Fréttablaðið - 08.05.2007, Qupperneq 75
Það er allt annað en auð-
velt fyrir FH-inga að bæta sig
milli ára, svo frábær hefur sig-
urganga liðsins verið undanfarin
ár, en þetta afrekuðu þeir samt á
sunnudagskvöldið. FH-liðið náði
þá í fyrsta sinn að vinna báða titl-
ana sem eru í boði á vormótun-
um en þeir eru deildameistarar og
meistarar meistaranna árið 2007.
Ekkert félag hefur unnið báða
þessa titla á sama ári síðan deilda-
bikarinn var settur á laggirnar
vorið 1996.
FH-ingar hafa unnið þrjá Ís-
landsmeistaratitla í röð en þeir
eiga enn eftir að vinna bikarkeppn-
ina og hafa enn fremur aldrei
unnið fleiri en tvo titla á einu ári
undanfarin ár. Hafnfirðingar von-
ast örugglega til að hrakfarir FH-
inga í bikarkeppninni séu á enda
en þrír af átta tapleikjum FH-liðs-
ins undanfarin þrjú tímabil hafa
komið í bikarnum.
Engu liði hefur tekist að vinna
fjóra titla á sama árinu. Skaga-
menn komust næstir því 1996
þegar þeir unnu þrefalt. ÍA fékk
tvö tækifæri til þess að vinna
Meistarakeppnina það sumar en
tapaði báðum leikjum sínum, fyrst
1-3 fyrir KR um vorið og svo 3-5
í október. Eyjamenn unnu einn-
ig þrjá titla sumarið 1998 en þá
klikkaði liðið á deildarbikarnum,
datt út fyrir verðandi meisturum
KR-inga í átta liða úrslitunum.
Bjarki Gunnlaugsson hefur
byrjað vel með FH og skoraði
fyrsta mark liðsins í báðum úr-
slitaleikjunum á síðustu dögum.
Mark hans í meistarakeppninni
dugði til sigurs en Valsmenn náðu
að tryggja sér framlengingu í úr-
slitaleik Lengjubikarsins.
FH-ingar hafa nú unnið tíu titla
síðan þeir komu aftur upp í efstu
deild sumarið 2001. Þeir hafa
unnið þrjá Íslandsmeistaratitla,
fjóra deildarmeistaratitla og hafa
tvisvar orðið meistarar meistar-
anna auk þess að vinna Atlant-
ic-bikarinn einu sinni en keppni í
honum var frestað í vor.
FH getur fyrst liða náð fernunni
Hrafn Kristjáns-
son hefur gert nýjan tveggja ára
samning um að þjálfa áfram ný-
liða Þórs frá Akureyri í Iceland
Express-deild karla í körfubolta.
Hrafn hefur þjálfað Þórsliðið
undanfarin þrjú tímabil og komið
liðinu tvívegis upp í úrvalsdeild-
ina en liðið féll úr deildinni á mið-
árinu.
Einhverjar breytingar verða
á Þórsliðinu, sem vann alla leiki
sína í vetur, en Hrafn vill styrkja
liðið með tveimur íslenskum leik-
mönnum.
„Þegar litið er á hópinn hjá okkur
er ljóst að hann þarfnast styrk-
ingar í stöðu leikstjórnanda og
undir körfunni og nú þarf að
leggjast yfir þau mál. Planið er að
bæta við okkur tveimur íslensk-
um leikmönnum fyrir næsta tíma-
bil auk tveggja erlendra,“ segir
Hrafn á síðunni.
Vill fá tvo nýja
íslenska menn
Frank Freder-
icks, heimsfrægur frjálsíþrótta-
maður frá Namibíu, hefur fram-
sögu á umræðufundi Samtaka ís-
lenskra ólympíufara sem fram fer
í dag.
Umfjöllunarefnið er „líf að
loknum ferli“ og hefst fundurinn
kl. 18 í fundarsal E á þriðju hæð í
Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Frank Fredericks er einn fræg-
asti spretthlaupari í heimin-
um síðustu ár og eftir að hann
lagði hlaupaskóna á hilluna hefur
hann tekið virkan þátt í störfum
íþróttahreyfingarinnar og er eft-
irsóttur fyrirlesari.
Fredericks vann til fernra silf-
urverðlauna á Ólympíuleikum
1992 og 1996, fékk tvenn í 100
metra hlaupi og tvenn í 200 metra
hlaupi.
Frægur hlaup-
ari á landinu