Fréttablaðið - 08.05.2007, Qupperneq 34
9
É g æfi fjóra tíma á dag, sex sinnum í viku,“ segir fim-leikastúlkan Fríða Rún Ein-
arsdóttir spurð um hvaða vinna
liggi að baki þeim frábæra árangri
að vinna til sex gullverðlauna á
Norðurlandamóti unglinga, sem er
besti árangur sem íslenskt fim-
leikafólk hefur náð á þeim vett-
vangi.
GÓLFÆFINGAR
SKEMMTILEGASTAR
„Ég held að árangurinn á Norður-
landamótinu núna sé algjörlega
toppurinn á ferlinum. Það gekk
alveg frábærlega og það var
yndislegt að heyra þjóð-
sönginn spilaðan. Ég fékk
gæsahúð þá,“ segir
Fríða Rún en hún vann
gull í fjölþraut og liðakeppninni
auk þess sem hún sigraði í öllum
einstaklingsgreinunum, stökki, á
jafnvægisslá, í gólfæfingum og á
tvíslá. „Mér finnst skemmtilegast
í gólfæfingum,“ svarar Fríða Rún
spurð hvaða grein fimleikanna sé
skemmtilegust.
Aprílmánuður var síðan full-
komnaður þegar hún bar sigur úr
býtum í Skólahreysti 2007 ásamt
félögum sínum úr Lindaskóla,
Haraldi Birgissyni, Guðmundi
Erni Magnússyni og Rakel Reyn-
isdóttur. „Þetta var skemmtileg
tilbreyting. Það var mikil stemn-
ing og gaman að glíma við fjöl-
breyttar greinar,“ segir Fríða
Rún. Fimleikabakgrunnurinn
kom sér vel í keppninni en hún
segir að meirihluti keppendanna í
Skólahreystinni hafi æft fimleika
þannig að forskotið hafi ekki
verið mikið.
ÁHUGINN ENN MIKILL
Fríða Rún var aðeins fimm ára
þegar hún byrjaði að æfa fimleika
og fann sig strax. „Ég hef alltaf
þurft að vera mikið á hreyfingu og
byrjaði í samkvæmisdönsum
þegar ég var fjögurra ára. Það var
hins vegar full rólegt fyrir mig
þannig ég byrjaði að æfa fimleika
og sé ekki eftir því. Ég fann strax
að þetta er íþróttin fyrir mig,“
segir Fríða Rún og bætir við að
hún sé ekkert að fá leið á þessu
þótt æfingarnar séu oft erfiðar.
„Mér finnst þetta alltaf jafn
gaman. Auðvitað koma tímar sem
eru erfiðir en áhuginn er ennþá
mjög mikill,“ segir Fríða Rún.
Hún stefnir hátt og segist vera
að gæla við að komast jafnvel á
Ólympíuleikana í Peking á næsta
ári. Framundan eru ferðalög á Smá-
þjóðaleikana í Mónakó og Ólympíu-
leika æskunnar í Belgrad. Auk þess
vonast Fríða Rún til að komast á
HM í Þýskalandi í september.
GOTT SKIPULAG
En lífið er ekki bara fimleikar.
Fríða Rún er að klára 10. bekk í
Lindaskóla og segist reyna að vera
dugleg að læra þegar hún hefur
tíma. „Það er auðvitað mikið að
gera en ég reyni að skipuleggja
mig vel. Ég hef alltaf náð að klára
allt og er að því er ég veit best
bara fyrirmyndarnemandi,“ segir
Fríða Rós og hlær.
4 sport
HVAR ER HÚN NÚ?
RAGNHEIÐUR RUNÓLFSDÓTTIR
Skagastúlkan Ragnheiður Runólfsdóttir er sigursælasta sunddrottning
Íslands frá upphafi. Íslandsmetin sem hún setti á ferlinum skipta hundruð-
um og hún var valin í A-landsliðið aðeins tólf ára gömul. Ragnheiður bar
ægishjálm yfir aðrar sundkonur á Íslandi allt þar til hún lagði sundbolinn á
hilluna eftir Ólympíuleikana í Barcelona árið 1992. Sama ár lauk hún námi
frá Háskólanum í Alabama í íþróttaeðlisfræði. Hún kom heim og byrjaði að
þjálfa sund og kenna uppi á Akranesi. Hún var þrjú ár í Mosfellsbæ og tvö í
Keflavík áður en hún flutti aftur upp á Skaga árið 1999. Á sama tíma kynntist
hún sambýlismanni sínum, þingmanninum Magnúsi Þór Hafsteinssyni.
Hún hellti sér út í þjálfun í fullri
vinnu árið 2001 og hefur síðan
unnið sem þjálfari hjá Sundfélagi
Akraness og stýrir gríðarlega vel
sóttum sundskóla sem sinnir
ungbarnasundi og krökkum upp
til fimm ára. Ragnheiður á þrjú
börn: Birgi Viktor 12 ára, Önnu
Söru 5 ára og Sigurjónu 3 ára.
Fríða Rún Einarsdóttir er fimmtán ára Kópavogsmær. Hún er efnilegasta fimleikastúlka landsins og vann meðal annars
til sex gullverðlauna á Norðurlandamóti unglinga á dögunum. EFTIR ÓSKAR HRAFN ÞORVALDSSON
» FÉKK GÆSAHÚÐ « ÞEGAR
ÞJÓÐSÖNGURINN VAR SPILAÐUR
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkiaska
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
MEISTARATITLAR
Ryan Giggs hefur níu
sinnum orðið meistari
með Manchester United
í ensku úrvalsdeildinni.
Giggs varð fyrst meistari
tímabilið 1992 til 1993, þá
aðeins nítján ára gamall.
Hann hefur verið frábær
með United í vetur og
á stóran þátt í titlinum
sem félagið landaði um
helgina.
Fríða Rún Einarsdóttir átti
eftirminnilegan aprílmánuð
og vann sjö gull í fimleikum
og Skólahreysti.
SPORTMYND/ANTON