Fréttablaðið - 30.03.2007, Side 112
Ef maður setur upp gleraugun sem skipta hlutum í svart og
hvítt, gott og vont, guð og andskot-
ann stendur guð fyrir það sem er
gott. Þið vitið, að hjálpa bágstödd-
um, segja alltaf satt, vera góður
við börn og allt það. Andskotinn
er vondur. Þeir sem fylgja and-
skotanum drekka, dópa, hórast,
nauðga og myrða. Andskotinn er
samviskulaus og þeir sem kunna
að setja upp svart/hvítu gleraug-
un hafa flestir vit á því að vera
ekkert að abbast upp á hann.
menn eru hins vegar
meira fyrir að ræða hlutina í
frumeindir sínar og í kjaftavaðl-
inum verður stundum til eitthvað
sem ég kýs að kalla „normalíser-
ing andskotans“. Andskotinn verð-
ur venjulegri og venjulegri eftir
því sem kjaftavaðallinn eykst.
er nú orðið löglegt á Ís-
landi. Ástæðuna segir löggjafinn
þá að annars mundi vændi færast
í undirheima. Eins og vændi hafi
einhvern tímann verið uppi á yfir-
borðinu. Eða er það von manna að
það færist upp á yfirborðið núna?
auðvitað ætti hver maður að
geta keypt sér hóru kinnroðalaust
og fyrir opnum tjöldum. Að njóta
ásta með gleðikonu fyrir framan
þá sem horfa vilja eru auðvitað
sjálfsögð mannréttindi fullorðins
manns. Annað er forræðishyggja.
í anda
þess að banna fullþroska fólki að
kaupa sér rauðvín í Bónus. Og að
maður þurfi að vera orðinn tví-
tugur til að kaupa sér áfengi. 18
ára táningur má gifta sig en ekki
skála í kampavíni í brúðkaupinu
sínu. Hvaða mannréttindi eru það
að mega ekki drekka sig ofurölvi í
eigin brúðkaupi?
hverju er líka yfirhöfuð verið
að banna eitthvað? Er til dæmis
rétt að banna mönnum að drepa
aðra menn? Eiga menn ekki bara
að fá að velja og hafna í þeim
efnum? Er ekki sjálfsagt mál að
fullorðinn karlmaður geti, eftir
erfiðan vinnudag, myrt svona eins
og einn leiðindapúka sem verður
á vegi hans, ef honum sýnist svo?
Er betra að manndráp séu geymd
í undirheimum?
endalausu umræðustjórn-
mál hafa nú sýnt okkur fram á að
allt er hægt að kjafta upp þar til
það fer að hljóma vel. Staðreynd-
in er sú að með hinni nýju laga-
töku hefur íslenska ríkisstjórn-
in lagt blessun sína yfir kaup á
fólki. Nú mega allir kaupa sér
þræla. Kynlífsþræll er til leigu
fyrir ákveðna upphæð í umsam-
inn tíma. Þetta er löglegt. Þökk sé
gáfuðum mönnum.
„Normalísering
andskotans“
* Tilboðið gildir fyrir alla sem eru fæddir 1993 og gildir allt að fimm sinnum fyrir hvern einstakling.
Í FRAMTÍÐINNI VERÐUR HÆGT
AÐ GERA MIKLU MEIRA VIÐ PENINGINN
Framtíðarreikningur er fermingargjöf sem verður verðmætari
með hverju ári. Reikningurinn ber alltaf bestu vexti spari-
reikninga bankans og þar að auki bætum við 2.000 kr. við
hverja gjöf upp á 5.000 kr. eða meira.* Framtíðarreikningurinn
fæst í næsta útibúi Glitnis og á glitnir.is
GEFÐU DRAUMAUPPTÖKUTÆKI
Í FERMINGARGJÖF