Fréttablaðið - 05.04.2007, Side 36
BLS. 6 | sirkus | 5. APRÍL 2007
Þórólfur Árnason,
forstjóri Skýrr, sem
er nýskriðinn inn á
sextugsaldurinn,
tjúttaði sem aldrei
fyrr á 101 hóteli á
laugardagskvöldið.
Kvikmyndafólk var áberandi á
Boston á laugardaginn því
þar voru mættir leikstjórinn
Ari Alexander og kvikmynda-
framleiðandinn Þórir Snær
Sigurjónsson. Auk þess
sást glitta í þróunarfrömuðinn Glúm
Baldvinsson sem fór
mikinn í samræðum
sínum við gesti
staðarins. Og systir
Glúms Kolfinna
Baldvinsdóttir var
líka í
bænum því hún sást á
Kaffibarnum í hrókasam-
ræðum við leikstjórann
Friðrik Þór Friðriksson.
Brynja Björk Garðarsdóttir blaðamað-
ur á Séð og heyrt var á
Barnum á laugardagskvöldið
og virtist skemmta sér
konunglega á tónleikum
Steed Lord og raftónlist-
ardrottningarinnar Uffi.
Þar voru líka mætt
skötuhjúin Krummi í
Mínus og Harpa,
Urður í GusGus og
útvarpsmaðurinn og
gítarleikarinn Frosti
Logason.
„Vinir mínir
fengu mig til
að skipta“
SKO býður jafngóða GSM-þjónustu og hin símafyrirtækin, innanlands og erlendis. Eini munurinn er lægra
verð! Það kostar EKKERT að færa GSM-símanúmerið til SKO. Þú skráir þig í þjónustuna á www.sko.is.
Hringt í SKO GSM-síma Hringt í aðra GSM- og heimasíma í alla GSM-síma á Íslandi
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
7
5
9
6
„Ég var að borga mun meira á mánuði fyrir símnotkun og var eiginlega kominn
í hálfgerðan vítahring. Eftir að ég skráði mig í SKO hefur allt breyst. Núna á ég
alltaf smá pening afgangs um mánaðarmótin og ef ég tel allt árið þá er ég að spara
heilan helling. Svo ég er mjög sáttur.
„Fáránlega
ódýrt!“
Ungur háskólanemi segist hálf undrandi á sím-
reikningum sínum eftir að hann skipti í SKO.
Háskólanemar í SKO eru ánægðir með lífið.
Banani hyggur
á framboð
Banani sem vill kalla sig Hákon, hyggur á sérframboð í
næstu kosningum. Telur Hákon tímabært að rödd
banana heyrist á Alþingi Íslendinga og að hann sé nógu
þroskaður til að taka á sig þá ábyrgð. Helstu baráttumá-
lin verða jafnara hitastig í grænmetis- og ávaxtaborðum
stórmarkaða, að litið sé á alla banana sem jafna hvort
sem þeir eru gulir, brúnir eða grænir og að það verði frítt
í strætó.
Í opinskáu viðtali við fréttamann skýrði Hákon frá því að
bananar hafi lengi átt undir högg að sækja í þjóðfélaginu.
„Við höfum verið hæddir og spottaðir, kallaðir apafóður
eða algjör banani o.s.frv. Þessu vil ég breyta“, sagði
Hákon að lokum og víst er að margir munu fylgjast
spenntir með baráttu þessa mikla eldhuga aldingarðsins.
Ungur viðskiptavinur SKO
segist hafa verið undir mikilli
pressu frá vinum sínum að
gerast viðskiptavinur SKO.
„Ég borga miklu minna fyrir símann núna“ segir
hann, en vill ekki láta nafns síns getið. Dæmi eru um
stóra vinahópa þar sem allir eru skráðir í SKO.
Hverjir voru hvar
Þ etta var alveg ótrúlegt og ég er ekki enn komin niður á jörðina,“ segir Alma Dröfn
Geirdal, framkvæmdastjóri Forma,
samtaka átröskunarsjúklinga, en
samtökin stóðu fyrir glæsilegum
tónleikum 1. apríl á Nasa. Á meðal
listamanna sem stigu á svið voru
Björk og Mugison auk þess sem
nokkrir ráðamenn í samfélaginu tóku
til máls. „Viðtökurnar voru glæsileg-
ar. Húsið var troðfullt og tónlistar-
mennirnir gáfu sig alla í þetta,“ segir
Alma og bætir við að uppselt hafi
verið á tónleikana. Aðspurð hvort
samtökin hafi haft vel upp úr
viðburðinum segir Alma svo vera.
„Við höfum allavega tryggt okkur
áframhaldandi starf út árið auk þess
sem við létum undirskriftarlista
ganga og söfnuðum um það bil 300
undirskriftum auk þess sem við
seldum fullt af bolum. Undirskriftar-
listann ætlum við að afhenda
yfirvöldum með áskorun um að opna
meðferðarheimili. Að mínu mati geta
þeir ekki sagt nei miðað við
viðtökurnar sem við fengum því
átröskun hefur greinilega snert
þjóðina. Samtökin munu sjálf leggja
út pening að fyrsta meðferðarheimil-
inu en vonandi taka stjórnvöld þátt í
uppbyggingunni.“ Alma segir að nú sé
boltinn farinn að rúlla og hún er
spennt fyrir framtíðinni. „Þetta er
bara byrjunin. Viðtökurnar voru
þannig að ég hefði aldrei trúað þessu
og stemningin í salnum var betri en
við þorðum að vona.“
indiana@frettabladid.is
FORMA - SAMTÖK ÁTRÖSKUNARSJÚKLINGA STÓÐU FYRIR TÓNLEIKUM Á NASA 1. APRÍL.
FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR Á
GLÆSILEGUM TÓNLEIKUM
FLOTT SAMAN
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir og Einar
Örn Benediktsson
skemmtu sér vel á
tónleikunum.
ALLA LEIÐ FRÁ FINNLANDI Ella, AArne
og Davide voru mætt.
BJÖRK Björk
tók þrjú lög.
ESJA
Hljómsveitin
Esja með
Daníel Ágúst
og Krumma í
fararbroddi.
TÓNLEIKAR FORMA Lilja og Katrín voru
meðal gesta.