Fréttablaðið - 05.04.2007, Qupperneq 24
G
ísli Gíslason hefur
verið viðriðinn
Hvalfjarðargöngin
í um átján ár, allt
frá því að hann, þá
bæjarstjóri á Akra-
nesi, var skipaður í nefnd á vegum
samgönguráðuneytisins um mögu-
leika þess að grafa göng undir
Hvalfjörð. Síðan framkvæmdir
loks hófust árið 1996 hefur hann
verið stjórnarformaður Spalar hf.
Nú stendur vilji ykkar til þess að
tvöfalda göngin. Hver er staðan á
því?
„Spölur gerði samkomulag við
Vegagerðina núna nýlega sem
lýtur að því að það er verið að fjár-
magna skipulagsmálin, umhverfis-
málin og kaup á nauðsynlegu landi
undir tvöföldun Vesturlandsveg-
ar á Kjalarnesi og tvöföldun á
göngunum. Í rauninni þarf þetta
að fara saman að okkar viti. Það
dugir ekki að tvöfalda bara annað
hvort miðað við þá umferð sem er
orðin.
Við erum að vona að þetta verk-
efni verði undirbúið núna á næstu
tveimur árum og verði þá tilbúið
til framkvæmda. Það myndi þýða
að hægt væri að opna ný göng
tveimur árum síðar.“
Hvernig yrði slík framkvæmd
kostuð?
„Það eru ýmsir möguleikar
sem koma til greina en við skilj-
um það eftir svolítið opið hvern-
ig þetta verður gert. Spölur gæti
hugsanlega tekið þetta að sér en
hins vegar getur Vegagerðin gert
þetta líka, jafnvel með einhverju
tilleggi frá Speli ef gjalddtöku í
göngunum verður haldið áfram til
2018.
Auðvitað eru ýmsir sem telja
eðlilegast að gjaldið í göngin verði
fellt niður og ríkið borgi bara
allan pakkann, sem færi aldrei
undir tíu milljarða. Önnur leið
væri hins vegar að halda gjaldtök-
unni til 2018 með svipuðu gjaldi og
verið hefur, að minnsta kosti ekki
hærra, og það gæti myndað sjóð
til að dekka hluta framkvæmd-
anna. En þetta ræðst sjálfsagt allt
í maí þegar í ljós kemur hvernig
stjórn landsins verður skipuð.“
Er tvöföldunin nauðsynleg?
„Það er ljóst að þessi fram-
kvæmd er algjör lykilfram-
kvæmd, bæði fyrir höfuðborgina
og landsbyggðina. Umferðarþung-
inn um göngin er orðinn margfalt
meiri en gert var ráð fyrir í upp-
hafi og aukningin er stöðug. Við
sjáum ekkert lát á henni þannig
að þetta er verkefni sem blasir
við að þurfi að leysa bæði vegna
umferðaröryggis og til þess að
umferðin verði greið.
Það verða miklar tafir yfir
sumartímann, sérstaklega að
norðanverðu á sunnudögum þegar
stórir hópar fólks eru á leiðinni
í bæinn. Við erum samt ekki að
halda því fram að tvöföldun sé
nauðsynleg vegna umferðarþung-
ans sem er í dag. Við sjáum hins
vegar fyrir að við verðum komin í
vanda vegna umferðarþunga árið
2009, og þann vanda er skynsam-
legast að leysa með tvöföldun.“
Mun hámarkshraði í göngunum
aukast?
„Nei, en umferðin yrði auð-
vitað mun greiðari miðað við á
álagstímum nú. Það er gullvæg
regla að halda umferðarhraða í
skynsamlegum tölum í göngun-
um og 70 kílómetra hámarkshraði
hefur gefist ágætlega. Það myndi
skerða öryggi að hækka hann,
sem er andstætt tilgangi tvöföld-
unarinnar.“
Nú hafa Faxaflóahafnir, aðal-
eigandi Spalar, lýst áhuga á að
fjármagna lagningu Sundabraut-
ar. Er litið á þessi tvö verkefni sem
nátengd?
„Við erum að reyna að tengja
saman leiðina frá athafnasvæð-
unum í Sundahöfn og að Grund-
artanga, og til að það takist verð-
ur að vera skotheld leið á milli
svæðanna. Ég vona að Sunda-
brautin sé orðin það brýnt verk-
efni að hún muni fylgja á svipuð-
um tíma. Við sáum þetta í raun-
inni sem tvo pakka, að Spölur gæti
komið að tvöföldun Hvalfjarðar-
ganga og vega í næsta nágrenni
og síðan væri hægt, eins og stjórn
Faxaflóahafna hefur boðið upp á,
að koma inn í Sundabrautarverk-
efnið alveg frá Kollafirði og að
Sæbraut.“
Hvernig þætti þér skynsamleg-
ast að leggja Sundabrautina?
„Þegar kemur að lagningu
Sundabrautar finnst mér umferðar-
öryggi skipta mestu máli. Það
sýnir sig þegar eitthvað gerist í
Ártúnsbrekkunni að þá er land-
ið frá höfuðborginni lokað til suð-
urs og vesturs. Það gengur auðvit-
að ekki upp og því er Sundabraut-
in löngu tímabær.
Fyrst ekki náðist sátt um innstu
leiðina svonefndu sýnist mér allt
hníga að því að gerð verði Sunda-
göng. Brú eða botnstokkur eru
að mínu mati illfærar lausnir.
Þótt göng séu dýrasti kostur-
inn verða menn að horfa til þess
að þetta er mannvirki sem mun
standa um áratuga ef ekki hundr-
aða skeið. Þá eiga menn ekki að
horfa í aura sem munu til lengri
tíma örugglega skila sér. Og ég tel
að það sé örugglega hægt að vinna
þetta verkefni í einkaframkvæmd
með skynsamlegum hætti.“
Umræða um einkaframkvæmdir í
vegamálum hefur farið hátt undan-
farið og nýlega kynnti Sjóvá tillög-
ur sínar um tvöföldun Suðurlands-
vegar. Hvað finnst þér um slíkar
hugmyndir?
„Allar slíkar hugmyndir eru
góðra gjalda verðar, en ríkið
verður auðvitað alltaf að hafa
það að leiðarljósi að framkvæmd-
irnar séu hagkvæmar og að þær
séu ekki bara einkaframkvæmd-
arinnar vegna. Það má segja að
eignarhald Spalar, sem er að
stærstum hluta í eigu sveitar-
félaga og nú Faxaflóahafna og
ríkisins, sé blanda af opinberri
eignaraðild og einkaeignaraðild.
Að mínu mati virkar það módel
mjög vel vegna þess að gjaldinu
sem tekið er af vegfarendum,
er skilað til baka í lægra gjaldi
þegar vel gengur.
Það er mjög mikilvægt að gæta
þess að veggjöld eða önnur gjöld
vegfarenda verði ekki úr tengsl-
um við kostnaðinn við fram-
kvæmdina og þar tel ég þurfa að
ríkja mjög strangt eftirlit. Einka-
framkvæmdir á vegum eiga ekki
að leiða til þess að menn taki sér
óhóflegan arð, heldur eiga þær
fyrst og fremst að vera í þágu
vegfarenda og fólk á að geta séð
ávinninginn meðal annars á flýt-
ingu framkvæmda. Ef þetta
grundvallaratriði er í lagi þá held
ég að menn þurfi ekki að hræðast
einkaframkvæmdir sem slíkar.
Svo þarf líka að hafa í huga að
oftast eru þetta það stórar fram-
kvæmdir að reglur um opinber
útboð verða að gilda til þess að
hægt sé að ná sem hagstæðustum
samningum.“
Eru einhver önnur brýn verkefni
sem þú sérð fyrir þér að gætu farið
í einkaframkvæmd?
„Ég held að Suðurlandsvegur,
Sundabraut og Hvalfjarðargöng-
in að hluta liggi beinast við. Það
mætti auðvitað líka nefna Reykja-
nesbrautina í svipuðu samhengi
en hún er að vísu komin lengra.
Ég sé hins vegar ekki fyrir mér
að einkaframkvæmdir dugi úti á
landi á fáförnum spottum. Ríkis-
sjóður verður alltaf að koma þar
inn. Það má hins vegar nefna að í
Færeyjum hafa menn farið dálít-
ið skemmtilegar leiðir. Þar hefur
ríkið sjálft stofnað hlutafélög sem
standa undir framkvæmdum, að-
allega gangagerð, en ríkið hefur
lagt inn kostnaðinn af ferjusigl-
ingum og innheimt mismuninn í
veggjald, því göngin eru nokkuð
dýrari kostur. Það hefur gengið
mjög vel.“
Eru samgöngur á Íslandi nægilega
góðar?
„Samgöngur á Íslandi hafa tekið
gríðarlegum breytingum til hins
betra mjög víða. Menn hafa lagt
mikla fjármuni í samgöngubætur,
en þó eru gríðarleg verkefni enn
eftir. Það er líka ljóst að í nágrenni
við höfuðborgina – þótt ýmislegt
hafi verið gert – hefur umferðar-
aukningin orðið það mikil að Vega-
gerðin hefur greinilega ekki haft
í við þá þróun. Við því verður að
bregðast. Það er auðvitað aldrei
neitt gagnrýnislaust við val á fram-
kvæmdum og hver lítur sínum
augum á silfrið eins og gengur –
menn horfa yfirleitt nálægt sér
þegar þeir meta forgangsröð. Að
mínu viti er hins vegar kominn
tími á að rýmka kransæðarnar til
og frá höfuðborginni. Það er öllum
ljóst að þær þurfa að geta flutt
meiri umferð.
Það er þó mjög ánægjulegt til
þess að vita að menn hafa verið
með ýmsar hugmyndir um skyn-
samlegar framkvæmdir í vega-
gerð. Ég get til dæmis nefnt hug-
myndir manna norður á Akureyri
um Vaðlaheiðargöng og hugmynd-
ir um jarðgangagerð fyrir austan.
Þótt það séu ekki göng sem bera
sig í peningum talið á stuttum
tíma þá styrkja þau búsetu á þess-
um svæðum og skipta því miklu
máli.“
Hvernig líst þér á hugmynd-
ir um miðhálendisveg, til dæmis
tillögu sem félagið Norðurvegur
hefur kynnt um nýjan Kjalveg?
„Þótt það geti verið hagkvæmt
þá er að mínu mati ýmislegt sem
mælir á móti því að ráðast í það
verkefni á næstunni. Ég held að það
sé einfaldlega ekki stór þörf fyrir
slíka framkvæmd. Það er miklu
brýnna að fylgja ströndinni, með
tilliti til veðurs og byggða, þannig
að þótt þetta geti verið spennandi
verkefni þá held ég að það sé í
öllu falli ekki tímabært. Verkefnin
blasa við miklu víðar en svo.“
Hvað með sjóinn? Ert þú fylgjandi
því að auka strandflutninga?
„Sem bæði hafnarstjóri og for-
maður Hafnarsambandsins er ég
fylgjandi því að menn nýti sjóinn
til flutninga, og að mínu mati þarf
að finna þá leið að allur þunga-
flutningur komist á sjóinn. Maður
skilur það auðvitað að með bættu
vegakerfi, auknum hraða og auk-
inni kröfu um að fá dagvöru með
skömmum fyrirvara þá munum
við aldrei snúa þeirri þróun við að
flutningar á vegunum aukist, en
við getum hins vegar gripið til ým-
issa aðgerða til þess að setja þunga-
vörur á sjóinn aftur. Það verður þó
ekki gert að óbreyttu kerfi, og þá
þarf að skoða hvernig hægt væri
að liðka fyrir þessum flutningum.
Í dag meta menn það svo að sjó-
flutningar séu óhagkvæmur kost-
ur og því snýst þetta um að koll-
varpa því viðhorfi. Það er auð-
vitað sanngirnismál að skoða það
hvernig gjaldtöku er háttað af
flutningum vegina. Margir telja
að það sé í rauninni verið að niður-
greiða kostnað við vegina þar sem
þungaflutningarnir slíti vegun-
um töluvert meira en sem nemur
þungaskattinum. Ef vilji manna
stendur til þess að snúa þessu við,
þá þarf að skoða það.“
Er þörf á breytingum?
„Ég held að efnahagur þjóðar-
innar kalli á það að menn leysi
brýnustu verkefnin í vegamálum,
og þar ætti það að vera komið í
algjöran forgang að losa um um-
ferðina til og frá höfuðborgar-
svæðinu. Ég hef grun um að þetta
verði áfram mjög spennandi vett-
vangur fyrir marga, því greiðar
samgöngur skipta svo miklu máli
fyrir tækifæri bæði höfuðborgar
og landsbyggðar til að þróast og
þroskast.“
Höfuðborgin í algjöran forgang
Gísli Gíslason, stjórnar-
formaður Spalar, fram-
kvæmda- og rekstrar-
aðila Hvalfjarðarganga,
og forstjóri Faxaflóa-
hafna, hefur afar mót-
aðar hugmyndir um
samgöngumál á láði
og legi. Stígur Helgason
ræddi við hann um
fyrirhugaða tvöföldun
Hvalfjarðarganga,
einkaframkvæmdir í
vegagerð og samgöngur
á Íslandi.
Þótt göng séu dýrasti kosturinn verða menn að horfa til
þess að þetta er mannvirki sem mun standa um áratuga
ef ekki hundraða skeið. Þá eiga menn ekki að horfa í aura
sem munu til lengri tíma örugglega skila sér.