Fréttablaðið - 30.03.2007, Side 110
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Mér finnst einfaldlega fáir
plúsar fylgja því að vera búsett-
ur hér á landi.“
„Þetta er mikil lyftistöng fyrir sveitarfélagið
og íbúa Hofsóss enda ekki á hverjum degi sem
okkur er gefin sundlaug,“ segir Guðmundur
Guðlaugsson, sveitarstjóri Skagafjarðar. Frá
því var nýverið greint í héraðsblaðinu Feyki að
athafnakonurnar Steinunn Jónsdóttir og Lilja
Pálmadóttir hefðu skrifað undir viljayfirlýs-
ingu að færa íbúum Hofsóss sundlaug. Ekki náð-
ist í Lilju vegna málsins en Steinunn Jónsdóttir
vildi ekkert tjá sig um málið og vísaði alfarið á
sveitarstjórann. Lilja og Steinunn eiga báðar jarð-
ir fyrir norðan þar sem þær dveljast löng-
um stundum og hafa lagt sitt af mörk-
um til að efla bæjarlífið. Lilja er sem
kunnugt er dóttir Pálma heitins í Hag-
kaup og kona Baltasars Kormáks kvikmyndaleik-
stjóra. Steinunn er dóttir Jóns Helga Guðmundsson-
ar í Byko og fyrrum eiginkona Hannesar Smárason-
ar. Báðar eru Lilja og Steinunn í hópi ríkustu kvenna
landsins og haupa eignir þeirra á milljörðum.
Samkvæmt vefmiðlum nyrðra er áætlað að sund-
laugin verði opnuð 2008 og mun sveitarfélagið ann-
ast rekstur hennar eftir að byggingunni er lokið. Að
sögn Guðmundar ríkir mikil gleði meðal bæjarbúa en
sundlaugin verður með öllu; 25 metra á lengd með
bæði heitum potti og þjónustuaðstöðu. „Við erum af-
skaplega þakklátt og hrærð yfir þessari gjöf og það
er augljóst að þær bera mikinn hlýhug til nágranna
sinna á svæðinu og staðarins,“ bætir Guðmundur
við.
Að sögn sveitarstjórans liggur fyrir gróf kostn-
aðaráætlun og er þegar byrjað að frumhanna sund-
laugina. „En við treystum okkur ekki til að gefa upp
kostnaðinn að svo stöddu en slík formsatriði ættu að
liggja fyrir á næstunni,“ útskýrir Guðmundur.
Veiðileyfin í Langá á Mýrum hafa
hækkað um hundrað prósent á um-
liðnum fimm árum, þar af verulega
nú milli ára. Þetta staðfestir stað-
arhaldarinn Ingvi Hrafn Jónsson.
„Menn eru að borga 2 til 3 þús-
und dollara fyrir daginn. [Allt að
200 þúsund krónum íslenskum.]
Ég hef af þessu miklar áhyggj-
ur en nú er kominn sá tími að stór
hópur Íslendinga á enga mögu-
leika á að komast í toppveiði. Enga.
Nema menn séu í boði stórfyrir-
tækja,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson
staðarhaldari við Langá á Mýrum.
Hann talar frá Florida, Key West,
þar sem hann dvelst þessa dagana
í hægum andvara af hafi og í 30
stiga hita. „Mjög þægilegt.”
Fyrrverandi ritstjóri Viðskipta-
blaðsins, Óli Björn Kárason, upp-
lýsir á nýrri bloggsíðu sinni (bus-
inessreport.blog.is) að góður vinur
sinn, sem veitt hefur í mörg ár í
Langá, sé hættur. „Ástæðan sé sú
að Ingvi Hrafn tilkynnti honum að
verðið myndi hækka um nær 80
prósent milli ára.”
Ingvi Hrafn segir hér einfald-
lega markaðinn að verki. Íslend-
ingum hafi auðnast að halda svo
vel á málum að laxveiði á Íslandi sé
ekki bara lúxus hér heldur lúxus á
heimsmælikvarða. Eigi sér hvergi
hliðstæðu án þess að lítið sé gert
úr laxveiðum á Kólaskaga í Rúss-
landi þar sem menn upplifa frum-
stæð skilyrði.
„En hér, þegar komin er júlí-
byrjun, standa á Reykjavíkurflug-
velli tíu einkaþotur. Allar á vegum
laxveiðimanna en hingað sækja
ástríðufullir fluguveiðimenn í stór-
um hópum,“ segir Ingvi Hrafn.
Ingvi Hrafn upplýsir að hann sé
nú að borga 50 milljónir fyrir leigu-
rétt að ánni. Fyrir fimm árum hafi
sú tala verið 20 milljónir. Þrettán
aðilar standa að veiðifélagi Langár
en þar hefur Ingvi Hrafn verið í 30
ár. Var lengst af með fjórar stangir
en er nú með tólf eða alla ána. Ell-
efu hundruð veiðidagar eru í ánni á
ári. Leiga Langár hefur hækkað um
hundrað prósent á fimm árum.
Ingvi Hrafn segir hér um enga
smáræðis búbót að ræða fyrir
bændur sem geta verið að fá, þeir
sem eigi til dæmis 10 prósenta
eignaraðild að ánni, brúttó um
fimm milljónir á ári. Stoð í raun
fyrir landbúnað.
„Nú veit ég ekki hvaða góði
vinur Óla þetta kann að vera. Hins
vegar er það staðreynd að þegar
nýr samningur tók gildi á þessu ári
þá varð ég að afleggja fastakúnna-
vildarafslætti. Þá duttu út tvö holl
hjá mér. Því miður fyrir veiði-
menn, til allrar hamingju fyrir
bændur, er verðið orðið venjuleg-
um mönnum algerlega ofviða. Það
er ekkert öðruvísi.“
„Kaup DV á Krónikunni eru liður í
þeirri sókn sem fram undan er hjá
blaðinu,” segir Hjálmar Blöndal
framkvæmdastjóri DV.
Í gær yfirtók útgáfufélag DV
vikublaðið Krónikuna eftir aðeins
rétt rúmlega mánaðarútgáfusögu
tímaritsins. Aðaleigendur tímarits-
ins, Sigríður Dögg Auð-
unsdóttir og Valdi-
mar Birgisson
framkvæmdastjóri
hefja bæði störf
á DV og mun Sig-
ríður Dögg stýra
helgarútgáfu DV.
Krónikan er keypt til að leggja
hana niður og er kaupverð trúnað-
armál en talið er það sé jafn hátt
og nemur skuld þeirra hjóna við
Björgólf Guðmundsson athafna-
mann sem lánaði þeim fé til rekst-
ursins sem mun vera um 20 millj-
ónir. Öllum blaðamönnum Krónik-
unnar, níu talsins, verður boðið að
starfa áfram á sömu kjörum en þá
undir merkjum DV og rit-
stjórn Sigurjóns M. Eg-
ilssonar.
Örnu Schram, sem
starfaði sem aðstoðar-
ritstjóri á Krónikunni,
hefur verið boðin staða
aðstoðarritstjóra á DV
en ekki er vitað hvort
hún mun þiggja hana.
Var tíðindunum frem-
ur illa tekið á
starfsmanna-
fundi þegar
ritstjórinn Sigríður Dögg tilkynnti
um yfirtökuna. Ekki er vitað á
þessu stigi hverjir blaðamanna
fara yfir og hverjir hætta eða leita
á önnur mið.
Hjálmar segir að á næstu vikum
verði DV að áskriftarblaði alla
fimm útgáfudaga blaðsins. „Við
teljum að það sé eftirspurn eftir
vönduðu og góðu lesefni í áskrift-
arformi. Og DV ætlar sér að
sækja inn á þann markað.
Við finnum fyrir miklum
meðbyr með útgáfunni og
vonumst til þess að blað-
ið nái að dafna enn frekar
með nýju starfsfólki.“
DV gleypir Krónikuna
Hofsóssbúar hrærðir yfir gjöf auðkvenna
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Gnoðavogi 44, s. 588 8686.
Opið alla laugardaga 11-14
STÓR HUMAR