Fréttablaðið - 08.05.2007, Síða 78
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Ég fer ofsalega oft á Vegamót
og verð eiginlega aldrei fyrir
vonbrigðum þar. Þeir hafa mjög
lengi haft gott eldhús og mat á
góðu verði.“
Sveinn Kjartansson, matreiðslu-
meistarinn góðkunni á Fylgi-
fiskum, sýndi mikið hugrekki og
dirfsku á föstudaginn þegar hann
elti uppi glæpaflokk frá Rúss-
landi. Þeir höfðu látið greipar sópa
í veisluþjónustu staðarins á Suð-
urlandsbraut og rænt bíl staðar-
ins. „Þetta gæti líka hafa verið
heimska,“ segir Sveinn í samtali
við Fréttablaðið.
Málavextir voru þeir að Sveinn
og kollegar hans hjá Fylgifisk-
um höfðu verið að útbúa veislu
fyrir kvöldið og komu til þess að
ganga frá síðustu réttunum. Þegar
þeir komu að húsnæðinu á Suður-
landsbrautinni sáu þeir að brot-
ist hafði verið inn og hverjum ein-
asta munnbita stolið. „Við ætl-
uðum auðvitað að bæta þennan
skaða, hófumst handa við að búa
til nýja rétti en þegar við ætluðum
að keyra réttina út uppgötvast að
bílnum hafði líka verið stolið,“ út-
skýrir Sveinn og voru þá góð ráð
dýr. „Við hringdum auðvitað bara
á lögregluna,“ segir Sveinn.
Þegar starfsfólkið stóð fyrir
utan húsnæðið í öngum sínum yfir
þjófnaðinum keyrir hins vegar
bíll framhjá þeim sem er grun-
samlega líkur Fylgifiska-bíln-
um. Og Sveinn æðir af stað til að
sjá hvert hann fer. „Hann svínar
fyrir annan bíl og keyrir inn í port
sem er þarna skammt hjá,“ segir
Sveinn og viðurkennir að honum
hafi liðið eins og stórborgarlöggu
í bandarískri kvikmynd. „Hjartað
tók nokkur aukaslög og „rushið“
lifði langt fram eftir kvöldi,“ segir
Sveinn. „Ég sé hvar bílnum er lagt
og út koma tveir strákar. Ég geng
bara að þeim og spyr hvað þeir
séu að spá,“ segir Sveinn en mikið
fát kom á þjófana þegar kokkakr-
umlurnar náðu taki á þeim. „Ég
varð þess þó fljótlega áskynja að
þeir voru ekki íslenskumælandi
og held að þetta hafi hreinlega
bara verið bófagengi sem fer um
bæinn og stelur öllu steini létt-
ara,“ segir Sveinn sem bætir því
þó við að þegar leitað var að stolna
matnum var augljóst að þjófarnir
höfðu tekið hraustlega til matar
síns. Aðeins einn lítill brauðmoli
var eftir af öllum veisluföngun-
um. „Þannig að kannski verður
að líta á þetta rán sem einhvers
konar hrós.“
Þorleifi Erni Arnarssyni hafa bor-
ist fimm tilboð frá þýskum leik-
húsum í kjölfar sýninga á Eilífri
hamingju í Berlín í febrúar. Þor-
leifur er leikstjóri sýningarinn-
ar og stundar nú leikstjóranám
í Berlín. „Leikhúsin eru öll að
ákveða hvað þau ætla að gera
næsta vetur. Það á eftir að koma
í ljós hvað passar inn og hvað ég
get tekið að mér,“ sagði Þorleifur
og bendir á að staðan sé enn nokk-
uð óljós.
Sýningarnar á Eilífri hamingju
í Maxím Gorkí-leikhúsinu voru
vel sóttar af þýsku leikhúsfólki
að sögn Þorleifs, en Maxím Gorkí-
leikhúsið er eitt þeirra sem hafa
lýst yfir áhuga á samstarfi við Þor-
leif. „Þar myndi ég setja upp verk
eftir Lars Norén. Það yrði frum-
sýnt á norrænni hátíð í Sophien-
sale og færi þaðan yfir í Maxím
Gorkí,“ útskýrði Þorleifur.
Hann er einnig í viðræðum við
Schaubühne-leikhúsið. „Gengi
það eftir yrði þetta brjálæðislega
spennandi. Það er svona eins og að
vera valinn í brasilíska landslið-
ið,“ sagði Þorleifur. Í kortunum er
einnig sýning í borginni Schwerin
í Austur-Þýskalandi og uppsetn-
ing á Hamlet. „Svo hafa margir af
stórleikurunum í Berlín tekið sig
saman og stofnað sitt eigið leikhús
og ég hef verið í viðræðum við þá
um að koma inn með sýningu. Það
er samt alveg á frumstigi,“ sagði
Þorleifur og benti á að síðasta sýn-
ing á Eilífri hamingju hér á landi
fer fram í Borgarleikhúsinu á
morgun.
Gerir það gott í Þýskalandi
„Ég gat varla staðið í fæturna
eftir leikinn og Hjálmar bróðir
var rúmliggjandi,“ segir Sigmar
Vilhjálmsson. Hann lék síðasta
leikinn með meistaraflokki Hattar
frá Egilsstöðum í fyrstu deild Ís-
landsmótsins í handknattleik á
dögunum, ásamt bróður sínum
Hjálmari Vilhjálmssyni.
Hattarmenn höfðu ekki riðið
feitum hesti frá viðureignum
sínum í deildinni, höfðu tapað
öllum leikjunum og brugðu
því á það ráð að fá bræð-
urna Sigmar og Hjálm-
ar til aðstoðar við að
innbyrða fyrsta sig-
urinn. Og það tókst.
Höttur vann Gróttu
með 31 marki gegn
28 úti á Seltjarnar-
nesi. „Ég skoraði
þrjú og var rekinn
út af í tvær mín-
útur tvisvar sinn-
um,“ segir Sigmar en á
héraðsvefnum austur-
landid.is kemur fram að
þeim Hjálmari og Sig-
mari hafi verið falið að
fylla upp í götin á varnar-
leik liðsins.
Sigmar er reyndar alls
ekki ókunnur park-
ettinu og harpix-
inu því hann hefur
meðal annars afrekað að komast
í hópinn hjá 16 ára landsliði Svía.
„En svo flutti ég heim og fór að
æfa með Hetti. Og þar stöðnuðu
hæfileikarnir,“ segir Sigmar sem
þó lék einnig með yngri flokk-
um ÍR og Vals. Hann segir leikinn
hins vegar ekki hafa vakið gamla
handboltadrauma. „Keppnisskap-
ið er einfaldlega oft meira en lík-
amlegt form og þó ég fari í World
Class á hverjum degi þá er það allt
öðruvísi en að berjast inni á vellin-
um,“ segir Sigmar og bætir því við
að hann hafi fundið fyrir vöðvum
sem hann vissi ekki að væru til.
„En eflaust mun ég láta mig hafa
það að taka einn eða tvo leiki með
liðinu á næsta ári,“ bætir varnar-
jaxlinn Sigmar við.
Óvænt endurkoma Simma í handboltann
Gó› rá› og gagnlegar
uppl‡singar um heita vatni›
www.stillumhitann.is
TIL SÖLU LÉNIÐ
www.jol.is
Vinsælasti jólavefur síðust ára samkvæmt Samræmdri Vefmælingu
www.modernus.is/sv. Vefur fylgir með léninu.
Nánari upplýsingar veitir Jón Gunnar Gylfason
í síma +1 218-556-8828 eða jongunnar@jol.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI