Fréttablaðið - 05.04.2007, Qupperneq 8
Íbúakosningin í Hafnarfirði
um stækkun álversins í Straums-
vík hefur vakið athygli víða utan
landsteinanna.
Þannig birtir til að mynda kanad-
íska blaðið Globe and Mail grein
um málið undir fyrirsögninni „Not
in my backfjord, Icelanders tell
Alcan“ („Íslendingar tjá Alcan:
Ekki í mínum bakfirði“), sem er
orðaleikur út frá enska orðtakinu
„ekki í mínum bakgarði“.
Í greininni er rakið hvernig
50,3 prósent Hafnfirðinga höfn-
uðu því að „stjórnvöld flyttu
þjóðveg og breyttu deiliskipu-
lagi fyrir áformaða stækkun ál-
versins,“ og sagt að margir hefðu
lagst gegn stækkuninni af um-
hverfisástæðum.
Þá er fullyrt að Alcan hafi
„fengið vilyrði frá íslensku ríkis-
stjórninni um aðgang að ódýrri
raforku úr vatnsorkuverum til að
knýja nýju verksmiðjuna“. Að ís-
lensk stjórnvöld tíðki að „veita
erlendum álfyrirtækjum aðgang
að ódýrri orku“ er ítrekað síðar í
greininni, þar sem sagt er að mikl-
ar deilur hafi nú risið meðal Ís-
lendinga um þá stefnu.
Í fréttaskeyti AP-fréttastofunn-
ar, sem margir fjölmiðlar birtu,
ekki síst vestanhafs, segir að úr-
slit íbúakosninganna „hafi víðtæk-
ar afleiðingar bæði fyrir íslenskt
efnahagslíf og fyrir Alcan, annan
stærsta álframleiðanda heims,
sem hafi gefið til kynna að verk-
smiðjunni kynni að verða lokað“
ef stækkunin yrði ekki að veru-
leika.
Hvaða bandaríska leikkona
er væntanleg hingað til lands í
tökur á myndinni Agenda 1?
Hvaða fyrirtæki hefur kært
BYKO til Neytendastofu?
Hvaða háskóla í Bandaríkj-
unum heimsótti forseti Íslands
í vikunni?
„Þetta er algjör plága
og ég held að það hafi aldrei verið
svona mikið um veggjakrot hérna
í miðbænum,“ segir Elísabet Ás-
berg Árnadóttir skartgripahönn-
uður. Elísabet rekur verkstæði á
Hverfisgötunni og þarf, eins og
svo margir aðrir, að taka máln-
ingapensilinn fram reglulega til
þess að mála yfir veggjakrot.
„Það er heilmikill kostnaður fyrir
eigendur að halda þessu við en það
borgar sig að mála yfir krotið strax
því ef maður lætur það í friði eykst
það. Það er eins og krotararnir líti
svo á að ef ekki er málað yfir krot-
ið sé það samþykki fyrir því að
það megi krota á vegginn,“ segir
Elísabet. Hún er þess fullviss að
veggjakrotið hafi aukist á því eina
og hálfa ári sem hún hefur haft að-
stöðu á Hverfisgötunni.
Sigurður Guðmundsson, íbúi í
miðborginni, er sammála því að
mikilvægast sé að þrífa krotið sem
allra fyrst. „Það er oft úðað á úti-
dyrahurðina hjá okkur en ég þvæ
það alltaf strax í burtu svo nú eru
guttarnir hættir að nenna þessu,“
segir Sigurður, sem býr í fjölbýlis-
húsi sem er að hluta til illa farið
af veggjakroti. Húsið er múrað
að utan með sérstakri aðferð svo
ekki er hægt að mála yfir subbu-
skapinn.
„Ég er sannfærður um að þetta
væri skárra ef það væri harðar
tekið á þessum málum. Það mætti
til dæmis láta sökudólgana þrífa
krotið,“ segir Sigurður.
Hrólfur Jónsson, sviðstjóri
Framkvæmdasviðs Reykjavíkur-
borgar, er sammála því að veggja-
krot hafi aukist. „Við höfum gert
úttekt á þessu vandamáli og erum
að leita að betri lausnum,“ segir
Hrólfur. Hann bætir við að til
þess að stemma stigu við vandan-
um verði margir að leggjast á eitt.
„Erlendis hafa menn yfirleitt valið
milli tveggja lausna, annars vegar
að leyfa veggjakrot á afmörkuðum
stöðum eða þá að banna það alfar-
ið,“ segir Hrólfur, sem vill ekkert
gefa upp um hvaða leið verði farin í
Reykjavík að svo stöddu.
Veggjakrot aldrei jafn mikið
Íbúar í miðbænum eru orðnir langþreyttir á veggjakroti. Borgin leitar að framtíðarlausn til þess að útrýma
krotinu, sem flestir eru sammála um að hafi aukist undanfarin misseri. Borgin leitar að betri lausnum.
Diplómu- og meistaranám í heilbrigðisvísindum
Diplómu- og meistaranám í menntunarfræðum
Kennslufræði til kennsluréttinda
Meistaranám í auðlindafræði
Meistaranám í viðskiptafræði
HÁSKÓLINN Á AKUREYRI
Heilbrigðisvísindi
M
en
nt
un
ar
fr
æ
ði
K
en
ns
lu
fr
æ
ði
Viðskiptafræði
2007
2008
FRAMHALDSNÁM
VETURINN
SEINNI UMSÓKNARFRESTUR
ER TIL 15. APRÍL. www.unak.is
auðlindafræði
Eistneska þjóðþingið
samþykkti í gær fyrirhugað ríkis-
stjórnarsamstarf þriggja flokka
undir forystu
Andrus Ansip,
leiðtoga Um-
bótaflokksins
sem verið hefur
forsætisráð-
herra síðastlið-
in tvö ár.
Toomas Hendr-
ik Ilves, for-
seti Eistlands,
skipaði Ansip á þriðjudag for-
sætisráðherra á ný og fól honum
að mynda nýja stjórn eftir þing-
kosningar sem fram fóru í fyrri
mánuði. Ansip hugðist kynna ráð-
herralista nýrrar ríkisstjórnar
sinnar í dag, fimmtudag.
Á mánudag komu Umbótaflokk-
urinn, IRL-bandalagið og Jafnað-
armannaflokkurinn sér saman um
stjórnarsamstarf undir forystu
Ansips. Í stjórnarliðinu verða 60
af 101 fulltrúa á þingi.
Ansip fer fyrir
nýrri ríkisstjórn
Gríðarleg eftir-
spurn er eftir lóðum undir iðnað-
arhúsnæði í Hafnarfirði. Gunnar
Svavarsson, forseti bæjarstjórn-
ar, segir að bærinn sé að skipu-
leggja hundrað nýjar lóðir suður
af álverinu í Straumsvík. Lóðirn-
ar hafi ekki verið auglýstar en
samt liggi fyrir fimmtíu umsókn-
ir um þær. „Það má segja að það
hafi orðið sprenging í uppbygg-
ingu atvinnuhúsnæðis suður í
hrauni,“ segir hann og rifjar upp
að níutíu lóðum hafi verið úthlut-
að undanfarin misseri.
Gunnar bendir á að þau fyrir-
tæki sem þegar hafi sent inn um-
sóknir þurfi að endurnýja þær
þegar lóðirnar verði auglýstar.
Fimmtíu um-
sóknir um lóðir