Fréttablaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 48
Lyfja Lágmúla
Lyfja Smáratorgi
Opið 8-24
alla daga
- Lifið heil
Nýja ríkisstjórn Frakklands skipa 15 ráðherrar. Frakk-
ar eru um 64 milljónir talsins
þannig að kostnaður við hvert
ráðuneyti er borinn uppi af rúm-
lega 4 milljónum landsmanna. Í
síðustu ríkisstjórn Íslands sátu
12 ráðherrar. Íslendingar eru um
300 þúsund þannig að um 25 þús-
und manns bera uppi kostnað-
inn við hvert ráðuneyti. Íslenska
utanríkisráðuneytið eitt og sér
kostar skattgreiðendur um níu
og hálfan milljarð á ári. Sé deilt í
þá upphæð með 25 þúsund kemur
út upphæðin 380 þúsund krónur
á hvert mannsbarn. (Já, það er
dáldið mikið).
markmið utanríkisráðu-
neytisins er að vinna Íslandi sæti
í Öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna sem er sú deild SÞ sem fer
með hernaðarmál. Enginn hefur
enn þá getað útskýrt hvaða vitn-
eskja eða sérþekking það er sem
íslenska utanríkisráðuneytið býr
yfir á sviði hernaðarmála og telur
brýnt að leggja fram á alþjóða-
vettvangi. Það er góðra gjalda
vert að vilja auka veg Íslands og
virðingu meðal þjóða. Skynsam-
legra væri þó að bjóða sig fram
til verka á sviði mannréttinda,
þróunarhjálpar eða menntamála
fremur en á hernaðarsviði.
bruðl og stór-
mennskubrjálæði í íslenskri
stjórnsýslu er því miður ekki sér-
grein utanríkisráðuneytisins. Það
er víðar pottur brotinn. Nú situr
hópur fólks austur á Þingvöllum
við að koma saman nýrri ríkis-
stjórn handa þjóðinni. Það væri
óskandi að þetta góða fólk setti
sér það takmark að fara skynsam-
lega og sparlega með skattpen-
inga samborgara sinna, til dæmis
með því að skrúfa fyrir eitt-
hvað af sírennslinu á vegum hins
opinbera. Ærin verkefni blasa við
á því sviði og utanríkisráðuneytið
er aðeins eitt dæmi af mörgum
um útþenslu og bjánagang sem
þarf að stöðva.
má einu gilda hvort sú stjórn
sem verið er að mynda kallar
sig Þingvallastjórn eða Baugs-
stjórn. Það sem skiptir máli er að
stjórnin beri virðingu fyrir þjóð-
inni og einsetji sér að stjórna af
réttsýni, hagsýni og heiðarleika.
Það er kominn tími til að okkar
ágæta þjóð fái þá stjórn sem hún
á skilið: Stjórn heilbrigðrar skyn-
semi.
Stjórn heil-
brigðrar skynsemi