Fréttablaðið - 05.04.2007, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 05.04.2007, Blaðsíða 66
H æ Björk! Svaka æf- ingar hjá þér núna – hvaða fólk verður með þér á sviðinu? ,,Jónas Sen, tíu íslenskar brass- stelpur, Damian Taylor, Chris Corsano og Mark Bell.“ Hvað fáum við að heyra? ,,Lög af öllum plötunum mínum, mest af þeirri nýju samt.“ Ég er nú ágætur á bassa, þú hefur kannski samband ef bassaleikarinn þinn forfallast? ,,Úps, er með túbur og básúnur núna að hamast á bassalínunum, en kannski næst?“ Ókei. Þú ert væntanlega að koma þér í gír núna fyrir svaka törn næstu mánuðina. Ertu búin að vera í stífri líkamsrækt? ,,Ég reyni alltaf að gera eitthvað smá á hverjum degi en það verður að vera fjölbreytilegt. Stundum syndi ég, labba, hjóla, jóga, gyrotonic eða hleyp. Svo það er engin breyting á því fyrir túrinn. Ég hugsa bara að söngv- arar almennt verði mjög fljótt með- vitaðir um að líkaminn er hljóðfærið þeirra, maður einfaldlega kemst ekki upp með hluti sem aðrir hljóðfæra- leikarar gera.“ Var ekki freistandi að sleppa öllu umstanginu, gefa út plötuna og slappa svo bara af í Vesturbænum? ,,Mér fannst ég búin að vera að slappa svo vel af, það var svona meira að ég væri að drepast úr leið- indum. Mjög langt síðan ég fór á túr síðast. 2003. Fjögur ár.“ Hvað er það skemmtilegasta við svona risa tónleikaferðir? ,,Þegar lögin vaxa eftir því sem líður á túrinn og stemningin á milli hljóðfæraleikaranna breytist í töfra.“ En það leiðinlegasta? ,,Að vera í burtu frá vinum og ættingjum.“ Ertu lengi að jafna þig eftir svona törn? ,,Rosa misjafnt. Túrarnir hafa verið svo ólíkir. En núna ætlum við að spila annan hvorn mánuð svo maður ætti að hvílast vel á milli.“ Nýja platan heitir Volta – Hvað ertu að gera á plötunni sem þú hefur aldrei gert áður? ,,Brass-útsetningar. Svo má segja að flest annað sé kannski ekki öðru- vísi en það hefur vaxið heilmikið. Mér finnst ég til dæmis miklu betri á tölvuna en ég var. Betri að klippa og búa til bít. Og leyfa hlutum að halda hráleika sínum og orku þótt ég sé búin að vinna með þá á tölvunni í marga mánuði.“ Hafði Sykurmolakommbakkið ein- hver áhrif – ertu kannski komin út í meira popp en á hinni snarþver- hníptu Medúllu? ,,Nei. En það má samt kannski segja að Volta hafi verið samin með það í huga að vera spiluð læf. Og af því að ég var mjög upptekin af læf hlut- um, hvað virkar á sviði og hvað ekki var ég kannski opnari fyrir að stíga á svið með Sykurmolunum. Kannski oggu að enduruppgötva sjálfa mig sem læf söngkonu og hvað sé ,,törn on“ og ,,törn off“ á sviði. Samstarfið við Sigtrygg var náttúrulega yfirnátt- úrulegt fyrir mig og núna þegar ég er búin að vasast í elektrónískri bítpró- grammeringu í sextán ár er í fyrsta sinn trommari á plötunni. Meira að segja tveir.“ Hvað þýðir annars Volta? Er það nafn á einhverjum karli? ,,Ítalskur vísindamaður sem fann upp batterí- ið. Og á í Afríku sem þeir virkjuðu og úr varð vatnið Volta líka. Þannig að þetta snertir á mörgum flötum... Svo má ekki gleyma John Travolta.“ Finnst þér ekkert erfiðara að semja tónlist eftir því sem þú eldist? Ég spyr nú bara af því ég hef tekið eftir þessu hjá sjálfum mér og við erum jafnaldrar. ,,Mér finnst það alltaf svona svip- að erfitt/einfalt. Erfiðast er náttúru- lega að semja í dag tónlistina sem þú ert með í blóðinu núna. Ekki það sem þú varst með fyrir tveim árum eða tíu. Að „updeita“ svo það sé sam- ræmi á milli þess sem er að gerast inni í þér og það sem kemur út úr þér. Þegar ég næ þessu ekki þá myndast mikill neðanjarðarþrýstingur og ég verð rosa eirðarlaus. Annars finnst mér allrir aldrar jafnir. Er alveg til í svona jafnréttisbaráttu þar sem það er jafn mikilvægt að vera 53 ára og 11 ára. Og 27 ára og 72 ára. Og svo framvegis. Tilfinningarnar fara ekk- ert, það er ekki eins og við vöknum einn morguninn og þær séu búnar.“ Missirðu aldrei áhuga á tónlist – hugsar með þér að það sé löngu búið að gera allt í tónlist – og hvað gerirðu þá til að hressa þig við? ,,Mér finnst þögn úti í náttúrunni alltaf best. En það er náttúrulega mjög afstætt, tónlistin er náttúrulega bara eins og manneskjurnar sem búa hana til. Það að segja að það sé búið að semja öll lög er eins og að segja að nú séu öll börn fædd og það sé ekki fræðilegur möguleiki að búa til enn eitt barn sem verður öðruvísi en öll hin, einstakt. Ég held við getum alveg treyst á náttúruna að þessu leyti. Hún sér fyrir fjölbreytileikanum.“ Hvað er það frábærasta sem þú hefur heyrt síðustu mánuðina? ,,Í gær heyrði ég hressandi sánd- trakk úr rússneskri barnamynd sem heitir Snjóprinsessan.“ Hvað með útgáfuformatið – er ekki CD-diskurinn úreltur? Og þetta albúm-format. Er það ekki bara rugl? Afhverju ekki bara frekar að senda frá sér eitt og eitt lag í einu? Af- hverju alltaf albúm? ,,Það er svona alveg á nippinu! Það er hægt að hala plötuna mína niður í lagaformi en svo bjó ég líka til um- hverfishljóð á milli laganna svo þetta væri svona eitt stórt ferðalag. Þannig að það er hægt að gera bæði. Við þurfum ekki að velja. Megum bara gera allt sem við viljum.“ Semurðu textana ennþá eftir að þú hefur samið söngmelódíurnar? ,,Já. En stundum er dagbókin mín orðin full af einhverjum orðum og þá fer ég og púsla gömlum orðum að lag- línu.“ Semurðu textana alltaf á íslensku fyrst eða ertu farin að semja þá beint á ensku? ,,Það er svona bæði. Til dæmis þegar ég sem til íslenskra vina eða ættingja verða lögin til á íslensku og eitthvað kjánalegt finnst mér að semja íslenskt lag til fólks sem talar bara ensku.“ Færðu ritstíflu eins og títt er með rithöfunda? ,,Hmm .... það eru svo mörg lög í undirmeðvitundinni og yfirleitt er eitt af þeim aðgengilegt þótt hin séu öll lokuð og læst. Ég trúi ekki mikið á að hamra of mikið á sjálfum sér, ef ekki gengur á einum stað fer ég undir eins á næsta. Svo birtist bara fyrsti staðurinn mér þegar hann er tilbúinn. Kannski þess vegna eru plöturnar mínar svona ólíkar í stíl, ef ég myndi gera tveir eins plötur í röð, þá myndi ég örugglega fá rit- stíflu. Fjölbreytileiki og frelsi eru mikilvæg. Húrra fyrir því sjálf- sprottna.“ Eftir því sem ég kemst næst eru textarnir á Volta um upplifun þína af hamfarasvæðunum í Indónesíu og heimspekilegar pælingar um sam- band þitt og Sindra – er þetta rétt hjá Ég hef alltaf skilað auðu Það að segja að það sé búið að semja öll lög er eins og að segja að nú séu öll börn fædd og það sé ekki fræðileg- ur möguleiki að búa til enn eitt barn sem verður öðru- vísi en öll hin, einstakt. Ég held við getum alveg treyst á náttúruna að þessu leyti. Hún sér fyrir fjölbreytileik- anum. Dr. Gunni tekur viðtal mér og geturðu útskýrt þetta að- eins fyrir mér? ,,Ha ha ha :-) Eitt lag er um ferð mína til Indónesíu og annað lag er samið til Sindra en þar er ég meira að gera grín að sjálfri mér, hvað ég var mikill klaufi í að sleppa ungl- ingnum. Ég virði Sindra of mikið til þess að ég haldi að ég hafi leyfi til að opinbera hann eitthvað fyrir millj- ónum manna. Ég myndi ekki gera honum það. En svo eru átta önnur lög á plötunni. Um allt aðra hluti.“ Ég er stundum að spá í það hvað maður er – þrátt fyrir allt – heppinn að hafa fæðst á Íslandi. Það er til dæmis ólíklegt að maður eigi ein- hvern tímann eftir að hafa áhyggj- ur af næstu máltíð, sem er annað en stór hluti jarðarbúa upplifir. Sam- mála þessu? ,,Heldur betur! Samt spurning hvort við klúðrum þessum forrétt- indum með að byggja þúsund virkj- anir... Og breytumst í Frankfurt!“ Það vilja eflaust allir vera eins góðar manneskjur og þeir geta og að „taka til í eigin garði“ er fyrsta skrefið til betri heims. Hvað er hægt að gera meira? Borðar þú til dæmis bara lífrænt ræktað og pass- ar að fötin þín séu ekki búin til í ein- hverjum þrælakistum? ,,Ér er nú ekki heltekin af þessu en mér finnst frábært að það sé núna hægt að kaupa lífrænt í venju- legum matvöruverslunum. Bara verst hvað það er dýrt. Leiðinlegt að hollur matur sé lúxus.“ Er samt ekki hætta á að maður endi sem predikandi leiðindagerpi eins og Bono ef maður er að pæla of mikið í þessu? ,,Flestir textarnir mínir eru skrifaðir svona meira til mín, helst að gera grín að sjálfri mér eða svona minna mig á hvað mér finnst skemmtilegast. Ég er nú ekki að skipa öðrum eitthvað fyrir þannig ... Hmmm .... Og ég hef alltaf skilað auðu og ætla ekki að fara að blanda mér í pólitík.“ Ég heyrði þig líka vera frekar neikvæða í garð trúarbragða – eru þau rót alls hins illa? ,,Mér finnst þau rosa þreytandi, það er alveg satt.“ Myndirðu segja að þú værir trú- leysingi? ,,Eru það ekki trúarbrögð líka? Ég er svona meira fyrir utan bara.“ Og þá eru það páskarnir á morgun – Gefur þér einhver páskaegg og þá númer hvað? ,,Veit ekki, er mjög spennt að sjá!!!“ Það er brjálað að gera hjá Björk. Sjötta stúdíóplatan hennar, Volta, kemur út 7. maí og að kvöldi annars í páskum held- ur hún stórtónleika í Laugardalshöll- inni. Tónleikarnir eru þeir fyrstu í löngu tónleikahaldi sem mun fara fram um víða veröld. Björk æfir nú stíft ásamt hljómsveit en gaf sér tíma fyrir viðtal með nútímalegum rafpóstsaðferðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.