Fréttablaðið - 08.05.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 08.05.2007, Blaðsíða 6
 Arnarvarp virðist ekki hafa gengið vel í ár, og er aðeins vitað um 33 arnarhreiður saman- borið við allt að 44 á árum áður. Áætlað er að 64 fullorðin arnarpör séu á Íslandi, og því innan við helmingur sem hefur verpt í ár. „Það hefur borið venju fremur mikið á truflunum. Þótt það sé kannski erfitt að fullyrða hvað þær hafa í för með sér,“ segir Kristinn Haukur Skarphéðinsson, fuglafræðingur hjá Náttúrufræði- stofnun Íslands (NÍ). Að minnsta kosti fjögur högl fundust með röntgenmyndatöku af fullvöxnum haferni sem fannst dauður við Breiðafjörð í apríl, en Kristinn segir ekki hægt að full- yrða að þau hafi dregið fuglinn til bana. Hann segir það sorglegt að nú þegar hafernir hafi verið frið- aðir í næstum heila öld hér á landi séu enn merki um að skotið sé á fuglana. Það sé alltaf afar slæmt þegar fullvaxinn fugl drepist, það taki haferni 5-6 ár að verða kyn- þroska, og fullvaxnir fuglar því afar dýrmætir fyrir stofninn. Eftirlitsmenn fundu að auki merki um truflanir við 12 af 75 varpsvæðum sem könnuð voru í vor. Tveir varphólmar höfðu verið brenndir, grjót borið í hreiður og fuglahræður og flögg sett upp til að fæla erni frá óðulum. Skýrt er í lögum að bannað er að trufla arnarvarp, en Kristinn segir erfitt að koma lögum yfir þá sem trufli varpið, hreiðrin séu afskekkt og erfitt að finna sökudólga og sönnunargögn. Því sé brýnt að auka eftirlit með arnarvarpinu og auka áróður og fræðslu. Kristinn segir erfitt að fullyrða um áhrifin af truflununum. Í ein- staka tilvikum skýri það af hverju ákveðin pör hafi ekki orpið, en aðrar ástæður komi væntanlega einnig til. Tíðarfar í vor hafi þó einmitt verið álitið hagstætt og því komi ástandið nokkuð á óvart. Þeir sem reyna að trufla arnar- varp eru yfirleitt æðarbændur sem vilja með því verja varp sitt fyrir ránfuglinum. Kristinn segir að langflestir æðarbændur virði friðhelgi arnarins, en örfáir komi óorði á stéttina með því að trufla ernina. Arnarvarpið í vanda Fjögur högl fundust í haferni sem fannst dauður nýverið. Illa lítur út með arn- arvarp í ár. Meira hefur borið á truflunum á varpslóðum arna í vor en undan- farið. Erfitt að koma lögum yfir þá sem trufla varpið segir fuglafræðingur. Enginn þeirra 114 manna sem voru í kenýsku far- þegaþotunni sem hrapaði í skógi í Kamerún á föstudag komst lífs af. Þetta fullyrti Luc Ndjodo, fulltrúi þarlendra yfirvalda, eftir að hafa kannað vettvang slyssins. Aðspurður sagðist hann ekki hafa séð neina á lífi. „Nei,“ svaraði hann. „Ég var þarna. Ég sá engan.“ Vélin lenti í mýrlendi og sökk að stórum hluta í forarbrúnt vatn. Brak úr vélinni dreifðist um stórt svæði. Verið er að undirbúa að dæla vatninu burt og er þannig vonast til að hægt verði að finna lík allra farþeganna. Mjög erfið skilyrði eru á svæð- inu, þykkur skógur og tuttugu mínútna gangur þangað sem bílar komast næst. Því þarf að bera lík og líkamshluta á börum langa leið til að unnt sé að flytja látna í lík- hús. Vélin var á leið frá Douala, höf- uðborg Kamerún, til Naíróbí, höf- uðborgar Kenýu, og hrapaði eftir einungis tuttugu kílómetra flug. Ekki liggur fyrir hvað olli slysinu, en bandarískur sérfræðingur í flugmálum segir að í ljósi þess hversu snemma eftir flugtak vélin hrapaði bendi allt til þess að um stórkostlega bilun í byggingu vél- arinnar hafi verið að ræða. Fullkomnasti farsími í heimi Nokia N95 5 megapixla myndavél mp3 spilari 3 Kynslóð WLAN GPS 100 fríar stafrænar framkallanir frá Hans Petersen fylgja Meðal dagskráratriða í dag, 8. maí: Leikskólinn Efstahjalla kl. 9–16. Sýning og opið hús. Íþróttahúsið Smáranum kl. 10.30. Íþróttadagur Glóðarinnar. Sýningar og gömlu góðu leikirnir. Hamraborg 11 kl. 16–18. Opið hús hjá Kópavogsdeild Rauða krossins. Sjálfboðaliðar kynna verkefni. Veitingar. Digranesskóli kl. 16. Sólkerfisganga fyrir almenning. Myndlistarsýningar • danssýning • opin hús. Kynnið ykkur dagskrána nánar á kopavogur.is Ferð þú reglulega til tann- læknis? Ætti að leyfa sölu léttvíns og bjórs í matvöruverslunum? „Við höfðum strax samband við Hjálmar [Árnason] vegna þess að reynsla hans á eftir að skipta sköpum í þessu starfi,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, um ráðningu Hjálmars Árnasonar, fráfarandi þingmanns Framsóknarflokksins, sem forstöðumanns starfsgreina- tengds fagskóla. Hann verður með höfuðstöðvar á svæði gömlu her- stöðvar varnarliðsins á Keflavík- urflugvelli. Staða Hjálmars var ekki auglýst og því hafði enginn annar tækifæri til þess að sækjast eftir stöðunni. Runólfur Ágústsson, fyrrver- andi rektor Háskólans á Bifröst, er framkvæmdastjóri fræðamið- stöðvarinnar sem ber heitið Keilir, hlutafé þess í upphafi er um 300 milljónir króna. Meðal hluthafa í Keili eru Hitaveita Suðurnesja, fjárfestingafélagið Geysir Green Energy, Háskóli Íslands og ýmis önnur útrásarfyrirtæki. Fyrsta verkefni Keilis verður að stofnsetja frumgreinadeild fyrir næsta skólaár en námið við deildina verður þróað í samráði við Háskóla Íslands. Hjálmar verður forstöðumaður stofnunar starfsgreinatengds fag- skóla en fyrsta skref hans verður að koma á fót flugakademíu í sam- ráði við fyrirtæki í flugþjónustu. Ýmis flugtengd störf verða kennd í akademíunni. Runólfur segir stjórn Keilis hafa sett sig í samband við Hjálm- ar um leið og ljóst var að hann myndi hætta þingstörfum. „Hjálm- ar hefur mikla reynslu af skóla- málum og var meðal annars skóla- stjóri í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Stjórnin lagði áherslu á að fá Hjálmar strax til starfa og ég fagna því að það hafi tekist.“ Árni Sigfússon er formaður stjórnarinnar. Ekki náðist í Hjálmar Árnason, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Staða Hjálmars var ekki auglýst
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.