Fréttablaðið - 08.05.2007, Page 66
Verk eftir sex íslenska listamenn
voru valin á stórsýningu á portrett-
listaverkum sem nú er uppi í Frið-
riksborgarhöll í Kaupmannahöfn.
Það eru þau Dodda Maggý Kristj-
ánsdóttir, Helgi Gíslason, Krist-
veig Halldórsdóttir, Magdalena
Margrét Kjartansdóttir, Sess-
elja Tómasdóttir og Sigrún Eld-
járn sem nutu þess heiðurs að fá
inni á sýningunni, sem var opnuð
á fimmtudag.
Sýningin byggir á samkeppni
um verðlaun fyrir portrett sem
efnt er til að frumkvæði hallar-
safnsins sem á stærsta safn por-
trettmynda á Norðurlöndunum.
Eru verðlaunin kennd við brugg-
arann J.C. Jacobsen og nema 75
þúsund krónum dönskum. Fag-
leg dómnefnd valdi verk á
sýninguna sem var safnað á
síðasta ári. Þar eru ekki ein-
göngu hefðbundin portrett-
málverk heldur hafa lista-
mennirnir frjálst val um
efnistök. Þetta er í fyrsta
sinn sem efnt er til
norrænnar sam-
sýningar af þessu
tagi en framveg-
is verða þær
haldnar annað
hvert ár.
Ekki var ís-
lenska listafólk-
ið sigursælt:
Sonja Lillebæk
Christensen frá Danmörku,
Svíinn Sven Ljungberg og
Daninn Torben Eskerod
skipuðu verðlaunapallinn.
En ánægjulegt er að ís-
lenskir portrettistar skuli
nýta sér þennan vettvang.
Mannlýsing í mynd er sér-
hæft listform og mörg af
meistaraverkum mynd-
listarinnar eru ein-
mitt pöntun á mynd af
mektarmanni.
Mannamyndir sýndar í Höfn
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is
KVENFRELSI ER LÍKA OKKAR MÁL
Paul Nikolov
3. sæti Reykjavíkurkjördæmi norður
Ögmundur Jónasson
1. sæti Suðvesturkjördæmi
Gestur Svavarsson
3. sæti Suðvesturkjördæmi
Atli Gíslason
1. sæti Suðurkjördæmi