Fréttablaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 24
fréttablaðið fasteignir2 21. MAÍ 2007 Fyrirtækin Kubbur og Nmedia hafa runnið saman. Nýja fyrir- tækið kallast Inhouse og býður heildarlausnir fyrir fasteigna- markaðinn. Samkeppnin á fasteignamarkaðn- um er hörð og keppast fasteigna- salar við að koma sér og sínum eignum á framfæri. Þá er oftar en ekki leitað til fasteignaljós- myndara og tölvugrafíkera til að gera eignunum sem best skil í dagblöðum og á netinu. Nú hefur nýtt fyrirtæki verið stofnað sem sérhæfir sig í eins konar heildar- lausnum fyrir fasteignamarkað- inn á þessu sviði. Þetta er fyrirtækið Inhouse, en það varð til við samruna Kubbs margmiðlunar og Nmedia. „Kubb- ur margmiðlun var stofnað árið 2001 og höfum við sérhæft okkur í hönnunar- og ljósmyndaþjónustu fyrir fasteignamarkaðinn. Árið 2005 bættist svo þrívíddarvinnsla við en við höfum síðan verið að leita eftir leiðum til að bæta þjón- ustuna bæði hvað varðar ljós- myndun og þrívíddarvinnslu,“ segir Hörður Ellert Ólafsson, einn eigenda Inhouse. Nmedia er hinsvegar yngra fyrirtæki en það var stofnað árið 2004. „Við hjá Kubbi sáum strax að þar var á ferð mannskapur með nýstárlegar lausnir og fyrirtækið skilaði flottum verkefnum,“ segir Hörður. „Það gildir hins vegar í þessum bransa eins og öðrum að viðskiptavinurinn vill leita á einn stað eftir allri þjónustu og því ákváðu fyrirtækin að hagstætt væri að renna saman.“ Hörður segir að með komu nýja fyrirtækisins komi ýmsar nýjar lausnir. „Við munum til dæmis bjóða upp á að mynda í allt að 15 metra hæð, en þá sést útsýni og umhverfi mun betur, ástand þaks- ins sést, trjákrónur skyggja ekki á fasteignina og hægt er að ná góðri yfirlitsmynd,“ segir Hörður. „Í þrí- víddardeildinni erum við að byrja með rauntíma þrívíddarlíkön af húsum sem hægt er að nálgast á netinu. Þetta eru líkön þar sem notandi getur gengið um íbúðina, opnað og lokað dyrum, og skoð- að hvern krók og kima gegnum tölvuna heima.“ Hörður segir að markmið nýja fyrirtækisins sé einfalt. „Við vilj- um vera leiðandi á okkar sviði. Við erum stöðugt að endurbæta verk- ferla hjá okkur, skoðum hvar við getum gert betur og sparað tíma, jafnframt því að við gerum miklar kröfur til sjálfra okkar varðandi gæði þess efnis sem við látum frá okkur fara,“ segir Hörður. tryggvi@frettabladid.is Markmiðið að verða leiðandi á sínu sviði Að geta tekið myndir úr mikilli hæð hefur sína kosti. Þrívíddarlíkönin eru gríðarlega raun- veruleg. TRAUST FASTEIGNASALA! www.byggd.is Hofsárkot, Svarfaðardal Til sölu 3,5 ha land ásamt einbýlishúsi og útihúsum. Einbýlishús 216 fm. byggt 1974. Útihús og vélageymsla samtals 397 fm. Tilboð óskast. STRANDGATA 29 AKUREYRI SÍMI: 464 9955 Sigurður V. Ragnarsson, löggiltur fasteignasali Til sölu nýtt glæsilegt 168,8 ferm Parhús við Lækjamót 85, 245 Sandgerði Til afhendingar nú þegar. Tilbúið undir tréverk hiti í stéttum, lagnir fyrir heitum potti. Verð 23,900,000. Verktaki er einnig með í smiðum sambærileg hús við Breiðhól Sandgerð sem hægt er að fá fokheld. Allar nánar upplýsingar á skrifstofu. Fr um Lækjamót 85, Sandgerði Hafnargötu 20 • 230 Keflavík Sími 421 1700 • es.is Sigurður V. Ragnarsson, löggiltur fasteignasali Verð: 25.800.000,- Fr um Stórglæsileg eign í Grindavík Víkurbraut 46 • 240 Grindavík Sími 426 7711 • es.is Síðumúla 35 • 108 Reykjavík • Sími 517 3500 • www.fyrirtaekjasala.is Valgeir Kristinsson, hrl., lögg. faseignasali Fr um GlÆSILEG NUDD OG GRENNINGARSTOFA Til sölu glæsilegt heilsustúdíó með góðan tækjakost. þekkt stofa í rúmgóðu húsnæði. Staðsetning mjög miðsvæððis. Góður tími framundan. Frábært tækifæri. VINSÆLL SKYNDIBITASTAÐUR í hverfi 108 Til sölu þekktur skyndibitastaður í austurborginni með fína afkomu. Bullandi traffic. Hér er á ferð frábært tækifæri. Leitið upplýsinga. BÆKUR OG RITFÖNG - ÓDÝRT Til sölu þekkt og rót- gróin verslun í verslunarmiðstöð. Frábært tækifæri og verð ef samið er strax. HÁRSTOFA Til sölu í góðu hverfi, 5 vinnustöðvar og 2 vask- stólar og góður búnaður. Verð 3,1 millj. INNRÖMMUN Til sölu innrömmunarstofa á frábærum stað í góðu húsnæði í austurbæ. Tilvalið fyrir tvo samhenta einstaklinga. Góður tækjakostur Verð 7,5 millj. HÁRGREIÐSLUSTOFA TIL SÖLU Mjög þekkt og vel staðsett stofa með 2 þvottastöðvar og 6 vinnustöðvar. Hefur starf- að á sama stað sl. 10 ár. Gott verð. PÚSTÞJÓNUSTA og BÍLAVERKSTÆÐI Þekkt og gróið fyrirtæki í topp húsnæði 320 fm. Besti tíminn framundan. GÆLUDÝRAVERSLUN til sölu af sérstökum ástæðum, þekkt verslun með miðsvæðis með vinsæla vörur. Gæludýraunn- endur, hér er gott tækifæri á ferðinni. Gott verð. BÓNSTÖÐVAR til sölu með mikið af föstum viðskiptasam- böndum. SÖLUTURN í HVERFI 108 Söluturn með opnun frá kl. 8,30 - 18.oo og lokað um helgar. Vaxandi góð velta. Verð aðeins 2,8 millj. Endilega leitið nánari upplýsinga.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.