Fréttablaðið - 30.03.2007, Qupperneq 94
30 milljónir á fjórum mínútum
Breski tónlistarmaðurinn
Sir Cliff Richard hélt vel
heppnaða tónleika í Laugar-
dalshöll í fyrrakvöld. Söng
hann flest sín þekktustu lög
við frábærar undirtektir
viðstaddra.
Richard söng í rúmar tvær klukku-
stundir og tók sér jafnframt góðan
tíma á milli laga til að spjalla við
áheyrendur. Áður en hann söng
Eurovision-lag sitt Congratulat-
ions spurði hann hvort Íslending-
ar hefðu getað kosið þegar hann
tók þátt 1968, því einungis mun-
aði einu stigi að hann hefði unnið
keppnina.
Á fimmta þúsund manns voru í
Höllinni og skemmtu sér konung-
lega. Einhverjir áttu þó í erfiðleik-
um með hitann og loftleysið sem
skapaðist í salnum og þurftu þeir að-
hlynningu hjúkrunarliða frá björg-
unarsveitunum, sem eru ávallt til
taks á tónleikum sem þessum.
Richard hélt af landi brott í gær
og að sögn tónleikahaldarans Guð-
bjarts Finnbjörnssonar var hann
rosalega ánægður með tónleik-
ana. Var hann einnig ánægður með
veðrið og lýsti yfir áhuga á að koma
hingað aftur. „Hann langaði mjög
mikið til að sjá norðurljósin en það
var því miður skýjað,“ sagði Guð-
bjartur, sem snæddi með honum
kvöldverð eftir tónleikana.
Í kvöld ræðst hvaða tveir kepp-
endur koma til með að keppa
um X-Factor titilinn í næstu
viku. Þrjú atriði standa eftir og
í kvöld verður einn dómari að
bíta í það súra epli að þurfa að
vera þátttakandalaus í úrslita-
þættinum. Þau Jógvan, Hara
og Guðbjörg syngja öll tvö
lög en það verður síðan þjóð-
arinnar að velja þá tvo áfram
en senda einn heim. Undir-
búningur fyrir sjálfan úrslita-
þáttinn er í fullum gangi og á
þriðjudaginn verður tilkynnt
hverjir semja lagið sem þátt-
takendurnir tveir koma til með
að flytja, hvor með sínu nefi.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins eru það upptökustjór-
inn Óskar Páll Sveinsson og
Stefán Hilmarsson sem semja
lagið og verður það frumflutt
á þriðjudaginn þegar úrslita-
kvöldið verður kynnt fyrir
fjölmiðlum.
Til stóð að fá sjálfan Simon
Cowell til að krýna fyrsta sig-
urvegarann. Heimildir Frétta-
blaðsins herma að þessi orð-
heppni og kjaftfori dómari
hafi verið mjög spenntur fyrir
að kíkja á næturlíf Reykjavík-
urborgar en sú áætlun ku ekki
hafa gengið upp sökum þétt-
skipaðrar dagskrár hjá sjón-
varpsstjörnunni. Og fellur
það því í hlutskipti Höllu Vil-
hjálmsdóttur að tilkynna hver
hreppir hnossið eftir viku.
Jógvan, Hara og Guðbjörg berjast
„Ég er ekkert að djóka og þetta
eru engar ýkjur; miðarnir á Josh
Groban fóru á fjórum mínútum,“
segir Ísleifur B. Þórhallsson, fram-
kvæmdastjóri Concert. Hann upp-
lýsir jafnframt að aukatónleikum
hafi verið bætt við 15. maí en úti-
lokar að þeim þriðju verði skotið
einhvers staðar inn.
Það sé ómögulegt
sökum dagskrár-
innar hjá Groban.
„Við byrjum miða-
sölu á aðra tónleikana strax á mið-
vikudaginn og ef að líkum lætur
þá verður sami handagangurinn í
öskjunni þá,“ segir Ísleifur.
Og miðarnir eru ekki seldir á
neinum spottprís. Þrettán hund-
ruð miðar seldir á tæpar þrettán
þúsund krónur og tólf hundruð á
tæplega tíu þúsund. Tölurnar sem
koma út úr því reikningsdæmi eru
ansi skemmtilegar; á fjórum mín-
útum eða svo keyptu Íslendingar
miða á tónleika Josh Groban fyrir
þrjátíu milljónir.
Þótt Groban njóti mikillar kven-
hylli segist Ísleifur vera sann-
færður um að kynjahlutfallið verði
jafnt. „Ég held að karlarnir muni
ekki sleppa konunum sínum svona
nálægt sjarmörnum og svo held ég
að þeir hafi lúmskt gaman af Gro-
ban, er ekki annars í tísku að vera
mjúki maðurinn? Sjáðu bara Einar
Bárðarson, hann grét í beinni út-
sendingu.“
Írski tónlistarmaðurinn Bono
var sæmdur heiðursriddara-
krossi bresku drottningarinnar
í gær. Bono, sem er söngvari
U2, lýsti því yfir eftir athöfnina
að hann tæki við riddarakross-
inum með einu skilyrði, að hann
yrði ekki kallaður „Sir Bono“.
Bono var sæmdur riddara-
krossinum fyrir störf sín að
mannúðarmálum undanfarna
tvo áratugi. Félagar hans úr
U2, þeir Adam Clayton og The
Edge, mættu með til athafnar-
innar ásamt eiginkonu söngv-
arans og fjórum börnum. Tony
Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, sagði við þetta tilefni
að Bono hefði lagt einstaklega
mikið af mörkum í baráttunni
gegn fátækt í heiminum. „Ég
læt mér vitrari menn um að
tala um tónlist U2. Ég segi það
eitt að ég er mikill aðdáandi
eins og milljónir manna um
allan heim,“ sagði Blair.
Bono verður riddari