavis kæmi að stuðningi
við atburð á Listahátíð.
Þá var gengið frá samningi um
stuðning Icelandair við Listahátíð
en fyrirtækið á sér lengsta sögu
allra einkafyrirtækja sem stutt
hafa Listahátíð í sögunni. Þau Þór-
unn og Jón Karl Ólafsson forstjóri
gátu ekki fyrir sitt litla líf rifjað
upp hversu lengi þetta samstarf
hefur staðið en leiða má líkur að
því að það hafi staðið allar götur frá
því Ragnar í Smára setti Listahá-
tíð í Reykjavík af stað 1968, tveim-
ur árum áður en ríki og borg komu
að henni.
Þórunn sagði á blaðamannafundi á
fimmtudag að hlutur styrkja einka-
aðila yrði alltaf stærri hluti af fjár-
hagsáætlunum Listahátíðar. Reikn-
að væri með að aflafé hennar kæmi
að jöfnu úr fjórum áttum: ríki og
borg legðu til hvorn sinn fjórðung-
inn, sá þriðji kæmi frá miðasölu, en
nú væri svo komið að síðasti fjórð-
ungurinn frá kostunaraðilum væri
orðinn stærstur framlaga við Lista-
hátíð og hefði aldrei verið hærri.
Sagðist Þórunn vona að það ástand
væri ekki bundið við þá veltutíma
sem nú færu um íslenskt samfélag.
Einkafyrirtæki héldu sínum hlut til
framtíðar. Hún sagði allar vinnu-
reglur Listahátíðar um kostun mót-
ast af reglum sambands alþjóðlegra
listahátíða sem Listahátíð í Reykja-
vík væri aðili að.
Aðrir kostunaraðilar sem koma
að Listahátíð eru Kaupþing, Rad-
isson og Samskip sem eru auk Ice-
landair aðalkostunaraðilar. Stuðn-
ing við einstaka viðburði leggja
þeir til Landsbankinn (San Francis-
co ballettinn), Actavis (Goran Breg-
ovic), Straumur-Burðarás (Kon-
ono), Glitnir (Dmitry Hvorostovsky
og Bryn Terfel). Aðrir samstarfsað-
ilar eru Þjóðleikhúsið, Flugfélag Ís-
lands, RÚV: rás 1, rás 2 og sjónvarp,
Síminn, Byggðastofnun og franska
ríkið. Utan þess koma einstök fyr-
irtæki að ýmsum atburðum en þá
fyrir tilstuðlan sýninga- og sam-
komuhaldara.
Jacobsen Dagar
New Style Restaurant / Pósthússtræti 11 / 578 2008 / www.silfur.is
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
0
5
9
1
Marineruð og bjórsoðin klaustursbleikja
„Saaz Blonde“ með spínati, aspas, beikoni
og eggjasósu.
Íslenskur humar „Saaz Blonde“.
Lambafillet og hægeldaður lambaskanki
„Brown Ale“ með dilli, kartöflufroðu, blómkáli,
ólífum og bjórgljáðum heslihnetum.
Crème caramel „páskabjór“ með lime
og engifer ásamt pistasíuhjúpuðum
banana og karamellu-balsamico ís.
Fjögurra rétta seðill með bjór: 8.900,-
á sérréttaseðli Silfurs