Fréttablaðið - 08.05.2007, Qupperneq 59
[Hlutabréf]
Baugur Group er ekki að skoða
sölu á eignum sínum í Bretlandi
líkt og breska dagblaðið Daily Te-
legraph sagði á sunnudag. „Það
stendur ekkert annað til en að
halda áfram eins og við höfum
gert hingað til,“ segir Gunnar
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Baugs í Bretlandi, og vísar frétt
breska blaðsins á bug.
Blaðið sagði Baug vera að
íhuga sölu á eignum í Bretlandi til
að losa um fé sem þar sé bundið.
Hafi félagið verið stórtækt í fyr-
irtækjakaupum og ekkert selt síð-
astliðin fjögur ár.
Gunnar segir Baug hafa á þess-
um árum unnið að því að byggja
upp eignasafn í Bretlandi af
miklum krafti. Hafi tekist mjög
vel til enda séu frábær fyrirtæki
í safninu. Á meðal eigna Baugs
í Bretlandi eru leikfangakeðjan
Hamleys, matvörukeðjan Iceland,
Whittard of Chelsea og verslana-
keðjurnar Oasis, Karen Millen,
Jane Norman og fleiri. Þá keypti
Baugur verslanakeðjuna House
of Fraser ásamt fleiri fjárfestum
fyrir 77 milljarða króna í byrjun
nóvember í fyrra. Nú á það í við-
ræðum um yfirtöku á Mosaic Fas-
hions.
„Fjárfestingastefna okkar hefur
í engu breyst. Við sjáum áfram
mikil tækifæri í að hjálpa núver-
andi eignum að vaxa og sjáum
fram á að stækka á næstu árum,
helst með svipuðum hraða og und-
anfarin ár,“ segir Gunnar.
Óbreytt stefna í Bretlandi
Talið er að Landsbankinn hyggist
gera tilboð í írska bankann Irish
Nationwide Building Society, sem
er með höfuðstöðvar í Dublin. Írska
blaðið Irish Times segir að Lands-
bankinn telji írska fyrirtækið falla
vel að starfsemi bankans.
Irish Nationwide Building Soc-
iety var stofnað árið 1873 og því
þrettán árum eldri en Landsbank-
inn. Þetta er einn elsti banki Ír-
lands með starfsemi víða. Bankinn
sinnir hefðbundinni fjármálastarf-
semi en mesta umfangið liggur á
sviði fasteignalána á Írlandi.
Að sögn Irish Times greindi
stjórn Irish Nationwide Build-
ing Society starfsmönnum frá því
á ársfundi fyrirtækisins um þar-
síðustu helgi að stjórnin vonist til
að sala á bankanum verði gengin í
gegn fyrir árslok. Blaðið segir hins
vegar að forsvarsmenn Lands-
bankans hafi ekki viljað tjá sig um
viðskiptin.
Skoða Írland
Tvö félög standa eftir í bar-
áttunni um samheitalyfjahluta
þýska lyfjafyrirtækisins Merck.
Þetta staðhæfir Bloomberg-
fréttastofan.
Í síðustu viku dró Actavis sig
út úr baráttunni um félagið. Fyr-
irséð var að það yrði dýrara verði
keypt en stjórnendur félagsins
töldu skynsamlegt. Þá hafa fjár-
festingarsjóðirnir Apax Partn-
ers og Bain Capital einnig dregið
sameiginlegt tilboð sitt til baka.
Ísraelska lyfjafyrirtækið Teva
Pharmaceuticals og bandaríska
félagið Mylan standa eftir. Lík-
legt er talið að gengið verði frá
samningum innan tveggja vikna.
Talið er að kaupandi muni greiða
í kringum 4,5 milljarða evra fyrir
samheitalyfjahluta Merck. Það
nemur um fjögur hundruð millj-
örðum íslenskra króna.
Tvö félög
standa eftir