Fréttablaðið - 05.04.2007, Blaðsíða 28
Brekkur Hlíðarfjalls á Akur-
eyri brosa við útivistarfólki og
frá veitingaskálanum á Skíða-
stöðum berst ilmur af kakói
og nýbökuðum pönnukökum.
Þar er Hlynur Már Jónsson í
eldhúsinu.
„Mest er borðað af hamborgurum
og öðrum skyndiréttum og þó að
reynt sé að brydda upp á hollustu-
fæði selst það ekki uppi í fjalli.
Fólk vill bara eitthvað hitaein-
ingaríkt og svellandi,“ segir Hlyn-
ur Már, umsjónarmaður veitinga-
sölunnar í Hlíðarfjalli, þegar hann
er inntur eftir eftirlætisréttum
gestanna. „Heitt kakó er rosalega
vinsælt ásamt vöfflum og pönnu-
kökum,“ segir hann brosandi og
kveðst gjarnan byrja tyllidaga á
að baka minnst hundrað stykki af
pönnsum sem hann beri svo fram
með sultu og rjóma. Varla þarf að
taka fram að þær renna út „eins
og heitar lummur“.
Skíðastaðir er gamalt timburhús
og í því er góður andi. Á veitinga-
staðnum eru sæti fyrir um hundr-
að manns. Þetta er fyrsti vetur
Hlyns Más á svæðinu en hann
hefur viðað sér reynslu af matar-
gerð og þjónustu bæði sem kokk-
ur á sjó og framreiðslumaður. „Ég
var á sjó í tvö ár og svo lærði ég
til þjóns og var síðast á Lækjar-
brekku,“ upplýsir hann.
Hlynur Már segir snjó hafa
verið nægan í Hlíðarfjalli í vetur
og vel líti út með páskana. Þar er
framleiddur snjór ef með þarf og
frostið er nægilegt en það þarf að
vera 2 gráður að lágmarki. „Við
reynum að hafa opið meðan veður
og færi leyfir,“ segir hann. „Það er
barist til síðasta blóðdropa!“
Framreiðir sígilt fjallafæðiSérfræðingar
í saltfiski
Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl.
Fyrir verslanir:
Til suðu:
saltfiskbitar blandaðir
gellur
gollaraþunnildi
Til steikingar:
saltfiskbitar blandaðir
saltfiskkurl
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
gellur
Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti:
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar
saltfiskkurl
Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem:
ýsuhnakka
rækjur
þorskhnakka
steinbítskinnar og bita
Sími: 466 1016
ektafiskur@emax.is