Fréttablaðið - 30.03.2007, Side 96
Brettafélag Íslands stendur fyrir
svokölluðu brettasessjóni í Hlíð-
arfjalli á laugardaginn. „Þeir eru
búnir að kaupa tíu „rail“ sem við
ætlum að vígja,“ útskýrði Linda
Björk Sumarliðadóttir hjá Bretta-
félaginu. Þar að auki verða pallar
og pípa í hlíðinni, ef snjórinn dugar
til. „Þetta verður ekki formlegt
mót, og öllum er velkomið að taka
þátt. En við munum samt veita
verðlaun fyrir besta trikkið í pípu,
á palli og á reili,“ sagði Linda.
Félagar í Brettafélaginu, eins og
aðrir skíðamenn, elta snjóinn norð-
ur yfir heiðar, og segir Linda lítið
hafa verið hægt að gera í vetur
vegna snjóleysis. Með nýjum tækj-
um í Hlíðarfjalli virðist hagur
brettafólks þó vænkast. „Aðstað-
an ætti að verða mjög fín. Þeir
hafa verið með pípu í vetur, og við
setjum væntanlega upp tvo palla,“
sagði Linda, sem segir Hlíðar-
fjall þar með státa af einu alvöru
brettaaðstöðunni á landinu. „Það
hefur verið aðstaða í Bláfjöllum,
en það hefur bara verið svo lítill
snjór og svo stopult hvenær það er
opið, að það hefur bara ekki verið
hægt að gera neitt. Síðast þegar
það var svona góð aðstaða í fjalli
var í Skálafelli í kringum 2000. Það
er langt síðan,“ sagði hún.
Eftir brettaskemmtunina þeyta
plötusnúðarnir Benni B-Ruff, DJ
Moonshine og DJ Sverrir skífum á
Dátanum á Akureyri fyrir þá sem
hafa aldur til.
Brettafólk flykkist norður
Rafskinna er heitið á nýju
íslensku DVD-tímariti
sem mun fjalla um tónlist,
myndlist, bókmenntir og
hönnun á algerlega nýjan
hátt. Tvær klukkustundir
af myndböndum, vídeó-
verkum, viðtölum og fleiru
verða á disknum en jafn-
framt fylgir honum hefð-
bundið, prentað tímarit með
ýmsu efni.
„Þetta verður mikið til tónlist-
ar-oríenterað en samt er planið
að ná yfir allt lista- og menning-
ar-spektrúmið, það verða vídeó-
verk, heimildarmyndir, dansverk,
myndasögur, bara spennandi og
flottir hlutir. Við ætlum að reyna
að gefa góða mynd af listasenunni
á Íslandi og blanda saman því sem
er að gerast núna við gamalt fá-
gætt efni,“ segir Sigurður Magn-
ús Finnsson, bókmenntafræðing-
ur og hristuleikari hljómsveit-
arinnar Singapore Sling, sem er
einn af aðstandendum þessa nýja
tímarits.
„Það hefur hlotið nafnið Raf-
skinna og er DVD-diskur og tíma-
rit saman í pakka en aðaláhersl-
an er á diskinn. Það verða um það
bil tvær klukkustundir af ýmsu
snilldarefni á honum. Svo verð-
ur líka prentefni, bæði sem styð-
ur efnið á disknum og sjálfstætt
efni. Til dæmis verður viðtal við
Jimi Tenor í blaðinu og stuttmynd
eftir hann á DVD-disknum en svo
verður líka efni eins og fram-
haldssaga eftir Örvar [Þóreyj-
arson Smárason úr múm] í blað-
inu og matreiðsluþáttur með Gho-
stigital á DVD disknum.“
Umfjöllunarefni Rafskinnu
verður samtímalist; tónlist,
myndlist, bókmenntir og hönnun,
með áherslu á grasrótina.
Þetta form er ótrúlega áhuga-
vert því það opnar nýjar víddir
í tímaritaheiminum. Í stað þess
að lesa bara umsögn um tónlist-
ina þá geturðu hlustað á hana og
horft á tónlistarmennina flytja
lögin. Það er líka óneitanlega allt
öðruvísi upplifun að fara á safn
og horfa á vídeóverk eða horfa á
það heima í stofu.
Sigurður bendir á að tímaritið
sé hið fyrsta sinnar tegundar á Ís-
landi og jafnframt eitt hið fyrsta
sinnar tegundar í heiminum.
„Furðulítið er til af svona efni úti
í heimi, það sem mætti kannski
helst bera Rafskinnu saman við
er tímaritið Specialten.“ Special-
ten er breskt DVD-rit sem byrj-
aði með tiltölulega litla dreifingu
en er nú selt vítt og breitt um
heiminn, í plötuverslunum, lista-
galleríum og bókabúðum.
Meðal efnis Rafskinnu verð-
ur hreyfimynd eftir myndasögu-
höfundinn og leikskáldið Hugleik
Dagson. Ný tónlistarmyndbönd
með GusGus, múm, Rass og fleir-
um og gömul Sykurmola-mynd-
bönd. Einnig verða viðtöl við Coco
Rosie og Jimi Tenor ásamt stutt-
mynd eftir hann eins og fram
kom hér að ofan, tónlistarverk
eftir Ólöfu Arnalds og ótalmargt
fleira.
Óhætt er að segja að þetta er
eitthvað sem enginn með áhuga
á tónlist eða annars konar listum
ætti að láta fram hjá sér fara.
Auk Sigurðar standa að út-
gáfunni Pétur Már Gunnarsson
myndlistarmaður og Þórunn Haf-
stað og Ragnheiður Gestsdótt-
ir kvikmyndaleikstjórar. Öll hafa
þau verið áberandi á sínum svið-
um. Ragnheiður hefur meðal ann-
ars gert þrjár heimildarmyndir
um Björk.
Rafskinna mun koma út árs-
fjórðungslega og stefnt er að því
að fyrsta tölublaðið komi út í lok
apríl.
Nánari upplýsingar er hægt að
nálgast á this.is/rafskinna/, heima-
síðu Rafskinnu.
Nýjasta James Bond-myndin, Cas-
ino Royale, hlaut þrenn verðlaun á
Empire-verðlaunahátíðinni í Bret-
landi, þar á meðal sem besta mynd-
in. Aðalleikarinn Daniel Craig,
sem var í fyrsta sinn í hlutverki
njósnara hennar hátignar, var val-
inn besti leikarinn og mótleikkona
hans Eva Green, var kjörin besti
kvenkyns nýliðinn.
Það voru lesendur kvikmynda-
tímaritsins Empire sem tóku þátt
í valinu. Penelope Cruz var kjörin
besta leikkonan fyrir hlutverk sitt
í Volver. Bar hún meðal
annars sigurorð
af Helen Mir-
ren.
Besta
breska mynd-
in var valin
United 93 og
besta gam-
anmyndin
Little Miss
Sunshine.
James Bond
með þrennu