Fréttablaðið - 05.04.2007, Side 18
„Ég vil frekar vera hat-
aður fyrir það sem ég er
en elskaður fyrir eitthvað
sem ég er ekki.“
Winston Churchill dregur sig í hlé
Tónlistarmaðurinn Kristján Kristjáns-
son, KK, var kjörinn Blúsmaður ársins
við setningu Blúshátíðar í Reykjavík
á Hótel Nordica í fyrrakvöld. Það var
Blúsfélag Reykjavíkur sem sæmdi KK
nafnbótinni. Þeir sem áður hafa hlot-
ið þennan heiður eru Magnús Eiríks-
son (2004), Björgvin Gíslason (2005) og
Andrea Gylfadóttir (2006).
„Það er stórkostlegur heiður að fá
að vera með þessum mönnum, Magn-
úsi Eiríkíks, Björgvini Gísla og síðan
Andreu Gylfa. Að fá að sitja með þeim
til sætis sem blúsmaður er frábært,“
segir KK. Eftir að hann tók á móti
viðurkenningunni tók hann lagið með
hljómsveitinni Frakkarnir, þar sem
Björgvin Gíslason er einmitt einn með-
lima. „Þetta er bandið sem ég er búinn
að vera að leita að. Ég spilaði á munn-
hörpu og söng og Gummi [Guðmundur
Pétursson] og Björgvin spiluðu á gítar.
Þeir voru afslappaðir gagnvart hvor
öðrum og voru ekkert í neinum sóló-
einvígjum,“ segir hann og hlær.
KK segist ekki hafa átt von á þessum
heiðursverðlaunum. „Þetta er mikill
heiður sem mér er sýndur og mjög
gaman að fá þessa nafnbót. Þetta er
gaman á ferilsskrána og maður er bara
snortinn, blússnortinn.“
KK hefur árum saman verið í farar-
broddi í blústónlist á Íslandi. Á síðasta
ári gaf hann út plötuna Blús sem hlaut
einróma lof gagnrýnenda en hann vakti
fyrst athygli hér á landi með KK-band-
inu. Á meðal vinsælustu laga þeirr-
ar sveitar voru Bein leið og Vegbúinn.
Hann segist alla tíð hafa verið mik-
ill blúsari. „Það byrja allir á þessu því
þetta er svo þægileg tónlist til þess.
Þegar maður fór að hlusta á rokkið
fórum við að sjá nöfn eins Robert John-
son og Muddy Waters. Þetta er vagga
dægurlagatónlistarinnar. „The blues
had a baby and they called it rock ´n´
roll“. Síðan eru barnabörnin óteljandi
eins og rapp, hip hop og dauðarokk.“
KK spilar næst í Fríkirkjunni annað
kvöld á Blúshátíð Reykjavíkur. Þar
koma einnig fram Zora Young, Andrea
Gylfadóttir, Lay Low, Brynhildur
Björnsdóttir og Goðsagnir Íslands.
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
Ástkær faðir minn og bróðir okkar,
Helgi Þór Bjarnason
frá Skagaströnd,
lést á sjúkrahúsi í Noregi 1. mars síðastliðinn.
Útför fór fram í Fossvogskapellu í kyrrþey.
Smári Helgason, systkini og fjölskyldur þeirra.
Elskulegur sonur okkar, bróðir og mágur,
Þorvarður Stefán Eiríksson
Hörgsholti 9, Hafnarfirði,
lést laugardaginn 31. mars síðastliðinn. Útförin fer fram
frá Víðistaðakirkju föstudaginn 13. apríl kl. 15.00.
Eiríkur Rúnar Þorvarðarson Svanhildur Ladda Þorvarðarson
Gunnar Kiatkla Eiríksson Ásgerður Ólína Jónasdóttir
Ingimundur Vigfús Eiríksson
Ástkær sonur okkar, bróðir, unnusti og
faðir,
Benedikt Ingi Ármannsson
andaðist sunnudaginn 1. apríl síðastliðinn.
Ármann H. Benediktsson Elín Ebba Gunnarsdóttir
Erna Karen Stefánsdóttir Jón Óskar Þórhallsson
Dóra Steinunn Ármannsdóttir Magnús Birgisson
Ármann Ingvi Ármannsson
Ásthildur Erlingsdóttir
Ísabella Ronja Benediktsdóttir.
„Jú það er satt, ég ætla að gefa öll launin sem ég fæ fyrir
að kenna þennan áfanga til góðgerðarmála. Þrír hæstu
nemendurnir fá að velja hvaða góðgerðarsamtök fá pen-
ingana og ég reikna með að hann skiptist milli tveggja eða
þriggja samtaka,“ segir Raphael Wechsler, stundakennari
við Háskólann í Reykjavík.
Wechsler starfar sem sjóðstjóri hjá Glitni en hefur í vetur
kennt alþjóðastjórnmál í HR við góðan orðstír. „Ég ákvað að
taka að mér kennslu af nokkrum ástæðum og peningar voru
ekki ein þeirra,“ segir Wechsler.
Wechsler hefur starfað í fjármálageiranum í 20 ár og seg-
ist ánægður með að fá tækifæri til þess að miðla af reynslu
sinni. „Ég bý hérna á Íslandi núna og hef hugsað mér að setj-
ast hér að. Mig langaði að skila einhverju til baka til sam-
félagsins og þótti þetta góð leið til þess,“ segir Wechsler,
sem er bandarískur að uppruna en hefur búið hér í eitt og
hálft ár.
Ekki fæst gefið upp hve háa upphæð er um að ræða en laun
kennara við Háskólann í Reykjavík eru trúnaðarmál.
Gefur laun sín til góðgerðarmála
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettab-
ladid.is eða hringja í síma 550 5000.