Fréttablaðið - 05.04.2007, Side 10
Sigrún Eldjárn settist
niður með hópi leikskólabarna
í Eymundsson í Austurstræti á
þriðjudaginn og las fyrir börnin.
Sigrún hlaut á dögunum hin
nýstofnuðu barnabókaverðlaun
Sögustein fyrir störf sín í þágu
barnabókmennta.
IBBY á Íslandi og Glitnir
standa að verðlaununum en þau
voru veitt á alþjóðlega barna-
bókadeginum, 2. apríl.
Leikskólabörnin hlustuðu af
athygli á Sigrúnu hafa fáir höf-
undar jafn gott lag á að ná til
barna. Á milli þess sem hún las
sýndi hún börnunum myndirnar
sem prýða bókina.
Náði vel til
ungra lesenda
Bandaríkjamenn
hafa vaxandi áhyggjur af utan-
ríkisstefnu Bandaríkjanna. Átta
af hverjum tíu Bandaríkjamönn-
um telja að heimurinn sé að verða
hættulegri fyrir Bandaríkjamenn
og tæpur helmingur segir heiminn
að verða „miklu hættulegri“. Tveir
af hverjum þremur Bandaríkja-
mönnum segja utanríkisstefnu
Bandaríkjanna „á rangri leið“ sam-
kvæmt nýrri könnun sem birt í
tímaritinu Foreign Affairs.
Könnunin var unnin í mars og
febrúar og er sú fjórða sem stofn-
unin Public Agenda gerir á hálfs
árs fresti. Svör voru greind út
frá sérstökum kvíðastuðli á bilinu
0 til 200 og mældist kvíðinn 137
stig í þessari nýjustu könnun sem
er hækkun um sjö stig frá síðustu
könnun frá því í september.
„Kvíðastuðullinn er að færast
nær 150 stiga markinu, „hættu-
svæðinu“, sem fyrir mér myndi
vera merki fullkomins vantrausts
meðal almennings,“ sagði einn
rannsakenda, Daniel Yankelov-
ich, og stjórnarformaður Public
Agenda. Næstum sex af hverj-
um tíu Bandaríkjamönnum segj-
ast vantreysta stjórnvöldum til að
segja sannleikann um utanríkis-
mál. Það er tíu prósenta aukning
síðan í september.
Rúm 70 prósent sögðu Bandarík-
in ekki standa sig vel í leiðtogahlut-
verki við að skapa aukinn frið og
velmegun í heiminum. Þar af sagði
rúmlega þriðjungur að Bandaríkin
stæðu sig beinlínis illa við það.
Tæp 70 prósent töldu að fólk í
öðrum heimshlutum sæi Bandarík-
in í neikvæðu ljósi.
Rúm 80 prósent telja að setn-
ingin „hernaðaraðgerðir ætti að-
eins að hefja með stuðningi banda-
manna“ ætti að vera mikilvæg í
utanríkisstefnu Bandaríkjanna.
Yfir 80 prósent sögðust hafa
áhyggjur af möguleikanum á að
óvinveittar þjóðir yrðu kjarnorku-
veldi. 75 prósent sögðu að það að
hamla á móti útbreiðslu kjarna-
vopna ætti að vera mjög mikil-
vægt í utanríkisstefnu Bandaríkj-
anna.
Aukinn kvíði
almennings
Kvíði eykst meðal Bandaríkjamanna vegna utan-
ríkistefnu stjórnvalda. Yfir 80 prósent telja að heim-
urinn sé að verða hættulegri fyrir Bandaríkjamenn.
Þúsundir Sal-
ómonseyinga þora enn ekki að
snúa aftur til þorpa sinna við
ströndina vestast í eyjaklasanum
sem urðu eyðileggingu að bráð er
flóðbylgja af völdum jarðskjálfta
skall á þeim í byrjun vikunnar.
Niðurgangur er farinn að ganga
milli barna í hópi flóttafólksins,
sem hefst við í hlíðunum ofan við
þorpin, en illa gengur að koma
hjálpargögnum til fólksins vegna
skorts og erfiðra samgangna.
Honiara, höfuðstaður eyjaklas-
ans þaðan sem megnið af hjálp-
argögnunum kemur, er í tíu sigl-
ingastunda fjarlægð frá hamfara-
svæðinu.
Samgöngur
hamla aðstoð